Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 105

Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 105
103 Valtímabil í Nýja Sjálandi Við vorum fimm saman búnar að ákveða að fara eitthvert á valtímabilinu. Okkur langaði að fara langt í burtu, þar sem við gætum skilið og talað tungumálið, þar sem væru ágætis innviðir með tilheyrandi gæðum í heilbrigðisþjónustu og þar sem sumarið er í janúar. 22.541 kílómetrum í burtu (17.534 ef þú ferð hina leiðina) er Christchurch í Nýja-Sjálandi, staður sem uppfyllti allt á listanum og var nánast eins langt í burtu og hægt var að komast. Þangað var ferðinni heitið. Í gegnum tengilið einnar úr hópnum fengum við sex vikna námsstöður á bráðamóttöku, blóðlækninga- og háls- nef- og eyrnadeild á spítalanum í Christchurch við University of Otago frá 6. janúar til 14. febrúar 2020. Þegar förinni er heitið hinum megin á hnöttinn er eins gott að nýta það og skoða aðra staði í „nágrenninu“. Flug var keypt til Fiji, hótel bókað og við ætluðum að hafa það náðugt á ströndinni í viku áður en herlegheitin hæfust. Tveim dögum fyrir brottför skall fellibylur á Fiji eyjar og flugum var aflýst. Í stuttu máli enduðum við í Hong Kong yfir áramótin og komumst ekki út af hótelinu á nýársdag vegna mótmæla. Eftir nokkra daga í Hong Kong flugum við yfir til Nýja-Sjálands. Við leigðum okkur hús í nágrenni við sjúkrahúsið þar sem við bjuggum saman í $órum herbergjum. Það tók um fimm mínútur að hjóla á milli, mest allan tímann í gegnum grænt gras og himinhá tré í Hagley Park, sem var kærkomin breyting frá janúar á Íslandi. Christchurch, eða Ōtautahi er stærsta borgin á suður eyju Nýja-Sjálands og telur tæplega 400.000 íbúa. Þar, eins og annars staðar í landinu, er rík menning Maori fólksins, sem byggði landið löngu áður en hvíti maðurinn kom og gerði það að sínu. Á síðustu áratugum hafa stjórnvöld lagt ríka áherslu á að halda uppi menningu þeirra og er það nokkuð áþreifanlegt, sem dæmi hafa flest staðarheiti bæði heiti á ensku og á Maori. Fólk heilsast gjarnan með „Kia Ora“, sem í bókstaflegri merkingu þýðir „hafðu líf“ eða „vertu heilbrigður“. Einnig var lögð áhersla á það á spítalanum að virða hefðir þeirra. Sem dæmi um það má nefna tilfelli þar sem einstaklingur lést úr hjartastoppi á trauma herberginu á bráðamóttökunni. Áður en viðkomandi var fluttur úr herberginu safnaðist öll $ölskyldan í kringum hann og kyrjaði sálm, athöfn sem var áhrifaríkt að verða vitni að. Tilgangurinn, að okkur skilst, var að hjálpa sálinni úr líkamanum og auðvelda ferðalagið yfir í andaheiminn. Mikil áföll hafa dunið yfir borgina á síðustu árum, röð jarðskjálfta varð á svæðinu á árunum 2010 til 2012, sá alvarlegasti í febrúar 2011, þar sem 185 manns létu lífið og þúsundir bygginga hrundu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á síðustu árum en enn eru heilu hverfin í eyði og auðar byggingar sem á eftir að rífa setja svip sinn á borgina. Árið 2019 var gerð hryðjuverkaárás á tvær moskur í borginni þar sem 51 manns létu lífið. Það er óhætt að segja að þessir atburðir hafi haft mikil áhrif á íbúana, borgina, sem og spítalann. Við vorum þrjár á bráðamóttöku, þar sem við unnum á dag- og kvöldvöktum undir leiðsögn þeirra lækna sem voru á vakt. Starfið var mjög vel skipulagt og flæðið í gegnum bráðamóttökuna með besta móti. Yfirleitt var búið að vinna fólk upp, senda það aftur heim, flytja það yfir í obs eða á viðeigandi deild innan sex klukkustunda frá komu. Það var magnað að fylgjast með því. Verkefnin voru $ölbreytt, mórallinn góður og allir boðnir og búnir að hjálpa. Við sáum 23 í hemóglóbín (tvímælt - hann var fölur), necrotiserandi fasciitis, hnoðuðum í ROSC, greindum brisbólgur, ökklabrot og svo framvegis. Hittum samt líka fullt af slappleika og byltum, teljum að það fylgi sama hvar maður er staddur í hinum velmegandi hluta heimsins. Gefinn var tími til að lesa fyrir utan vinnu og þurftum við því bara að mæta á þrjár vaktir í viku, sem okkur þótti mikill lúxus. Birna var á blóðlækningadeild spítalans. Dagarnir voru $ölbreyttir og mjög vel skipulagðir af yfirlækninum svo hægt væri að kynna sem mest af blóðlækningum á stuttum tíma. Suma daga var stofugangur og hefðbundin deildarvinna, aðra daga göngudeild með sérfræðilæknum, samráðsfundir með meinafræðingum og krabbameinslæknum, konsúlt og beinmergstökur með sérnámslæknum, úrlestur beinmergssýna eða blóðstroka auk vettvangsferða á rannsóknarstofurnar og í blóðbankann. Allir tóku manni opnum örmum og lögðu mikið á sig til að gera starfsnámið $ölbreytt og skemmtilegt. Stuttir stofugangar tíðkast greinilega ekki aðeins á skurðdeildum fyrir norðan miðbaug og á háls-, nef- og eyrnalækningadeild spítalans var þeim lokið stundvíslega klukkan 08:15 á morgnanna. Eftir stofugang var ýmist hægt að fylgjast með sérfræðingum á göngudeild, fylgja deildarlæknum á móttöku til að framkvæma smávægileg inngrip eða fara á skurðstofu. Nýsjálendingar eiga heimsmet í húðkrabbameinum og er því mikið framkvæmt þar af stórum aðgerðum vegna höfuð- og hálskrabbameina sem voru vægast sagt svakalegar. Einnig fékk heill hellingur af háls- og ne.irtlum að $úka, sinusar voru skolaðir og gert var við örsmá heyrnarbein svo eitthvað sé nefnt. Allir starfsmenn voru jákvæðir, hjálpsamir og áhugasamir um Ísland sem gerði upplifunina af deildinni enn betri. Tímanum utan spítalans var vel varið. Við lágum í sólbaði á veröndinni, fórum á sunnudagstónleika í garðinum og fórum mikið út að borða. Christchurch virðist hafa fullkomnað fyrirbærið mathöll því þær voru margar og hægt að fá hvern þann mat sem sem manni datt í hug og var hann nánast undantekningarlaust mjög góður. Við lærðum líka að skilja hjólin eftir a.m.k. tvö læst saman - annars er þeim rænt. Á Sumner Beach er tilvalinn staður til að læra að sörfa, sem var eitt af því fyrsta sem við gerðum stuttu eftir komu. Við fengum síðhærðan, sólbrúnan og aðeins hrukkóttan sörf kennara að nafni Adam til að kenna okkur að stíga ölduna ásamt slagorðunum „Wind, waves, rips and tides“. Það var viðurkennt að taka löng helgarfrí á spítalanum og við nýttum okkur það til að ferðast. Nýja-Sjáland skartar alveg mögnuðum $ölbreytileika af náttúru, frá $örðum sem líkjast því sem við þekkjum á Íslandi, til hitabeltisfrumskóga. Við keyrðum suður eyjuna endilanga niður að Milford Sound og Queenstown. Löbbuðum upp á Roy’s Peak og sáum tréð úti í Lake Wanaka (mæli með gúgli). Við fórum í sólarhringsferð á bát inn Doubtful Sound, sem er $örður aðeins aðgengilegur frá sjó, þar sem við fylgdumst með höfrungum synda meðfram bátnum, hoppuðum í sjóinn og skelltum okkur á kajak. Við heimsóttum Auckland og auðvitað Hobbiton, fórum á vínekrueyju þar sem við skutluðumst á milli vínekra í 30 gráðum og sól. Eftir sex vikur í verknámi skildust leiðir og Birna fór heim í USMLE undirbúning. Við hinar fórum í $ögurra daga göngu- og kajakferð um Abel Tasman þjóðgarðinn sem er með fallegri stöðum sem við höfum séð. Með ófáar blöðrur á fótunum, vel saltaðar af böðum í sjónum (og smá eigin svita) fórum við í nýtt sólarhrings ferðalag til Sri Lanka „á heimleiðinni“. Hér er pro tip að fara í lounge þegar bið eftir næsta flugi eru 9 tímar! Á Sri Lanka var efst á dagskrá að hitta sambýlismann og vinkonu að heiman, sörfa, hanga, liggja, fara í jóga og njóta lífsins. 12. mars lentum við á Keflavíkurflugvelli, sólarhring áður en fyrsti upplýsingafundur þríeykisins var haldinn og samkomutakmarkanir skullu á. Fyrirhugaðar eru breytingar á læknanáminu og tækifærum til að gera svipaða hluti fækkar mögulega aðeins. Þrátt fyrir það viljum við hvetja alla sem geta að nýta sér þau tækifæri sem eru í boði (IFMSA skipti t.d.) og gera eitthvað nýtt, víkka sjóndeildarhringinn og skoða heiminn. Við lofum, það er hverrar krónu og mínútu virði. Kia Ora!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.