Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2023, Page 51

Læknablaðið - 01.04.2023, Page 51
S É R G R E I N I N S E M É G V A L D I Ég fékk áhuga á smitsjúkdómalækning- um vegna þess góða fordæmis sem smit- sjúkdómalæknar á Landspítala sýndu með vilja þeirra til að kenna og hafa samskipti við læknanema og sérnáms- lækna (sérstaklega þegar þeir reyndu að fá þig til að stoppa sýklalyf!) Ég var einstaklega lánsamur að hafa haft tækifæri til að vinna með Sigurði Guðmundssyni þegar hann ákvað að enda ferilinn í „klíník“. Ég var á smitsjúkdómadeildinni og sýklafræði- deildinni á sjötta árs valtímabilinu í læknadeild og var eftirminnilegt atvik frá því valtímabili þegar Sigurður bað mig um að hitta sig á skolinu á A7 og þegar ég kem þar inn sé ég hálfvand- Davíð Ólafsson smitsjúkdómalæknir Heillandi heimur smitsjúkdóma ræðalegan Sigurð blanda saman hægð- um, úr renniláspoka, í bikarglas og svo sía blönduna með kaffisíu til undirbún- ings fyrir saurörveruígræðslu. Það setti annan snúning á gefa skít í sjúklinginn! Ég fór í kjölfarið til Bandaríkjanna sumarið 2019 þar sem ég lærði lyflækn- ingar við University of Iowa og útskrif- aðist þaðan sumarið 2022. Ég hafði ekki tekið lokaákvörðun um að sérhæfa mig í smitsjúkdómum þó það væri efst á blaði og á tímabili, þegar ákveðin veirupest var að ganga um, missti ég næstum allan áhuga á smitsjúkdómum og daðraði við gigtarlækningar, ónæmisfræði eða lungnalækningar. Sem betur fer sá ég villu míns vegar Vísinda- og þróunarstyrkir Vorúthlutun 2023 Félags íslenskra heimilislækna Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkjum til vísinda- og þróunarverkefna á sviði heilsugæslu tvisvar á ári. Lögð er áhersla á að styrkja rannsóknir í heimilislækningum, um heimilislækningar og á forsendum heimilislækninganna sjálfra. Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slíkrar vinnu. Umsóknir um vorúthlutun fyrir styrkárið 2023 þurfa að berast sjóðnum fyrir 20. apríl næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. Umsóknum ber að skila rafrænt til Margrétar Aðalsteinsdóttur (margret@lis.is), hjá Læknafélagi Íslands, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, ásamt rannsókn- ar- og fjárhagsáætlunum eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða. Umsóknareyðublað er að finna á innra neti heimasíðu Læknafélagsins, www.lis.is, á heimasvæði FÍH. Starfsstyrkir geta verið allt frá 1 til 12 mánaða í senn. Upphæð starfsstyrks miðast við fasta upphæð sem svarar til dagvinnulauna styrkþega og er þá tekið mið af menntun og starfsaldri, þó aldrei hærri en sem svarar dagvinnulaunum yfirlæknis í heilsugæslu. Sé styrkþegi starfandi á heilbrigðisstofnun innan heilsugæslunnar leggur stjórn Vísindasjóðsins til að styrkurinn verði greiddur beint til þeirrar stofnunar. Á móti komi að forsvarsmenn stofnunarinnar sjái til þess að styrkþegi haldi áfram starfi sínu, óbreyttum launum og réttindum, en fái jafnframt tíma til að sinna rannsóknarstörfum á dagtíma. Sjóðurinn veitir að jafnaði starfsstyrki til verkefna sem krefjast minnst tveggja mánaða vinnu eða meir. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á að rannsóknar- verkefnið sé á forsendum heilsugæslunnar. Sé um vísindaverkefni að ræða er einnig lögð áhersla á tengsl rannsakenda við heimilislæknisfræði Háskóla Íslands eða aðra akademíska háskólastofnun í heimilislækn- ingum. Nánari upplýsingar veitir Emil L. Sigurðsson (emilsig@hi.is) Stjórn Vísindasjóðs FÍH og nú legg ég stund á sérnám í smit- sjúkdómalækningum við Washington University í Saint Louis sem ég mun klára í júlí 2024. Starf mitt þar hefur kveikt áhuga minn á fíknisjúkdómum og tengdum fylgikvillum sem ég mun vinna nánar með og stunda rannsóknir á.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.