Læknaneminn - 01.04.2021, Side 76

Læknaneminn - 01.04.2021, Side 76
74 Læknaneminn Ástblær 2021 Ástblær er nýstofnað undirfélag Ástráðs og er undirtitill þess hinsegin félag læknanema. Félagið var stofnað á félagsfundi Ástráðs í nóvember 2020. Auglýst var eftir framboðum í stjórn Ástblæs og var fyrsta stjórn félagsins kynnt í framhaldi af því í febrúar 2021. Stjórn félagsins skipa þau Ívan Árni Róbertsson, Bríet Jónsdóttir, Snædís Inga Rúnarsdóttir ásamt undirritaðri, sem gegnir stöðu formanns. Fyrsta verkefni félagsins var að komast að því hver reynsla nemenda væri af Læknadeild þegar kæmi að hinsegin mál efnum. Við sendum því út könnun sem hægt var að svara nafn laust. Niðurstöður hennar sýndu svart á hvítu að það má ýmislegt bæta. Nemendur sögðu að það vantaði mikið upp á sýnileika hinsegin nemenda í Læknadeild og að oft liði hinsegin nemum eins og þeir væru einir á báti. Auk þess fannst nemendum vanta umræðu og fræðslu þegar kæmi að hin segin málefnum. Í heildina má segja að niðurstöður hafi undir strikað að mikil þörf væri á að stofna hinsegin félag og gátum við sett okkur skýrari markmið eftir að hafa heyrt frá nemendum. Sýn félagsins er að öll þau sem stunda nám í læknisfræði við Háskóla Íslands finni fyrir öryggi og líði vel innan deildar innar, burtséð frá kynhneigð, kynvitund eða kyn tjáningu. Auk þess viljum við stuðla að því að hinsegin nemar finni að þau séu velkomin innan Læknadeildar. Við viljum vera til staðar fyrir hinsegin læknanema og gefa þeim öruggt rými og stuðning til að koma sínum málefnum á framfæri og getum einnig verið trúnaðaraðili og milliliður komi upp erfiðar aðstæður innan Læknadeildar. Það að starfrækt sé hinsegin félag innan Læknadeildar eykur sýnileika nemenda sem skil greina sig sem hinsegin og varpar um leið ljósi á $ölbreytileika fólks innan Læknadeildar. Annað markmið félagsins er að auka þekkingu læknanema og þar með verðandi lækna á málefnum hinsegin fólks, þá sérstaklega innan heilbrigðiskerfisins. Það er mjög mikilvægt að verðandi læknar hafi innsýn í reynsluheim hinsegin fólks, þekki hugtök tengd hinseginleika og svo framvegis. Það eru allt of mörg dæmi þess að hinsegin fólk sem leitar heilbrigðisþjónustu þurfi að byrja á því að útskýra og í raun fræða heilbrigðisstarfsfólk um hugtök tengd sinni kynhneigð eða kynvitund. Þetta er hægt að koma í veg fyrir. Guðrún Anna Halldórsdóttir Formaður Ástblæs 2020–2021 Aukinni fræðslu fylgir að fyrirfram ákveðnum og oft yfirborðs- kenndum hugmyndum fólks fækkar, til dæmis um einstaklinga sem tilheyra ákveðnum hópi. Þannig er hægt að koma í veg fyrir fordóma. Þess vegna langar okkur að skipuleggja málstofur eða fræðsluerindi fyrir læknanema, til dæmis um reynslu hinsegin fólks af heilbrigðiskerfinu, andlega líðan hinsegin fólks og þar fram eftir götum Í byrjun árs fórum við í stjórn Ástblæs á fund framkvæmdastjóra Samtakanna ‘78 og forseta Q-félagsins og var mjög fróðlegt og skemmti legt að heyra hvað þau höfðu að segja. Því næst skipu- lögðum við þriggja vikna fræðslu um hinseginleikann á Instagram reikningi Ástráðs. Okkur langar á komandi mánuðum að auka samheldni meðal hinsegin nema með því að skipuleggja viðburð þar sem við getum komið saman, spjallað um reynslu okkar – eða bara hvað sem er til að kynnast betur! Ég er mjög spennt fyrir komandi tímum með þessu nýja félagi. Mig langar að þakka meðlimum í stjórn Ástráðs fyrir að fá þá frábæru hugmynd að stofna hinsegin félag og hrinda henni í framkvæmd – og stjórn Ástblæs fyrir ótrúlega skemmtilega fundi og vel unnin störf.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.