Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 11

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 11
SIGURÐUR H. MAGNUSSON BORGÞÓR MAGNÚSSON Birkisáningar til landgræðslu og skógræktar INNGANGUR Fáar tegundir íslensku flórunnar skipa jafn háan sess í hugum almennings sem birkið. Eitt innlendra trjáa býr það yfir eiginleikum til skógarmyndunar og er því einkennistegund nátt- úrulegra skóga hér á landi. Við síðustu ísaldarlok tók birki að breiðast út um láglendi landsins og gegndi án efa mikilvægu hiutverki við sjálfgræðslu þess, jarðvegsmyndun og uppbyggingu samfélaga plantna og dýra. Rannsóknir benda til að út- breiðsla birkiskóga hér á landi hafi verið nokkuð breytileg á nútíma og tengd loftslagsbreytingum allt fram að landnámi er viðarhögg, bruni og bú- fjárbeit tóku að ráða meira um viðhald og endur- nýjun birkisins en ríkjandi loftslagsskilyrði. Mörgum munu kunnug örlög íslenskra birkiskóga á sögulegum tíma og verður ekki reynt að rekja þau hér. Ljóst er að útbreiðsla birkis í landinu nú er aðeins svipur hjá sjón fyrri tíðar og í litlu sam- ræmi við veðurfar. Eitt af þýðingarmeiri verkefnum gróðurvernd- ar hér á landi hlýtur að vera að vernda og við- halda í sem náttúrulegastri mynd þeim birki- skógaleifum sem enn finnast og stuðla að aukinni útbreiðslu birkisins út frá gömlu skógarkjörn- unum og á skóglausum svæðum. Til að ná því marki er m.a. nauðsynlegt að draga saman eldri reynslu og þekkingu á endurnýjunarferli birkis- ins og fylla í eyðurnar með rannsóknum. A und- anförnum árum hafa verið hafnar margvíslegar rannsóknir á íslenska birkinu, sem koma m.a. inn á erfðafræði þess, endurnýjun og landnám, og ástand og eðli skóganna (Andrés Arnalds 1989). Ætla má að sá þekkingargrunnur sem verið er að byggja eigi eftir að skila sér í árangursríku gróð- urverndarstarfi í framtíðinni. Sáning birkis er álitleg leið í landgræðslu og skógrækt. Birkið er innlend tegund, sem er aðlöguð j arðvegi og lofts- lagi hér á landi. Það er landnámsplanta, sem á gróðurlitlu og rýru landi getur breiðst út með sjálf- sáningu og myndað með tíð og tíma nokkuð stöð- ugt og fjölbreytt samfélag, þ.e. birkiskóginn. Fræöflun af birkinu er auðveld, sáning er einföld og kostnaður mjög lítill. Almenningur getur tek- ið virkan þátt í starfinu og tileinkað sér það. Söfnun birkifræs að haustinu ætti að verða fastur liður í starfi grunnskóla þar sem sameina mætti landgræðslustarf og umhverfisfræðslu. Árið 1987 hófust á Rannsóknastofnun land- búnaðarins rannsóknir sem miða að því að afla þekkingar á endurnýjun birkis af fræi (Sigurður H. Magnússon 1989, Sigurður H. Magnússon og Borgþór Magnússon 1989). Rannsóknirnar eru unnar í náinni samvinnu við Landgræðslu ríkisins sem hyggur á notkun birkisáninga í uppgræðslu- starfi. Birkisáningar í skógrækt og landgræðslu eru ekki nýjar af nálinni hér á landi, en þær má rekja aftur til starfa Kofoed-Hansens skógrækt- arstjóra á þriðja áratug aldarinnar. Sáningar hans og annarra báru víða ágætan árangur. Skógar- lundir þeir sem upp af þeim uxu eru lifandi dæmi um árangursríkt starf og jafnframt mikilvægir vegvísar í því gróðurverndarstarfi sem fram- undan er. í grein þessari verður fjallað um gamlar birki- sáningar, gerð stuttlega grein fyrir rannsóknum á ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.