Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.2023, Qupperneq 34

Læknablaðið - 01.04.2023, Qupperneq 34
202 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 Allt var nýtt, nýr smitsjúkdómafarald- ur. Við héldum að við gætum tekið á þessu og sigrað. Ég var alltaf á spítal- anum, fannst gaman. En svo breyttist andrúmsloftið. Það fór fljótt úr því að vera spennandi yfir í að vera erfitt bæði andlega og líkamlega. Svo varð maður þreyttur, svo hálf reiður yfir að vera föst í sömu sporum. Þetta var andlegur rússí- bani,“ lýsir Erna. Alls störfuðu 19 læknar undir stjórn Ernu á smitsjúkdómadeildinni á Mount- Sinai West. „Þar er nóg af öllu og að- gengi að öllu. Hér á Landspítala þurfum við að pæla í hvað er til og að panta sumt frá útlöndum,“ segir hún og skellir létt upp úr spurð um samanburð. „Maður finnur fyrir smæðinni. Lækn- ar eru beðnir um að gera fleiri hluti hér en úti. Þar eru sviðin afmarkaðri og stuðningur meiri við lækna. Þar er ein- faldlega meira af fólki en hér er fjöldinn takmarkaður. Það eru því allir að gera allt,“ segir hún en vill þó ekki kvitta undir að COVID-þreytan hafi fleytt henni heim. „Enda er þessi veira komin til að vera með okkur. Við verðum að læra að lifa með henni og hún orðin eins og hver önnur inflúensuveira.“ Í Serbíu á sumrin Foreldrar Ernu, Guðrún Ottesen Óskars- dóttir og Milutin Kojic, kynntust Í New York. „Pabbi er fæddur í sveit í Serbíu. Hann var sendur eftir síðari heimsstyrj- öldina til vinnu á Manhattan. Þar hittir hann mömmu árið 1954. Hún ætlaði í tískuskóla en giftist pabba þremur mánuðum seinna í Belgrad,“ segir hún, og hvernig hún varði sumrum í sveitinni þeirra í Zakúta í Serbíu. „Tengslin við bæði löndin voru því alltaf mikil,“ segir Erna. „Pabbi var alltaf sterktengdur gömlu Júgóslavíu,“ segir Erna sem heldur í ræturnar. „Ég á fullt af ættingjum þar.“ Heimsfaraldrar og stríð hafa því komið við Ernu og ekki hægt annað en nefna Balkanstríðið 1996. „Þetta stríð var afskaplega flókið. Balkanskagi er einn suðupottur. Þar úir og grúir af fólki af ólíkum uppruna enda Balkanskaginn hvarfpunktur frá austri til vesturs. Í gegnum tíðina eru landa- mærin mjög óskýr. Þau hafa alltaf verið að færast. Þá eru trúarbrögðin mismun- andi. Á þessum árum voru stjórnmála- menn við völd sem horfðu ekki til langs tíma og því sauð allt upp úr,“ segir hún. En kvikna þá tilfinningar nú við Úkraínustríðið? „Mér finnst skelfilegt hvað mannskepnan man ekkert. Það eru endalaus stríð og yfirtökur. Þetta er svo klikkað. Enn lifir fólk sem tók þátt í síð- ari heimsstyrjöldinni og við erum aftur komin í þá stöðu að ein þjóð taki yfir annað land. Það er óskiljanlegt,“ segir hún. Nýr kafli í lífinu Erna er á kaflaskilum í lífi sínu. „Já, ég sé líf mitt í köflum. Kaflinn sem krakki, kaflinn í læknadeildinni, kaflinn á Man- Erna segir að hún hafi búist við að ganga inn í hörm- ungarástand á spítalanum af umfjölluninni að dæma þegar hún flutti heim. Hún sjái hins vegar með sínu gestsauga að margt sé vel gert. hattan, kaflinn þegar ég var með börnin mín lítil og nú spyr ég mig: Hvernig verður þessi Íslandskafli,“ segir hún og lýsir því hvernig hún hafi talið að hún gengi inn í algjört hörmungarástand á spítalanum af umfjölluninni að dæma. „Væntingarnar voru engar. Ég hélt að hér væri allt í hræðilegum ólestri. Það er ekki þannig.“ Landspítali glími við sömu vandamál og önnur sjúkrahús. „Þau eru flóknir vinnustaðir og fyrirbæri þar sem margt spilar inn í,“ segir hún. „Við eigum alltaf að halda áfram að betrumbæta og vinna að því að gera bet- ur en þetta gestsauga sem ég hef núna sýnir mér að margt er vel gert. Ég tel að upp á vinnustaðamóral sé mikilvægt að stoppa aðeins, horfa til baka og sjá hvar við gerum vel.“ Erna er því ekki að spá í að stökkva til baka eftir þessa fáu mánuði heima. „Nei, ef það er eitthvað sem fær mig til að stökkva til baka er það veðrið. Það rignir neðan frá. Það hefur verið óveður síðan ég lenti 16. desember,“ segir hún að lokum.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.