Læknaneminn - 01.04.2021, Side 34
32 Læknaneminn
í lungum við skurðaðgerðir, helstu fylgi-
kvilla frá lungum og áhættuþætti þeirra
og hvernig er best að meta áhættu í hverju
tilfelli fyrir sig.
Gagnasöfnun
Við skrif þessarar greinar var notuð leitarvél
Pubmed auk klínískra leiðbeininga frá
American College of Physicians. Leitarorð voru
meðal annars: „postoperative“, „pulmonary“,
„complications“, „preoperative“ og „risk factors“.
Lífeðlisfræði lungna í kringum skurðaðgerðir
Um leið og sjúklingur er svæfður fyrir
skurð aðgerð verða breytingar á lungna-
starf semi. Það verða breytingar á öndunar-
hvöt (respiratory drive) og vöðva starfsemi og
lungna rúmmál (lung volume) minnkar. Það
sem helst veldur þessum breytingum eru
önd unar bælandi áhrif svæfingarly$a og
hvort já kvæðri þrýstingsöndun í út öndun
(positive end-expiratory pressure, PEEP) er beitt
við svæfingu.5 Þeir vöðvar sem verða helst
fyrir breytingum eru þind og kviðvöðvar.
Rann sóknum ber ekki saman hve lengi
öndunar færin eru að ná sér aftur í sama
horf eftir að gerð en það er talið vera allt að
sex vikur.6, 7
Minnkað lungnarúmmál er helsti
orsaka þáttur í þróun lungnafylgikvilla eftir
aðgerðir. Þar er truflun á starfsemi þindar
mikil vægust en verkir frá skurðsvæði og
van öndun í kjölfarið eru einnig áhrifaþættir.
Þannig valda aðgerðir á brjóstholi og efri
hluta kviðarhols herpumynd (restrictive
pattern) með lækkun á lungnarúmmáli
þannig að öndunarrýmd (vital capacity,
VC), starfræn loftleif (functional residual
capacity, FRC) og öndunarloft (tidal volume,
VT) lækka (mynd 1). Þetta á þátt í myndun
Auður Gunnarsdóttir
Fimmta árs læknanemi 2020–2021
Gunnar Guðmundsson
Sérfræðingur í lyflækningum og
lungnalækningum
lungnahruns en það gerist í kjölfar þess að
of lágur þrýstingur er í hluta lungna sem
veldur því að lungnablöðrur falla saman,
svo sem við grunna innöndun í svæfingu
eða vegna verkja í kjölfar aðgerðar. Einnig
eykst öndunartíðni við þessar aðstæður og
það verður ójafnvægi á loftun og blóðflæði
í lungnablöðrum (ventilation perfusion
mismatch). Það gerist vegna jákvæðs
útöndunarþrýstings (PEEP) sem beitt er við
öndunarvélameðferð í svæfingu. Þannig
verður loftun svipuð í öllum hlutum
lungnanna en blóðflæði er ójafnt. Þá getur of
mikill þrýstingur í öndunarvél valdið lokun
æða sem getur valdið hjástreymi (shunt).5
Svæfing letur einnig andvörpunar-
viðbragð (sigh reflex) sem er áhættuþáttur
fyrir lungnahruni. Til þess hluta lungna
þar sem lungnahrun hefur orðið flæðir blóð
óhindrað en engin loftun verður sem leiðir
til skertra loftskipta svæðisbundið og getur
það leitt til lækkunar á súrefnisgildum í
blóði ef lungnahrunið er nægilega stórt.5
Þá geta eftirstöðvar af svæfingarly$um
og morfínskyldum ly$um eftir aðgerð bælt
öndun. Lyfin minnka einnig hreinsun á
slími með því að hægja á reglubundnum
slætti bi'ára í öndunarvegum og valda
hömlun á hóstaviðbragði. Það, ásamt
minnkaðri slímhreinsun frá öndunar-
færum, eru þættir sem geta stuðlað að
sýkingum eftir aðgerðir.5, 7
Fylgikvillar
Eins og áður hefur komið fram er ekki til
nein nákvæm skilgreining á fylgikvillum
frá lungum eftir skurðaðgerðir. Almenna
skil greiningin er óeðlileg starfsemi
lungna sem kemur eftir skurð aðgerð og
veldur annaðhvort sjúkdóms ástandi eða
Inngangur
Fylgikvillar frá lungum eru algengir eftir
skurðaðgerðir og auka á sjúkdómsbyrði,
dánartíðni og lengja spítalainnlagnir. Talið
er að tíðni fylgikvilla frá lungum eftir
skurð aðgerðir sé á bilinu 2-40%.1 Ástæðurnar
fyrir þessu víða bili eru að sjúklingar eru
ólíkir, sem og skurðaðgerðirnar sem þeir
fara í. Einnig er ekki til nein nákvæm skil-
greining á fylgikvillum frá lungum eftir
skurð aðgerðir. Almenna skilgreiningin er
óeðlileg starfsemi lungna sem kemur eftir
skurð aðgerð og veldur annaðhvort sjúk-
dóms ástandi eða vanstarfsemi sem hefur
klínísk áhrif og breytir sjúkdóms gangi eftir
aðgerðina.2
Lungnafylgikvillar eftir skurðaðgerðir
eru þannig mismunandi algengir og alvar-
legir. Sumir geta ógnað lífi og hafa rann-
sóknir sýnt að dánartíðni getur verið allt
að 20% vegna sumra þeirra.1 Dæmi um
fylgi kvilla frá lungum eru lungna hrun
(atelectasis), lungnabólga (pneumonia) og
öndunar bilun í kjölfar aðgerðar (postoperative
respiratory failure). Lungnafylgi kvillar
eftir aðgerðir eru ekki síður algengir en
fylgi kvillar frá hjarta. Þegar fylgikvillar
frá lungum eru bornir saman við fylgi-
kvilla frá hjarta þá eru lungna fylgi kvillar
taldir tengjast sterkar langtíma dánar-
tíðni eftir aðgerðir, sérstaklega hjá eldri
einstaklingum.3
Hvert ár á heimsvísu fara yfir 300
milljónir manna í skurðaðgerðir.4 Vegna
algengi fylgikvilla er mikilvægt að gera
áhættu mat á sjúklingum með tilliti til
lungna starfsemi og reyna þannig að fyrir-
byggja fylgikvilla frá lungum í kjölfar skurð-
aðgerða. Í þessari grein verður farið yfir
lífeðlisfræðilegar breytingar sem geta orðið
Mat á lungna-
starfsemi fyrir
skurðaðgerðir
Mynd 1: Lungnarúmmál og lungnarýmdir
Skammstafanir:
Viðbótarloft (inspiratory reserve volume, IRV)
Öndunarloft (tidal volume, V
T
)
Varaloft (expiratory reserve volume, ERV)
Loftleif (residual volume, RV)
Innöndunarrýmd (inspiratory capacity, IC)
Starfræn loftleif (functional residual
capacity, FRC)
Öndunarrýmd (vital capacity, VC)
Heildarlungnarýmd (total lung capacity, TLC)