Læknablaðið - 01.04.2023, Side 50
218 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
Haraldur Briem
fyrrverandi sóttvarnalæknir
Smitsjúkdómalækningar
Það var fyrir 49 árum. Ég var að ljúka
héraðsskyldu minni í Vestmannaeyjum.
Tími var kominn til að ákveða hvaða sér-
nám skyldi velja. Valið stóð á milli mein-
efnafræði og lyflækninga. Hafði starfað
eitt eftirminnilegt ár á meinafræðideild
Landspítala. Ég leitaði til Ólafs Ólafs-
sonar landlæknis um ábendingar um
framhaldsnám í lyflækningum í Svíþjóð.
Hann tvínónaði ekkert, tók upp símann
og hringdi í yfirlækni smitsjúkdóma-
deildar sjúkrahússins í Eskilstuna. Þar
höfðu nokkrir íslenskir læknar auk
Ólafs gert garðinn frægan, án þess þó að
leggja smitsjúkdómalækningar fyrir sig
sem sérgrein. Yfirlæknirinn vildi fá mig
þegar í stað.
Það kom flatt upp á mig að smit-
sjúkdómalækningar skyldu nefndar til
sögunnar. Þær höfðu ekki verið í sviðs-
ljósinu í læknadeild enda litu margir svo
á að smitsjúkdómar væru ekki vandamál
lengur og tímabært að snúa sér að öðru.
Sýklalyf og bólusetningar hefðu leyst
málið. Enginn starfandi sérfræðingur
í smitsjúkdómalækningum var hér á
landi og fyrirmyndir því engar. Ég tók
þegar í stað þá ákvörðun að leggja þessa
sérgrein fyrir mig, kannski vegna þess
að ég taldi að enginn annar væri að gera
það eða kannski vegna þess að ekki væri
allt sem sýndist. Eftir að ég hélt til fram-
haldsnáms í Svíþjóð frétti ég af öðrum
lækni, Sigurði B. Þorsteinssyni, sem var
í sérnámi í smitsjúkdómalækningum
í Texas. Sigurður varð brautryðjandi í
smitsjúkdómalækningum hér á landi og
kom fræðigreininni á kortið. Hann stuðl-
aði að því að ég gat snúið heim að loknu
sérnámi og var samvinna okkar náin í
áratugi.
Eftir að ég kom til Eskilstuna lá leið
mín til Stokkhóms á smitsjúkdómaspít-
ala borgarinnar, mekku fræðigreinarinn-
ar þar í landi. Mér er það minnisstætt
þegar prófessorinn í faginu kallaði mig
nýkominn á fund sinn og gerði mér það
ljóst að ef til þess kæmi að hagsmunir
klínískrar vinnu og rannsókna rækjust
á, skyldi klíníska vinnan víkja fyrir
rannsóknum! Mér brá nokkuð en skildi
hann sem svo að ekki mætti slá slöku
við vísindin. Ég held að mér hafi tekist
að gæta nokkurs jafnvægis milli þessara
sjónarmiða í starfinu. Smitsjúkdómar
eru þess eðlis að þeir geta lagst á öll líf-
færi. Í doktorsnáminu kom sér reynslan
frá meinefnafræðideild Landspítala vel
þegar ég rannsakaði áhrif sýkinga á mið-
taugakerfið. Þessu lauk svo með dokt-
orsprófi frá Karolinska Institutet 1982.
Eftir heimkomuna til Íslands í árs-
byrjun 1983 eftir 8 ára dvöl í Svíþjóð
gerðust veður öll válynd. Alnæmisfar-
aldurinn var í aðsigi og óvissan mikil.
Mikil búbót var þegar eldhuginn Sigurð-
ur Guðmundsson bættist í hóp smitsjúk-
dómalækna og síðar fylgdu fleiri í kjöl-
farið sem efldu stéttina. Við HÍ kenndi
ég faraldsfræði smitsjúkdóma sem ég
vil nefna farsóttafræði. Þessa fræðigrein
þarf að stórefla enda mikilvæg til að
skilja útbreiðslu farsótta og þróa við-
brögð við þeim.
Stjórnvöldum varð ljóst að bæta þyrfti
löggjöf og stjórnsýslu sóttvarna og 1986
hófst vinna við það. Tók ég þátt í henni
sem leiddi til nýrra sóttvarnalaga 1997.
Eftir aldamótin 2000 og tilkomu fugla-
inflúensunnar og annarra ógna vegna
sýkla og eiturefna beindust sjónir manna
mjög að heilbrigðisöryggi á alþjóðavísu.
Á þessum tíma var Davíð Á. Gunnars-
son ráðuneytisstjóri áhrifamaður innan
WHO. Ný alþjóðaheilbrigðisreglugerð
WHO var samþykkt árið 2005 eftir tals-
verð átök. Ég var þá sóttvarnalæknir og
kom að þeirri vinnu að hans tilhlutan.
S É R G R E I N I N S E M É G V A L D I
Sérfræðilæknar svara: - Hvernig varð sérgrein þeirra fyrir valinu?
Hvar lærðu þeir? Hvaða ráð gefa þeir ungum læknum?