Læknaneminn - 01.04.2021, Blaðsíða 10
Læknaneminn8
Karen Geirsdóttir
Formaður Hugrúnar 2020–2021
Fannar Bollason
Formaður Fulltrúaráðs 2020–2021
Hugrún er geðfræðslufélag háskólanema
sem var stofnað árið 2016 í þeim tilgangi
að fræða ungmenni um geðheilsu,
geðraskanir og þau úrræði sem standa til
boða í heilbrigðiskerfinu. Stærsta verkefni
Hugrúnar er að ferðast um landið og halda
fyrirlestra í framhaldsskólum um geðheilsu
og skyld málefni, endurgjaldslaust.
Í ár voru um 70 háskólanemar úr
Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík
og Háskólanum á Akureyri fræðarar fyrir
félagið. Starfsárið var fremur óhefðbundið
sökum COVID-19 og þurfti stjórn félagsins
að bregðast við þessum breytingum og
takmörkunum. Fyrirlestrar voru að stórum
hluta haldnir á Zoom, í sumum tilfellum
þurfti að fresta fyrirlestrum og í enn færri
tilfellum þurfti að færa þá fram á næsta
skólaár. Ljóst er að á næsta skólaári verða
mun fleiri fyrirlestrar haldnir en áður til
þess að vinna upp þá sem var frestað þar
sem við viljum ekki að nemendur missi af
þessari fræðslu.
Hugrún stendur einnig fyrir vefsíðunni
www.gedfraedsla.is en þar er að finna
upplýsingar um ýmsar geðraskanir,
leiðbeiningar fyrir foreldra um hvernig
ræða megi geðheilsu heima fyrir og lista yfir
úrræði. Vefsíðan var uppfærð í fyrra og er
nú aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.
Markmiðið er svo að $ölga tungumálunum
á næstu árum. Vefsíðan hefur fengið mikið
lof og það hefur orðið töluverð $ölgun
heimsókna eftir þessa uppfærslu.
Starfsárið byrjaði á árlegu
$áröflunarbingói sumarið 2020 og gekk það
vonum framar. Sökum COVID-19 var bingóið
eini viðburður þessa árs sem fór ekki fram
á netinu. Vegna $öldatakmarkana voru
fræðslu dagarnir okkar haldnir með raf-
rænum hætti. Fræðsludagarnir voru þrír en
þeir eru haldnir til þess að þjálfa fræðarana
okkar og kenna þeim að flytja fyrirlestur
félagsins. Fræðsludagarnir gengu vel þrátt
fyrir aðstæður og yfir 50 fræðarar fengu
þjálfun. Í október hófum við samstarf með
Hugrún
Fulltrúa-
ráð
Ungum athafnakonum (UAK) og héldum staf-
ræna viðburðinn „Ofurkonan þú “. Hann gekk
vonum framar og voru yfir 1000 manns sem
fylgdust með. Í nóvember unnum við með
útgáfunni Flóru og fengum til liðs við okkur
penna sem skrifuðu meðal annars greinar
tengdar geðheilbrigði. Þetta var 9. út gáfa
Flóru og kom út 18. nóvember 2020. Hug rún
átti einnig þátt í skipulagningu Alþjóð lega
geð heilbrigðisdagsins, við vorum hluti af
Geð heilbrigðisþinginu og margt fleira.
Mikilvægi Hugrúnar og þess að ung-
menni fái fræðslu um geðheilsu er gífur legt,
ekki síst núna þar sem andleg heilsa hefur
farið hrakandi sökum heimsfaraldursins.
Þökk sé stjórninni og fræðurum Hugrúnar
höfum við náð að halda dampi og halda
$ölda fræðslufyrirlestra þetta skólaárið. Ég
hlakka til að fylgjast með félaginu þróast og
halda áfram að stuðla að bættri geðheilsu
ungmenna á Íslandi.
Síðasta skólaár hefur verið kre$andi. Það
hefur einkennst af kórónuveirufaraldrinum
sem geisar enn. Faraldurinn hefur haft
víð tæk áhrif á skólastarf og félagslíf lækna-
nema. Kennsla hefur að mestu farið fram í
gegnum $arfundabúnað og sam komu tak-
markanir hafa verið ríkjandi í sam félaginu.
Það gefur því auga leið að störf Full trúa ráðs
hafa verið með breyttum hætti í ár.
Skólaárið hófst nokkuð eðlilega. Haldin
var nýnemaferð í félagsheimilinu Lyng-
brekku í Borgarfirði í ágúst þar sem hressir
nýnemar ásamt Fulltrúaráði og stjórn
Félags læknanema hittust og skemmtu sér
saman fram á nótt. Boðhlaup, stólaleikur
og leikþættir voru öll á sínum stað og
heppnaðist ferðin vel.
Rétt eftir nýnemaferðina skall þriðja
bylgja faraldursins á. Þá tóku við miklar
sam komutakmarkanir sem héldust út
önnina. Þeir viðburðir sem nefndin hafði
undirbúið féllu því niður. Ekkert varð af
Spiritus vígslu og Októberfest, en nefndin
dó þó ekki ráðalaus og hafa ýmsir nýir við-
burðir litið dagsins ljós. Vísindaferðum í
fyrirtæki var breytt í $arvísindaferðir og
haldin voru pub quiz í gegnum $ar funda-
búnað og heppnuðust þessir viðburðir
vel. Félagslíf læknanema hefur því verið
með óhefðbundnum hætti síðasta árið en
nýir viðburðir hafa heppnast vel og hefur
þátttakan verið góð þrátt fyrir að þeir hafi
farið fram á rafrænu formi.
Á vorönn var létt á samkomu tak mörk-
unum og tókst þá loks að halda hefð bundnar
vísindaferðir. Einnig var haldið badmin ton-
mót í Njarðvík sem var skemmti leg nýjung
í félagslífinu. Undir lok annarinnar voru
samkomutakmarkanir aftur hertar og varð
því ekkert af fótboltamóti læknanema sem
verður að bíða betri tíma.
Árshátíð sem áætlað var að halda síðasta
sumar féll niður vegna faraldursins. Árs-
hátíðar nefnd sem skipuð er meðlimum
Fulltrúa ráðs og stjórn FL vinnur nú hörðum
höndum að skipulagningu næstu árshátíðar
sem haldin verður í sumar. Einnig verður
úti lega FL haldin í sumar, sem verður
spennandi nýjung.
Þrátt fyrir að félagslífið hafi verið óhefð-
bundið í ár hefur verið blásið til nokkurra
nýjunga sem hafa heppnast vel. Búast má
við að þessar nýjungar verði endurteknar
á komandi árum sem viðbót við þá hefð-
bundnu viðburði sem hafa verið fastir liðir
í gegnum tíðina. Það má því reikna með að
félagslíf læknanema verði enn skemmtilegra
og $ölbreyttara í framtíðinni.
Að lokum vil ég þakka nefndinni fyrir
frábært samstarf undanfarið ár. Nefndina
hafa skipað: Anna Sigríður Jóhannsdóttir
(fyrsta ári), Sigurður Sölvi Sigurðarson
(fyrsta ári), Hafþór Sigurðarson (öðru ári),
Herdís Eva Hermannsdóttir (öðru ári),
Aðal steinn Dalmann Gylfason (þriðja
ári), Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir ($órða
ári), Jón Gunnar Kristjónsson ($órða ári),
Thelma Kristinsdóttir (fimmta ári) og Sigrún
Jónsdóttir (sjötta ári). Einnig vil ég þakka
stjórninni fyrir gott samstarf bæði innan
árshátíðarnefndar og almennt.
Munið að njóta!