Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Blaðsíða 14
tilbúinn áburð og dreifði með áburðardreifara.
Lítið bar á birkinu fyrstu árin en það þreifst í
skjóli grassins og kom smám saman í ljós er
grasið hopaði. Tvisvar hefur verið dreift örlitlu af
tilbúnum áburði á sáningarsvæðið eftir að sáð-
gresið hvarf, sem hafði góð áhrif á vöxt birkisins.
Horfir vel um framtíð þessarar birkisáningar.
RANNSÓKNIR Á LANDNÁMI BIRKIS
I rannsóknum þeim, sem hér verður drepið á,
eru könnuð fyrstu stig í landnámsferli birkis,
bæði við náttúrulegar aðstæður og með tilraun-
um, þar sem umhverfinu er breytt að hluta (Sig-
urður H. Magnússon 1989). Rannsóknirnar hafa
farið fram á Rangárvöllum og við Bæjarstaða-
skóg í þjóðgarðinum í Skaftafelli. Beinast þær
einkum að áhrifum svarðar og jarðvegs á nýlið-
un. Gerðar eru tilraunir með sáningu í mismun-
andi svörð á ólíkum tímum og er m.a. fylgst með
spírun, vexti og afföllum kímplantna og reynt að
skýra, hverjar eru helstu orsakir affalla. Tilraun-
irnar eru gerðar við skógarjaðra á fimm stöðum á
Rangárvöllum við mismunandi gróður- og jarð-
vegsskilyrði. Þær eru á mel og hrauni sem eru
hálfgróin, og í þursaskeggsmóa, grámosaþembu
og mýrarjaðri sem eru algróin. í tilraununum eru
reyndar sex meðferðir með fimm endurtekning-
um. Fyrirkomulag tilraunanna er sýnt á 1. mynd.
Sáð var í reitina í lok september 1987 og um
miðjan maí 1988.
Sumarið 1988 var fylgst með spírun í tilrauna-
reitunum á þriggja vikna fresti, frá miðjum júní
og fram í september. Kímplöntur voru merktar
með lituðum hringjum og var notaður einn litur
fyrir hvern athugunartíma svo hægt væri að fylgj-
ast með afföllum plantna sem spírað höfðu á mis-
munandi tímum. Þar sem svörður hafði ekki ver-
ið fjarlægður, var set (nærvist) hverrar kímplöntu
flokkað og svarðarþykkt mæld. Haustið 1988 var
Meðferðir
1 Óreytt
Control
2 Svörður reyttur
Sward removed
3 Sáð haustið 1987
Seeded fall 1987
4 Svörður reyttur, sáðhaustið 1987
Sward removed, seededfall 1987
5 Sáð vorið 1988
Seeded spring 1988
6 Svörður reyttur, sáð vorið 1988
Sward removed, seeded spring 1988
Birkiskógur Tilraunasvæði
Birch forest Experimental area
1. mynd. Yfirlityfirstaðsetningu tilraunasvœða og tilraunameðferðir. 1. meðferð er samanburðarreitursem hvorki er
reyttur né sáð í. Engu fræi er sáð i 2. meðferð, og í 3. og 5. meðferð er svörður ekki reyttur.
Fig. 1. Location of study area, and explanation of experimental setup.
12
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990