Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 15
stærð kímplantna mæld og talinn fjöldi blaða á
hverri plöntu. Sumarið 1989 var vitjað um reitina
aftur um miðjan júní og afföll könnuð og ný-
spírun skráð. Athuganir fóru einnig fram í júlí og
í lok ágúst og voru þær með svipuðu sniði og árið
áður, nema hvað nýjar kímplöntur voru ekki
merktar.
Rannsóknunum er ekki nærri lokið. Ætlunin
er að halda þeim áfram í nokkur ár. Helstu niður-
stöður sem fengist hafa eru í stuttu máli þessar:
1. Haustsáning gaf yfirleitt meiri heildarspírun á
næsta sumri en vorsáning (2. mynd).
2. Pau fræ sem sáð var að hausti spíruðu að lang-
mestu leyti snemma sumars og haustspírun
var nánast engin. Fræ sem sáð var að vori spír-
uðu mest um mitt sumar og spírun hélst lengur
fram á sumarið en ef sáð var að hausti (3.-4.
mynd).
3. Svörður hafði úrslitaáhrif á spírun. Á algrón-
um, þurrum svæðum spíraði nánast ekkert, ef
sáð var í svörð, sem var þykkari en einn cm.
Par sem rakt var, þ.e. í mýrarjaðrinum, var
spírun aftur á móti allgóð í óhreyfðum sverði
(2. mynd), en þar spíruðu fræin í mosalagi.
4. I reyttum reitum (án svarðar) var spírun yfir-
leitt góð, en þó varallmikill munur milli staða.
Minnst spíraði á melnum en mest í mýrinni.
5. Stærð plantnanna var mjög misjöfn eftirsvæð-
um. Minnstar voru plönturnar í grámosaþemb-
unni en stærstar í mýrinni.
6. Sterkt samband var á milli aldurs (spírunar-
tíma) og stærðar plantna fyrsta haustið. Pví
fyrr sem fræin spíruðu þeim mun stærri voru
plönturnar að hausti (5. ntynd).
7. Á flestum stöðum voru afföll talsverð fyrsta
veturinn, sem að miklum hluta stöfuðu af frost-
hreyfingum í yfirborði jarðvegs. í mýrinni
□ Óreytt
I
Sáð haustið 87 O Sáð vorið 88
Seededfall 87 Seeded spring 88
Reytt, sáð haustið 87
Sward removed,
seeded fall 87
Reytt, sáð vorið 88
Sward removed,
seeded spring 88
Melur Grámosaþemba Þursaskeggsmói Hraun Mýri
Gravel flat Racomitrium Kobresia heath Lava Mire
healh
Gróðurlendi -Vegetation type
2. mynd. Heildarspírun birkis á svæðunum fimm sumarið 1988. Lóðrétt strik tákna staðalskekkju meðaltals.
Fig. 2. Total emergence of birch seedlings in five vegetation-types during the summer of 1988. SE is indicated by
a vertical line.
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990
13