Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 11
Annálar9
Þórbergur Atli Þórsson
Formaður Bjargráðs 2020–2021
Bjargráður
Áttunda starfsár Bjargráðs hófst líkt
og síðustu þrjú ár með Bjargráðsviku.
COVID-19 setti sinn svip á vikuna en í
sam starfi við Læknadeild náðum við að
skipuleggja kennslu í takt við sóttvarnar-
reglur. Nýnemar í Læknadeild fá með
Bjargráðsvikunni ekki aðeins nasasjón af
bráðalækningum og skyndihjálp, heldur
einnig undirbúning fyrir það mikilvæga
hlutverk að fræða menntskælinga landsins.
Vikan hófst á skyndihjálparnámskeiði frá
Rauða krossi Íslands og fengu nýnemar
skírteini með staðfestingu á þátt töku að
því loknu. Seinna í vikunni komu svo þrír
gestafyrirlesarar; Jóhann Eyvindsson
fulltrúi lögreglunnar, Hjalti Már Björns-
son bráðalæknir og Þórir Bergs son
sérnáms læknir, sem var með stórslysa-
kennslu. Seinna í vikunni lærðu nýnemar
Bjargráðsfyrirlesturinn sem þau kynna
í mennta skólum, fengu tilfellakennslu
í skyndihjálp og að lokum kynningu frá
Neyðarlínunni í Skógarhlíð.
Vegna veirunnar var því miður ekki hægt
að heimsækja eins marga skóla og tíðkast
hefur síðustu ár. Kennsluskrá í lífsleikni
breyttist í mörgum framhaldsskólum vegna
aðstæðna og því var erfiðara að koma fyrir
gestum líkt og fyrirlesurum okkar. Nýnema-
fulltrúar í Bjargráði hugsuðu vægast sagt
í lausnum en ekki vandamálum og leystu
þennan vanda með prýði. Á þessu skólaári
hélt Bjargráður 47 fyrirlestra í 8 skólum,
25 af þeim voru kenndir á staðnum en 22 í
gegnum $arskiptabúnað.
Til stóð að Bjargráður tæki þátt í mörgum
spennandi verkefnum á þessu skólaári, en
því miður gengu þau plön ekki eftir vegna
aðstæðna. Síðustu ár hefur Bjargráður fengið
það skemmtilega hlutverk að skipuleggja
Bjarg ráðs vísindaferð og þá jafnan farið í
heimsókn til Landhelgisgæslunnar. Einnig
stóð til að halda stórslysaæfingu í samstarfi
við Kennslu- og fræðslumálanefnd. Þurfti
auk þess að fella niður lokahófið, en tíðkast
hefur fyrri ár að tileinka það fyrirlesurum
fyrsta árs. Við í Bjargráði hlökkum gríðar-
lega til að halda þessa viðburði á komandi
skólaári.
Snemma á skólaárinu var ákveðið að
tímabært væri að uppfæra Bjargráðs-
fyrirlesturinn sem fluttur er í framhalds -
skólum landsins. Við vorum svo heppin að
fá handleiðslu Hjalta Más Björns sonar við
verkið og þökkum við honum kær lega fyrir
aðstoðina. Nýi fyrirlesturinn verður tekinn
til notkunar á næsta skólaári.
Nýverið fékk svo Bjargráður boð um að
taka þátt í hinu spennandi verkefni sem
Háskólalestin er, en Háskóli Íslands heldur
utan um það verkefni. Áætlað er að Lestin
ferðist á $óra vel valda staði í lok maí. Við
vonum eindregið að Bjargráður nái að taka
þátt í því verkefni.
Okkur þykir miður að mörg verkefni
Bjargráðs yfir skólaárið hafi ekki orðið
að veruleika, en horfum þrátt fyrir það
bjartsýn til næsta skólaárs í von um betri
tíð. Bjargráður þakkar fyrirlesurum á
fyrsta ári fyrir eljusemi og seiglu sem þeir
hafa sýnt í starfi á þessum „fordæmalausu
tímum“.
Jón Erlingur Stefánsson
Formaður KF 2020–2021
Kennslu- og
fræðslu mála-
nefnd
Kennslu- og fræðslumálanefndarstörf
hafa orðið fyrir nokkrum skakkaföllum í
ástandinu sem herjað hefur á læknanema
jafnt og landann undanfarið ár. Góðir og
gegnir viðburðir hafa orðið að víkja vegna
sóttarótta. Þar ber helst að nefna vísindaferð
KF þar sem læknanemum er kennt af
reyndum hjartalækni að hlusta hjartahljóð
sem kunna að verða á vegi þeirra. Á meðan
nemarnir hlýða á hin ýmsu óhljóð teyga
þeir af ölkrúsum sem þar eru alla jafna
í boði. Það er skilningur undirritaðs að
slík þjálfun gagnist læknanemum vel í
starfi þar sem þeir þurfa gjarnan að beita
tveimur skilningarvitum á sama tíma.
Annar viðburður sem lognast hefur út af
í sóttinni er sérnámsfundur læknanema.
Þar koma ungir sérfræðilæknar sem enn
eru sjáanlega veðurbarðir af siglingu sinni
heim frá landinu helga (þar sem þeir kusu
að afla sérfræðiréttinda sinna ) og segja
læknanemum kosti og lesti á vali sínu.
Þessir viðburðir, ásamt öðrum, munu snúa
aftur á næsta starfsári.
Að ógleymdu skal nefna hryggjarstykki
nefndarinnar sem er kennsla læknanema
efri ára fyrir þá yngri. Þar hafa
kúrsakynningar fært sig yfir í $arform
með fundum eða deilingu skjala sem
ganga á milli ára og veita yngri nemum
stuðning við námstækni sína. Við erum
stolt að segja frá því að í janúar, á milli
sóttaralda, tókst nemum 4. árs að halda
líkamsskoðunarkennslu fyrir 2. árið með
góðri lukku. Síðast en ekki síst ber að nefna
stórslysaæfingu læknanema sem haldin
er annað hvert ár. Þar æfa nemar viðbrögð
við stórslysi ef það skyldi bera að garði.
Alla jafna hefur rútuslys verið sett á svið
en stefnt er að því að gera nýja sviðsmynd
í næstu æfingu sem verður haldin í
september.
Þó að sóttin hafi skapað erfiðleika
hefur orðið nokkur ávinningur. Það er
gömul tugga læknanema að fá fyrirlestra
tekna upp svo $ölga megi tækifærum til
nýtingar þeirra. Nemar sem staðið hafa í
barneignum myndu uppskera hvað mest af
slíkri þjónustubót. Kennarar grunnnámsins
hafa margir tekið vel í þetta en það vantar
undirtektir hjá klínísku árunum. Nú hefur
grettistaki verið lyft í kennslumálum og
flestir kennarar ve$a $arfundarforritum
um fingur sér líkt og Bretlandsdrottning
sem um þessar mundir tekur á móti
erindrekum Fílabeinsstrandar og Lettlands
í gegnum $arfund. Það má að líkum leiða að
prófessorar Læknadeildar þýðist bónir nema
um $arkennslu og upptöku fyrirlestra sinna
í framtíðinni.