Læknaneminn - 01.04.2021, Blaðsíða 5
Ávarp ritstjórnar
Óratími virðist vera síðan við tókum að okkur að gera þetta blað og
ýmislegt hefur gengið á frá því að ritstjórn Læknanemans 2021 var
skipuð. Um tíma virtist lögmál Murphys vera allsráðandi og má
vera að einhverjir innan ritstjórnarinnar hafi á tímabili efast um
að blaðið myndi í raun og veru koma út. En nú, nokkrum faraldurs-
bylgjum, ótal tölvupóstum, einu barni, meiriháttar eldgosi og
minni háttar ósigrum síðar, stöndum við með Læknanemann í
höndunum. Ekki nóg með það heldur erum við virkilega stolt af
loka útgáfu blaðsins. Í því má finna $ölda greina, af ýmsum toga,
og upp fyllir blaðið bæði skilyrði þess að vera fimm punkta vísinda-
tímarit og þess að vera ákaflega skemmtilegt (þó við segjum sjálf
frá). Útlit blaðsins sker sig frá síðustu útgáfum en við ákváðum að
leita til Elínar Eddu Þorsteinsdóttur við uppsetningu þess en hún
hefur ekki áður komið að Læknanemanum. Hún sýndi dyntum
okkar og sérþörfum einstaka þolinmæði og listrænt auga hennar
glæddi blaðið svo sannarlega miklu lífi. Á hún mikið hrós skilið
fyrir bæði.
Við viljum þakka öllum þeim sem komu að útgáfu blaðsins fyrir
störf sín: greinahöfundum, ritrýnum, faglegri ritstjórn og í raun
hverjum þeim sem hlúði með einum eða öðrum hætti að þessu
barni okkar og gerði því kleift að komast út í heiminn. Það þarf heilt
þorp eins og máltakið segir.
Við vonum innilega að þú njótir þessa Læknanema ágæti lesandi,
hvort sem þú lúslest hann eða skimar snöggt í gegn til að reyna að
koma auga á mynd af sjálfum þér.
Já og blóð, sviti, tár – gleymdum næstum að nefna það, nóg af
svoleiðis alveg hreint.
Urður Helga, Jón Tómas, Oddný, Jóhann, Thelma, Sigríður, Hlíf, Guðrún
Ávarp ritstjórnar3