Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 25

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 25
Beitartilraunahólf á Auðkúluheiði. Mynd: Kristjana Guðmundsdóttir, 31-08-85. heiðagróðri. Hann var kominn á heiði. Vegar- kaflinn um skóglausa svæðið skar sig úr á allri leiðinni, og leiðin og dalurinn hlutu nafnið Öxnadalsheiði. Líkt var háttað um aðra fjallvegi þar yfir fjallgarðinn, á þeim öllum hefir verið skóglaust heiðarsvæði millí samfellds þéttvaxins birkiskógar til beggja enda. Ef til vill verður þessi mynd hvergi greinilegri en í Fnjóskadal. Fara má nærri um enn í dag, að Fnjóskadalurinn hefir verið alvaxinn skógi upp á heiðarbrún og ekki leikur vafi á að eins var hlíðin Eyjafjarðarmegin. En milli brúna var skóglaust land að mestu vaxið lyngi, víði og öðrum smá- runnum ef til vill með birkikræklum á víð og dreif, dæmigert norrænt heiðarland. Snemma varð fjölfarið yfir heiðina, ekki síst á þingstað Vaðlaþings, sem var uppi á brekku nær fjarðar- botninum, en þar fram undan voru vaðlarnir, sem héraðið og síðan heiðin drógu nöfn af. En Vaðl- arnir voru alfaraleið vestan yfir Eyjafjarðará, voru Leiruvegur síns tíma. Héldu þeir nafni sínu fram eftir öldum, enda þótt árframburðurinn hefði myndað nýja vaðla, og á gömlu Vöðlunum væru nú grasivaxnir hólmar milli kvísla, og raunar alltaf vöð á þeim stöðum. Nöfnin Vaðla- þing og Vaðlaheiði geta ef til vill verið vísbending um hver áhrif nafn alfaraleiðanna gat haft á nöfn umhverfisins. Önnur heiði, sem tengist Fnjóskadal, er Flat- eyjardalsheiði, sem raunar er beint framhald hans til norðurs, og er hluti þess dals, er á liðnum jarðöldum náði óslitinn til hafs út áður en Fnjóská þess tíma braut sér farveg vestur um Dalsmynni. Um Flateyjardalsheiði liggur leiðin út á Flateyjardal, sem áður var byggður, eins og einnig syðsti hluti heiðarinnar. Heiðin liggur það hærra en Fnjóskadalurinn að þar hefir ekki verið samfelldur skógur, heldur heiðarland, þegar land byggðist. Einnig er hún opin fyrir nöprum haf- vindunum og það tálmað skógarvexti. Eðlilegt var því, að hún hlyti heiðarnafnið, því að skörp hafa verið skilin í gróðurfari hennar og dalsins skógi vaxna til suðurs. Leiðin austur úr Fnjóskadal liggur um Ljósa- vatnsskarð. Aldrei hefir það borið heiðarnafn, enda áreiðanlega allt verið vaxið skógi, enda liggur það litlu hærra en dalbotnarnir. (Gamla Fnjóskárbrúin og Skjálfandafljótsbrúin hjá Goða- fossi næstum alveg í sömu hæð yfir sjávarmáli.) Þá skal stuttlega getið Sléttuheiðar á vestan- verðri Melrakkasléttu. Hún er hvorki fjallvegur né hálendi, heldur samfellt flatlendi utan frá sjó, og fer hækkandi inn til landsins uns hún rennur saman við hálendisheiðarnar án skýrra marka í landslagi. Heiðin er öll að kalla vaxin móagróðri, lyngi, fjalldrapa og öðrum smárunnum, er dæmi- gerð heiði á skandínavíska vísu. Melrakkaslétta og sennilega einnig Langanes eru einu verulegu landsvæðin hér á landi, sem ekki voru vaxin skógi frá fjöru til fjalls. Mun hið hráslagakennda ís- hafsloft með súld og þoku valda skógleysinu, en ennþá eru skógaleifar í Leirhafnarfjöllum, er liggja vestan Sléttuheiðarinnar, og greinilegur gróðurmunur vestan þeirra og austan. Vestan fjallanna og í þeim er venjulegur lágsveitagróð- ur, en öll Sléttan austan þeirra með svipmóti há- lendisgróðursins og hreinar fjallaplöntur finnast þar niður undir sjávarmál. Líkt er háttað með Skagaheiði milli Skagafjarðar og Húnaflóa. Ef til vill eru heiðanöfnin á þessurn útskögum svo forn að í þeim geymist minningin um það, að þeir voru skóglausir þegar land var numið, þótt allt láglendi hið innra væri viði vaxið. Ályktanir þess, sem hér er ritað eru þessar: Landnámsmenn fluttu með sér orðið heiði, sem merkti, eins og það gerir enn á Norðurlöndum, skóglaust, ófrjótt land, vaxið lyngi og öðrum smárunnum, eða mosa og fléttum. Hér á landi hittist þá slíkur gróður ekki á láglendi, heldur var allt þurrlendi að kalla vaxið þéttum birkiskógi. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.