Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 48
216 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
Ólafur Jónsson
Upphaf svæfinga og Eterhvelfingin í Boston
S A G A L Æ K N I S F R Æ Ð I N N A R
Hér verður sagt frá merkum atburði í
sögu lækninganna sem átti sér stað í
Boston fyrir tæpum 180 árum. Sýnt var
fram á að hægt væri að gera skurðaðgerð
án þess að sjúklingur fyndi sársauka.
Þetta var á Massachusetts General
Hospital 16. október 1846. Skurðaðgerðin
var vegna æxlis í kjálka sjúklings. Svæf-
ingalyfið var Diethyl Eter og var í gler-
kúlu sem í var svampur, mettaður með
lyfinu. Sjúklingurinn, Gilbert Abbot,
andaði etergufunni að sér meðan á að-
gerðinni stóð og virtist sofandi. Þegar
aðgerðinni lauk og hann hafði rankað
við sér sagðist hann ekki hafa fundið
sársauka. Skurðlæknirinn John Collins
Warren, sem var forseti læknadeildar
Harvard-háskóla, sagði þá fræg orð:
„Gentlemen, this is no humbug.” Sá
sem annaðist svæfinguna hét William
T. Morton og var tannlæknir. Á legstein
á gröf hans stendur: „Inventor and
revealer of inhalation anaesthesia. Before
whom, in all time, surgery was agony.
By whom pain in surgery was averted
and annullet. Since whom, science has
control of pain.“ Fréttin af þessum at-
burði barst fljótt til Evrópu og víðar þar
sem aðferðin var tekin upp. Nýir tímar í
sögu lækninganna voru hafnir.
Fyrir tíma svæfinganna var staða
skurðlækna og sjúklinga erfið vegna
þess að nær engin úrræði voru til þess
að stilla sársauka við skurðaðgerðir.
Mikil áhersla var á mikinn hraða við
aðgerðir, svo sem aflimanir, vegna
geysilegs sársauka sjúklinga. Vegna þess
munu skurðstofur hafa verið hafðar
nokkuð afsíðis svo síður heyrðust sárs-
auka- og örvæntingarvein sjúklinganna.
Ether Dome og múmían Padihershef. Gömul mynd/ljósmyndarinn óþekktur.
Höfundur var á sínum tíma við sérfræðinám á
Massachusetts General Hospital í Boston.
Síðar svæfingalæknir á Borgarspítalanum í 33 ár.
Skurðstofan þar sem þetta gerðist
var í elstu byggingu spítalans. Hann
var stofnaður árið 1811 og var sá fyrsti
í Nýja-Englandi. Þessi bygging stendur
enn og mun í fullri notkun. Hún ber
nafn arkitektsins, Charles Bulfinch. Efst
í byggingunni fyrir miðju undir veglegu
hvolfþaki var skurðstofan sem síðar fékk
nafnið Ether Dome.
Þessi skurðstofa var í notkun til 1867.
Síðan var hún notuð sem geymsla, svefn-
skáli og síðar matstofa hjúkrunarkvenna.
Frá árinu 1892 hefur húsnæðið verið not-
að til fræðslustarfa. Þar er hátt til lofts
og upphækkaðar sætaraðir í tæpan hálf-
hring og nútímatækni til staðar.
Nálægt 150 ára afmæli atburðarins
var ákveðið að minnast þessa með við-
eigandi hætti. Nokkrir læknar tóku sig
saman og fengu til liðs við sig listmálara,
myndatökumenn og förðunarmeistara. Í
leikhúsi fengu þeir búninga tíðarandans.
Settu svo atburðinn á svið. Afraksturinn
var málverk sem nú er á áberandi stað í
Ether Dome.
Til gamans má geta þess að árið 1823
var spítalanum gefin múmía frá Egypta-
landi. Hún hefur áratugum saman verið
geymd í Ether Dome og verið rannsökuð
ítarlega, síðari árin með nútímatækni.
Árið 1960 gat fræðimaður lesið mynd-
letur (hýeróglífur) í kistunni. Múmían
var af karlmanni sem uppi var í borginni
Þebu um 600 f. Kr. á tímum 26. konung-
sættar. Hann hét Padihershef og starfaði
sem leitarmaður að heppilegum grafar-
stæðum.
Þá er þarna stytta af guðinum
Apolló sem meðal annars var guð visku
og lækninga, sbr. upphaf hins forna
Hippókratesareiðs: „Ég sver við Apolló,
sem læknar, Asklepíus … að ég mun
framkvæma eftir kunnáttu minni og
dómgreind þennan eið.” Styttan var gef-
in spítalanum árið 1845. Þetta er afsteypa