Læknaneminn - 01.04.2021, Side 17
15 Brot í neðri enda sveifar hjá fullorðnum
Mynd 3: Mynd tekin í lok aðgerðar með
gegnumlýsingartæki Mynd 4: Mismunandi gerðir úlnliðsbrota
hand leggs í öxulstefnu (axial load) en öln
(ulna) aðeins um 20%.1 Liðböndin sem
tengjast neðri enda sveifar eru oftast heil
eftir úlnliðsbrot við lágorkuáverka sem
auðveldar réttingu brota. Flest úlnliðsbrot
verða við fall á útrétta hönd með úlnliðinn í
40-90° réttistöðu. Hjá yngra fólki verða brot
gjarnan við háorkuáverka en hjá eldra fólki
frekar við fall úr standandi stöðu.2 Bein-
þynning er þar oft undirliggjandi þáttur.
Faraldsfræði
Úlnliðsbrot eru meðal algengustu brota í efri
útlimum og um það bil 17% allra brota. Stór
hluti þeirra verður hjá öldruðum. Konur eru
þar í meirihluta en eftir tíðahvörf geta þær
tapað stórum hluta beinmassans á örfáum
árum vegna minnkunar á kvenhormóninu
estró gen. Tíðni úlnliðsbrota hækkar með
aldri bæði hjá konum og körlum. Samkvæmt
íslenskri rannsókn frá árinu 2004 var
meðal aldur kvenna með úlnliðsbrot 64 ára
(staðalfrávik = 19) samanborið við 50 ára
(staðalfrávik = 20) hjá körlum.3 Tíðni úln-
liðsbrota á Íslandi er hærri um vetur miðað
við aðrar árstíðir en þá fara hálku slysin að
verða algengari. Árið 2004 urðu 18% úln-
liðsbrota í kjölfar hálkuslysa.3
Gerðir brota
Margar flokkanir eru til fyrir úlnliðsbrot
og eru þær misflóknar. Eftirfarandi flokkun
er algeng í daglegu tali en hefur ekki mikla
þýðingu hvað varðar val á meðferð (mynd 4).
Colles brot eru algengasta gerð úln liðs-
brota eða allt að 90%. Þau eiga sér stað við
fall á útrétta hönd með úlnlið í réttistöðu.
Slík brot valda tilfærslu aftur á við (dorsal) á
neðri enda sveifar með eða án brots í nibbu
ölnarbeins (processus styloideus ulna).
Smith brot eiga sér stað við fall á úlnlið
í beygðri stöðu (flexion) eða beint högg á
úln liðinn. Öfugt við Colles brot valda þau
lófalægri eða fram á við (volar) tilfærslu á
neðri enda sveifar.
Barton brot eru frábrugðin Colles og Smith
brotum þar sem þau ganga inn í liðflötinn
milli sveifar og úlnliðsbeina (radiocarpal
liðinn). Tvær tegundir eru af Barton
brotum, ýmist með tilfærslu brotaflaska
aftur (dorsal) eða fram (volar) á við. Tilfærsla
aftur á við (dorsal Barton) er algengari. Þá
brotnar afturhluti liðflatar frá og tilfærsla
er svipuð og við Colles brot. Þegar framhluti
liðflatar brotnar frá (volar Barton) þá líkist
það Smith broti. Einnig eru til fleiri flóknari
brotagerðir, má þar nefna Chauffers og Die-
Punch brot.4
Mat á áverka
Saga
Áverkasaga er mikilvæg en miklu máli
skiptir hvort um háorku- eða lágorku-
áverka er að ræða. Einnig er gott að vita af
undirliggjandi sjúkdómum eins og mögu-
legum taugaklemmum, til dæmis carpal
tunnel heilkenni, eða útæða sjúkdómi. Fyrri
áverkar og aðgerðir á brotasvæði skipta
einnig máli.5
Skoðun
Við skoðun er leitað að aflögun á hand legg.
Þar er svokölluð gaffalskekkja (dinner-fork)
klassísk við Colles brot.
Nauðsynlegt er að meta blóðflæði, virkni
sina og taugastarfsemi $arlægt eða neðan
við áverka (meta distal status). Það er gert
með því að skoða háræðafyllingu í fingrum,
hreyfigetu og skyn með tilliti til ítaugunar-
svæða ölnar-, sveifar- og miðtauga (nervus
ulnaris, radialis og medianus). Algengast er að
miðtaugin verði fyrir áverka eða klemmist í
bólgu/blæðingu (acute carpal tunnel syndrome).
Slíkt getur krafist aðgerðar fljótt með losun
á tauginni.
Meta þarf umfang bólgu og athuga hvort
um opið brot sé að ræða. Ef skoðun er gerð
Dorsal
Dorsal
Colles brot
Barton brot
með tilfærslu
brotaflaska
fram á við
Smith (öfugt Colles) brot
Barton brot
með tilfærslu
brotaflaska
aftur á við
Dorsal
Dorsal