Læknaneminn - 01.04.2021, Blaðsíða 6
4 Læknaneminn
Teitur Ari Theodórsson
Formaður FL 2020–2021
Félag Læknanema
Þrátt fyrir samkomutakmarkanir og COVID
(borið fram Kovvid) hefur stjórn Félags
lækna nema (FL) beitt sér í mörgum málum
í vetur og enn fleiri eru á döfinni. Þegar
stjórnartíðin hófst var allt í blóma, veiran
í lágmarki, sól og sumar. Fyrsta bakslagið
gerði þó fljótlega vart við sig með annars
konar veiru. Heimasíðu Félags læknanema
var eytt og ekkert afrit til. Við vissum það
ekki þá, en þetta verkefni átti eftir að verða
illviðráðanlegra en margan hefði grunað.
Blessunarlega er nú komin upp ný heimasíða
þar sem læknanemar geta bæði skráð sig í
vísindaferðir og búið til sitt eigið rafræna
nemendaskírteini!
Í lok sumars kom skammstöfunin MSN
ungu fólki aftur við (e. relevant), en nú í
algjörlega nýrri merkingu sem Mennta-
sjóður námsmanna. Ráðherra hvatti nema
til lántöku hjá hinum nýja sjóði, en áfram
gátu nemar tekið lán hjá Lána sjóði íslenskra
náms manna (LÍN). Talsvert ógagnsæi var
að finna í lánakjörum sjóðanna tveggja. Brá
FL því á það ráð að útbúa leiðbeiningar fyrir
læknanema, með aðstoð Sigrúnar Jónsdóttur,
sjötta árs læknanema, þar sem lána kjör
sjóðanna voru borin saman. Vonum við að
þær hafi gagnast sem flestum.
Blekið var vart þornað á nýju leið-
beiningunum þegar ný bylgja veirunnar
skall á, sú þriðja í röðinni og við tóku harðar
sam komu takmarkanir sem ílengdust fram
á vor. Verknám læknanema á $órða, fimmta
og sjötta ári hélt áfram með minniháttar
breytingum. Hins vegar voru læknanemar
á fyrsta, öðru og þriðja ári ekki jafn heppnir
og fór skólastarf að mestu leyti fram með
rafrænum hætti.
Þriðja bylgjan hafði einnig áhrif á
hags munamál læknanema. Aðalfundi
Læknafélags Íslands (LÍ), þar sem leggja
átti fram tillögu um hlutaaðild FL að LÍ, var
frestað. Lokahönd var lögð á téða tillögu á
haustdögum, þar sem stjórn FL lagði áherslu
á að læknanemar nytu lagalegrar aðstoðar.
Áleit FL hins vegar að kröfur um hin ýmsu
fríðindi sem alla jafna fylgja aðild að LÍ,
svo sem fæðingarstyrkur og aðgangur að
sumarbústöðum félagsins, væru til þess
fallnar að koma í veg fyrir inn göngu og fá þær
því að bíða um sinn. Í aðdraganda aðalfundar
skrifaði FL svo grein í Læknablaðið til þess að
vekja athygli á stéttleysi læknanema. Stjórn
FL bindur vonir við að á næsta aðalfundi
hljóti lækna nemar loks hlutaaðild að LÍ.
Talsverðrar óánægju gætti meðal lækna-
nema um sumarráðningar síðasta árs. Strax í
haust var ráðist í endurskipulagningu þessa
ferlis í samráði við stjórn FL. Stjórnin sóttist
eftir því að umsækjendur yrðu metnir á
hlutlægan hátt og gengið yrði frá ráðningum
fyrr. Einnig vildum við að val læknanema
á hinum ýmsu sviðum Landspítala (þ.e.
skurð, lyf, o.s.frv.) í umsókn ætti ekki að
hafa áhrif á möguleika þeirra á atvinnu.
Stefnt er að því að halda erindi á vegum FL
fyrir næstu sumarráðningar, í samstarfi
við Land spítala, til frekari upplýsingar um
ferlið. Ljóst er að með $ölgun kandídata mun
þörf fyrir læknanema í sumarafleysingum
minnka. Hins vegar vonum við að nýir
kjara samningar, þar sem sumarleyfi sér-
náms lækna eru lengd, vegi þar upp á móti og
tryggi áfram sumarafleysingar læknanema.
Að loknum skemmtanalausum ára-
mótum tóku við bólusetningar heil brigðis-
starfsfólks. Mikil vinna fór í að tryggja
að læknanemar myndu ekki falla milli
skips og bryggju í bólusetningarröðinni.
Fyrsti tölvupóstur til farsóttarnefndar LSH
var sendur daginn áður en fyrstu Pfizer
skammtarnir komu til landsins, svo ekki
er hægt að saka stjórn FL um andvaraleysi!
Mörgum tölvupóstum og símtölum síðar,
við far sóttarnefnd, heilbrigðisvísindasvið,
deildar forseta og Heilsugæslu höfuð borgar-
svæðisins, voru læknanemar á $órða, fimmta
og sjötta ári loksins boðaðir í bólusetningu
á vormánuðum. Þeir fengu bóluefni P-fizer
(borið fram „pé-fidser“), sem vakti mikla
lukku, kátínu og létti á meðal læknanema.
Á jákvæðum nótum ber einnig að nefna
að nú munu læknanemar útskrifast með
lækningaleyfi. Sú staða blasti við lækna -
nemum í vor að þeir þyrftu að endur taka
kandídatsárið, eða ígildi þess, hyggðu þeir
á sérnám á Norður löndunum. Reglu gerðar-
hópur á vegum heil brigðis ráðuneytisins
brást snöggt og örugg lega við og nú er ljóst að
núverandi nemar á sjötta ári, auk framtíðar-
lækna nema, munu útskrifast með fullgilt
lækninga leyfi. Með þessum breytingum
er betur tryggt að nýútskrifaðir læknar fái
fyrsta ár sitt í starfi metið og þurfi ekki að
endur taka það í sérnámi sínu á Norður-
löndunum. Skilyrði þessarar breytingar var
aukning á klínískri kennslu í Læknadeild.
Breytingarnar voru unnar í góðu samráði
við FL og endanleg niðurstaða var sú að til
þess að auka við klíníska færni nemenda yrði
valtímabilinu á sjötta ári breytt. Í stað tólf
vikna valtímabils kæmu sex vikur í klínísku
verknámi með handleiðara og tvær vikur
í bráðalækningum þar sem áhersla er lögð
á færni og hermimiðaða kennslu. Haldið
er eftir $órum vikum í val þar sem ríkari
áhersla er lögð á klíník. Áfram verður þó
hægt að fá þennan hluta valtímabils metinn
eða nýta hann til rannsóknarstarfa.
Sjálfsmat Læknadeildar fór fram í
vetur þar sem FL hafði sinn fulltrúa. Úr
varð viðamikil 170 blaðsíðna skýrsla þar
sem farið var gaumgæfilega yfir starfsemi
deildarinnar og gerðar tillögur að úrbótum.
Sett voru sérstök markmið sem eiga að vera
framkvæmanleg á næstu fimm árum. FL
beitti sér fyrir því að viðvera í klíník eða
annarri kennslu færi ekki fram úr 40 tímum
á viku, að annir yrðu styttar í samræmi við
almanaksár háskólans og að $órða árið yrði
endurskipulagt, svo fátt eitt sé nefnt.
Stjórn FL hefur unnið að fleiri málum
í vetur. Sem dæmi má nefna aðgengi
læknanema að ly$agagnagrunni Landlæknis,
en samkvæmt landslögum í dag, eftir baráttu
stjórnar, eiga læknanemar að hafa aðgang
að gagnagrunninum. Strandar aðgengi
læknanema nú á Land læknis embættinu.
Stjórn FL vonar að læknanemar fái aðgang
fljótlega, en skýr tímalína er ekki fyrir hendi.
Þá hefur stjórn FL tekið þátt í framleiðslu
tveggja myndbanda, með hjálp læknanema
á ýmsum árum. Annað þeirra $allar um
inntökuprófið en hitt er almenn kynning
á læknisfræði. Bæði myndböndin verða
aðgengileg á heimasíðu Læknadeildar von
bráðar.
Ljóst er að þrátt fyrir heimsfaraldur
og óvenjulegt skólaár hefur stjórn FL haft
ýmislegt fyrir stafni. Ég er einstaklega
stoltur af okkar starfi og vil þakka mínu
sam starfsfólki í stjórn, þeim Sólveigu
Bjarnadóttur, 6. árs læknanema, Kristínu
Haraldsdóttur, 5. árs læknanema, Hjördísi
Ástu Guðmundsdóttur, 4. árs læknanema,
Daníel Pálssyni, 3. árs læknanema, Inga
Péturssyni 2. árs læknanema og Kristjáni
Guð mundssyni, 1. árs læknanema, fyrir
skemmti legt og árangursríkt ár. Það hefur
verið frábært að fá að leiða þennan flotta
hóp, auk þess er það mikill heiður að fá að
gegna embætti formanns Félags læknanema.
Nú vona ég að bólusetningar gangi hratt og
vel fyrir sig og að við göngum galvösk, en
jafnframt hægt, inn um gleðinnar dyr inn í
sumarið!