Læknablaðið - 01.04.2023, Qupperneq 38
206 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
V I Ð T A L
kvæmdar aftur og aftur og sjúklingar
valdir sem eru í lítilli áhættu. Auk þess
er Landspítali bráðasjúkrahús sem þarf
að hafa umfangsmikla innviði til að
geta sinnt allrahanda verkefnum,“ segir
hann.
Stjórn var sett yfir Landspítala um
mitt ár í fyrra. Runólfur segir það bæði
hafa verið ánægjulegt og lærdómsríkt
að starfa með henni. „Umræðan innan
stjórnarinnar endurspeglar glögglega
hvað Landspítali skiptir samfélagið
miklu máli. Það vilja allir að spítalan-
um vegni vel,“ segir hann. „Það er ekki
komin mikil reynsla á fyrirkomulagið en
ég upplifi stuðning og aðhald og finnst
reynslan jákvæð.“
Sigrast á áskorunum
Spurður að lokum hvort hann hefði tekið
þetta að sér vitandi hvað biði hans, seg-
ist hann hafa vitað hvað í starfinu felst.
„Þetta er krefjandi verkefni en ég geri
mér líka grein fyrir því að störf annarra
hérna á spítalanum eru mörg hver mjög
krefjandi. Það er mikið álag og ef ég væri
ekki hér væri ég örugglega í annasömum
og krefjandi verkefnum á öðrum vett-
vangi innan spítalans,“ segir hann og
horfir yfir sviðið.
„Það verður að byggja á því sem við
höfum og við vitum að við höfum mik-
inn styrk,“ segir hann og bendir á að
heilbrigðisstarfsfólk hér á landi sé eitt
það allra best menntaða á heimsvísu.
„Við verðum að hafa trú á því að saman
getum við unnið bug á öllum þeim
áskorunum sem við stöndum frammi
fyrir. Ég hef það.“
Forstjórinn kominn með
vísindin á sitt borð
„Vísindastarfseminni hefur hnignað og mér finnst að birting upplýsinga um
vísindastarf hafi ekki verið í forgrunni,“ segir forstjóri Landspítala sem hefur
því tekið þau undir sinn verndarvæng. Þau heyra nú beint undir hann. Runólf-
ur Pálsson segir verulega hnignun hafa átt sér stað á síðustu árum í samanburði
við Norðurlöndin.
„Ég efast ekki um að aðrir hafi færst fram en við kannski setið eftir í þeirri
þróun.“ Málið sé flókið. „En það eru sóknarfæri.“ Auka þurfi fjármuni sem eru
skilgreindir fyrir vísindastarfsemi.
„Við þurfum að huga að vísindamönnunum sem við höfum. Okkur hefur
ekki tekist að rækta þann garð nægilega. Við þurfum að halda vísindafólki okk-
ar á lofti til að laða að nemendur og aðra.“
Ekki aðeins þurfi að finna fjármagn heldur líka tækifæri. „Við erum lítil þjóð
og þurfum að líta á okkur sem eina heild. Ég horfi því til Háskólans, Íslenskrar
erfðagreiningar og Hjartaverndar.“ Á hinum Norðurlöndunum hafi háskóla-
sjúkrahúsin afmarkaðra hlutverk og hærra hlutfall af akademísku starfsfólki.
„Við verðum að setja okkur háleit markmið og komast út úr aðstæðunum hér.
Landspítali er mjög öflugur þótt við séum í erfiðleikum á vissum sviðum í dag.
Það á líka við um þekkt sjúkrahús úti í heimi sem glíma við erfiðleika af svipuð-
um toga og hjá okkur,“ segir hann.
„En starfsfólkið okkar má vera stolt af því sem það gerir hér því það vinnur
frábært starf alla daga. Við þurfum að byggja upp þetta stolt og það gerum við
með samtali við starfsfólk og sé það þátttakendur í að efla og þróa starfsemina
verður Landspítali framúrskarandi sjúkrahús.“
Forstjóri Landspítala segir spítalann hafa mikinn
styrk og byggja verði á honum. Mynd/gag