Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 181 R A N N S Ó K N reyndist unnt að vinna úr gögnum um nauðungarvistanir, sjálfræðissviptingar og öryggismeðferð úr gagnasafni spítalans vegna ófullnægjandi skráningar í sjúkraskrá. Þó má áætla að allir sjúklingar sem fá nauðungarlyfjagjafir á geðdeildum séu nauðungarvistaðir því óheimilt er samkvæmt lögum að beita þvingaðri lyfjagjöf án nauðungarvistunar. Notuð var að mestu lýsandi tölfræði. Munur á kyni og þjóðerni milli hópa var skoðaður með Fisher-prófi. Munur á hópum hvað varðar fjölda koma í bráðaþjónustu, innlagnir og legudaga var reiknaður með útvíkkuðu línulegu líkani (gener- alized linear model) með neikvæðri tvíkosta (negative binomial) gagnadreifingu. Unnið var með ópersónugreinanleg gögn og áhætta sjúk- linga því hverfandi. Ekki var þörf á að afla upplýsts samþykkis frá þátttakendum. Rannsóknin var samþykkt af siðanefnd Landspítala og framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala og tilkynnt til Persónuverndar (17/2019. Tilv.16). Gagnavinnsla var framkvæmd með forritunarmálinu R, út- gáfu 4.2.0, í notandaviðmótinu RStudio, útgáfu 2022.7.1.554. Niðurstöður Umfang nauðungarlyfjagjafa á geðdeildum Landspítala Af 4053 þátttakendum voru 400 (9,9%) sem fengu nauð- ungarlyfjagjafir. Heildarfjöldi nauðungarlyfjagjafa var 2438 á rannsóknartímabilinu. Að meðaltali voru gefnar 40,6 nauð- ungarlyfjagjafir á mánuði á tímabilinu. Tafla I sýnir fjölda nauðungarlyfjagjafa og hlutfall þess lyfs af öllum lyfjagjöfum þess árs. Þegar lyfjagjafir eru skoðaðar öll árin má sjá að Ha- loperidolum var mest notaða lyfið (34,3%) og þar á eftir er Lor- azepam (33,4%) en þessi lyf eru oft gefin saman. Í töflu II má sjá að meirihluti þátttakenda sem fengu nauð- ungarlyfjagjafir á rannsóknartímabilinu fengu á bilinu eina til fjórar. Þó má sjá að talsverður fjöldi fékk fleiri en fjórar nauð- ungarlyfjagjafir. Minnihluti sjúklinga í úrtaki fengu nauðungarlyfjagjöf, eða 9,9%, en aðeins lítill hluti þeirra fékk oft nauðungarlyfja- Tafla I. Fjöldi og hlutfall nauðungarlyfjagjafa eftir lyfjategund fyrir hvert ár, fjöldi (%). Lyfjaheiti (virkt efni) 2014 2015 2016 2017 2018 Haloperidolum Lorazepam Zuclopenthixolum Olanzapinum 114 (39,7) 47 (16,4) 65 (22,6) 61 (21,3) 166 (33,2) 157 (31,4) 98 (19,6) 79 (15,8) 117 (20,9) 251 (44,9) 115 (20,6) 76 (13,6) 212 (35,2) 210 (34,8) 174 (28,9) 7 (1,2) 225 (46,0) 157 (32,1) 85 (17,4) 22 (4,5) Tafla II. Meðalfjöldi koma í bráðaþjónustu Landspítala auk meðalfjölda innlagna og legudaga á geðdeildum Landspítala eftir fjölda nauðungarlyfjagjafa í hópi 1 (n=400) á árunum 2014-2018. Fjöldi nauðungarlyfjagjafa Fjöldi einstaklinga (%) Meðalfjöldi koma í bráðaþjónustu Meðalfjöldi innlagna Meðalfjöldi legudaga 1-4 5-9 10 eða fleiri 267 (66,8) 74 (18,5) 59 (14,8) 11,9 10,7 18,7 4,4 5,4 11,5 95,8 128,3 265,3 gjöf. Á rannsóknartímabilinu fengu 10 þátttakendur í hópi 1 samtals 529 nauðungarlyfjagjafir. Þetta jafngildir því að 2,5% þátttakenda í hópi 1 hafi fengið 21,7% nauðungarlyfjagjafa. Að sama skapi fengu 44 þátttakendur, eða 11% hóps 1, samtals 1231 nauðungarlyfjagjöf, eða 50,5% allra nauðungarlyfjagjafa á rannsóknartímabilinu. Þessir einstaklingar lögðust inn 559 sinnum og voru með samtals 11,2 legudaga og áttu 908 komur á bráðamóttökur Landspítala. Þetta jafngildir 5,5% allra inn- lagna, 6,6% allra legudaga og 2,4% allra koma á bráðamóttökur Landspítala. Tími nauðungarlyfjagjafar Tíðni nauðungarlyfjagjafa er mismunandi eftir tíma sól- arhrings og eftir vikudögum. Mynd 1 sýnir hlutfall nauð- ungarlyfjagjafa eftir: A) tíma sólarhrings, B) vikudögum og C) mánuðum, bæði eftir árum og fyrir rannsóknartímabilið í heild sinni. Notkun nauðungarlyfja eftir tímum sólarhrings var svipuð milli ára. Nauðungarlyfjagjafir voru í lágmarki um nætur en fjölgaði milli klukkan 10:00 og 15:00 á daginn. Nauðungarlyfjagjöfum fækkaði aftur síðdegis og náðu þær svo hámarki seinni part kvölds í kringum klukkan 22:00. Ekki var teljandi munur á hlutfalli nauðungarlyfjagjafa frá mánudegi til föstudags, eða á virkum dögum, en hlutfallið lækkaði um helg- ar. Ekki sást áberandi mynstur í hlutfalli nauðungarlyfjagjafar þegar hún er skoðuð eftir mánuðum. Breytur sem tengjast nauðungarlyfjagjöfum Í töflu III má sjá lýðfræðilegar breytur þátttakenda, upplýs- ingar um komur, innlagnir og legudaga eftir hópum. Kynja- hlutfall milli hópa var ólíkt. Í hópi 1 voru karlar 60,2% en konur 39,8%, en í hópi 2 var kynjahlutfall jafnara, eða 51,2% karlar og 48,8% konur. Á árunum 2014-2018 fengu því karlar hlutfallslega oftar nauðungarlyfjagjafir en konur. Þátttakendur í hópum 1 og 2 voru marktækt frábrugðnir hver öðrum hvað varðar kyn þegar prófað var með Fisher-prófi. Gagnlíkinda- hlutfall karla (konur viðmiðshópur) = 1,44 (95% öryggisbil 1,16- 1,79), p=0,0006.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.