Læknablaðið - 01.04.2023, Side 21
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 189
Y F I R L I T S G R E I N
ræsing með ónæmisvaka örvi fjölgun eitilfrumna, mögulega
vegna bakteríuáhrifa.27 Krónísk bólga sem leiðir til margstofna
eitilfrumufjölgunar getur með tímanum þróast í einstofna
fjölgun og á endanum í eitilfrumukrabbamein. Hjá konum með
silíkonpúða með grófu yfirborði hefur verið sýnt fram á aukna
áhættu á anaplastic large cell T-frumu krabbameini (ALCL), jafn-
vel þó ekki sé enn þekkt tilfelli af þessu hér á landi.26 Það virð-
ist sem áferð yfirborðs silíkonpúðanna skipti máli. Nýleg rann-
sókn á músum og kanínum sýndi að viss tegund af ósléttu
yfirborði tengist frekar ónæmismiðluðum aukaverkunum,
jafnvel ALCL.28 Þessi rannsókn sýndi fram á að yfirborð með
mynsturdýpt yfir 4 µm ræsti á öflugri hátt ónæmissvar gegn
silíkoni. Örvefshimnan var minni í kringum slétta púða, sem
innihélt meira af FOXP3+ ónæmisbælandi T-stýrifrumum.28
Klínískar rannsóknir í ASIA-heilkenni
Þegar silíkonpúðar eru fjarlægðir vegna leka greinist oft frítt
silíkon í vefjum. Jafnframt geta fundist með segulómun merki
um frítt silíkon í eitlum, jafnvel svokallað silíkonoma.29 Óm-
skoðun á eitlum á hálsi eða í holhönd geta sýnt svokallaðan
snowstorm effect sem endurspeglar sílíkonagnir innan um
eðlilegan vef.30 Eitlar sem teknir eru til smásjárskoðunar sýna
gjarnan ósértækar bólgubreytingar, oft með „götum“ eftir að-
skotahluti (silíkon).29,30
Blóðrannsóknir hjá þessum sjúklingum sýna yfirleitt
ósértækar niðurstöður. CRP (C-reactive protein), sem vísar til
bólgu, er oftast eðlilegt. Samkvæmt nýrri yfirlitsgrein finnst
hækkað frítt inerleukin-2 gildi í allt að 50%. ANA (anti nuclear
body) er til staðar hjá 20% og stundum finnast önnur sjálfs-
ónæmismótefni, svo sem SSA/SSB, anti-dsDNA, anti-Scl-70,
anticardiolipin, anti-CCP, IgM-RF, ANCA og eða Cryoglobulin
og 20-50% hafa lækkuð gildi á IgG eða IgG undirflokkum.4,31
D-vítamínskortur eða lækkun er algengur og gæti verið
áhættuþáttur fyrir ASIA.32
Brottnám silíkonpúða
Um 60-80% kvenna með ASIA-heilkenni sem láta fjarlægja sil-
íkonpúða lagast af einkennum sínum. Því styttri tíma sem sil-
íkonpúðar voru til staðar, því líklegri er konan til að losna við
einkenni ASIA.26,31 Ef sjúklingar eru hins vegar þegar komnir
með sjálfsónæmissjúkdóm, ná aðeins um 16% bata án frekari
ónæmisbælingar og sumar konur halda áfram að vera með ein-
kenni ASIA-heilkennis til langs tíma, væntanlega vegna þess
að silíkon er enn þá til staðar í líkama þeirra.22 Þegar silíkon-
púðar hafa rofnað getur silíkonið dreifst um vefi líkamans en
þá er og ómögulegt að hreinsa það allt í burtu. Sýnt hefur verið
fram á að því meira silíkon sem dreifist um líkamann, því
meira bólguástand getur skapast.23 Lýtalæknar segja að nær
ómögulegt sé að fjarlægja allt silíkon úr líkamanum er púðar
hafa rofnað. Þrátt fyrir afar nákvæma aðgerðatækni verður
ávallt eftir nokkuð af silíkoni á brjóstasvæði og jafnvel annars
staðar í líkamanum.
Rannsóknir sem ekki hafa sýnt fylgni á milli silíkonpúða
og ASIA-heilkennis
Rannsóknir á tengslum silíkons og ýmissa sjúkdóma vísa ekki
allar í sömu átt. Talsvert margar sýna alls ekki fram á tengsl
Mynd 1. Myndin sýnir hvernig smáar
silíkon agnir geta haft áhrif á ónæmis-
kerfið. Þrjár meginleiðir:
1) Viðbrögð ósérhæfða ónæmiskerfisins
(meðal annars TNFα, IL-1β og fleiri
boðefni ósérhæfða ónæmissvarsins og
bólgustöð/umhverfi.
2) Hvarfgjörn súrefnissambönd (reactive
oxygen substances (ROS)) sem skemma
frumur, valda stýrðum frumudauða
(apoptosis) og bólgu.
3) Sjálfsát (autophagy) sem leiðir til
stýrðs frumudauða, silíkon losnar, aðrar
átfrumur koma síðan og hreinsa svæðið
og hringrásin heldur áfram.
Heimild: Chen L, Liu J, Zhang Y, et al. The toxicity of
silica nanoparticles to the immune system. Nanomed
2018; 13: 1939-62.