Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 58

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 58
SIGURÐUR BLÖNDAL Flutningur á viði úr íslenskum birkiskógi LÝST EFTIR LJÓSMYNDUM Nýting viðar úr birkiskógum íslands var í meira en þúsund ár mikii athöfn í sveitum landsins. Viðurinn var bundinn í klyfjar, sem fluttar voru á klakk til bæjar. I sveitum, þar sem enn fundust skógarleifar, var þessi iðja stunduð allt fram á ár síðari heimsstyrjaldar. Á unglingsárum mínum á Hallormsstað var birki brennt til húshitunar - og reyndar ennþá á þeim stað, sem er nú orðið einsdæmi á Islandi. Þegar húsmæðraskóli tók þar til starfa 1930 var svo um samið við Skógrækt ríkisins, að hann mætti taka 800 hestburði eldsneytis á ári úr skóginum. Sú skipan hélst í áratug. Skógar- höggið og viðarflutningurinn var mest stundað á veturna. Viðurinn var venjulega fluttur á klakk úr skógi á 4 hestum. í nokkra vetur var ég látinn „fara á milli“, eins og það var kallað, þ.e. teyma burðarklárana úr skógi og heim. Mér þótti þetta heldur vont verk í ýmsum veðrum, einkum þegar farið var um þröngar skógargötur. Þá rákust klyfjarnar iðulega í tré og hrukku af klakknum. Átti ég oft í mesta basli við að koma þeim á klakk aftur. Síðar þótti mér mikils um vert að hafa átt þess kost að vinna þetta verk, sem var svo snar þáttur í búskaparháttum horfins þjóðfélags. Fyrir nokkrum árum, þegar við vorum að undirbúa þátttöku okkar í hinni norrænu skóg- minjasýningu, sem nefnd var „Hið græna gull Norðurlanda", þurfti að útvega Ijósmynd af viðarflutningi á hestum. Mér varð þá ljóst, að slíkar myndir voru ótrúlega fágætar. Ég mundi bara eftir að hafa séð eina einustu á prenti, tekna af Birni Björnssyni í Neskaupstað, sem birtist í 'w. ritgerð Gunnars Gunnarssonar skálds í Árbók Ferðafélags íslands 1944 um Fljótsdalshérað. Þessa mynd fékk ég að láni hjá Jóhönnu dóttur hans, sem geymir hið merka ljósmyndasafn föður síns. Þessi mynd er nú birt hér og vísast til texta með henni. Aðra mynd hafði Björn tekið af einum hesti undir viðarklyfjum í Eyvindará á Héraði. Þarna rann upp fyrir mér, að engin önnur mynd virtist vera til frá Hallormsstað eða af Hér- aði af þessari athöfn. Nú fór ég einnig að grennsl- ast fyrir um það, hvort slíkar myndir væru til frá öðrum stöðum. Ég leitaði auðvitað strax til Halldórs J. Jóns- sonar, safnvarðar ljósmyndasafns Þjóðminja- safnsins. í því safni er engin slík mynd til. Hins vegar tók Halldór út úr hillu hjá sér bók, sem út kom hjá Norðra fyrir nokkrum áratugum og nefnist „Gamlar myndir", sem skólabróðir minn og kunningi, Þorvaldur Ágústsson frá Ásum í Gnúpverjahreppi, hafði séð um myndir í. I þess- ari bók er mynd úr Þjórsárdal af fjórum hestum undir viðarklyfjum. Er það sú sem hér er birt. Ég fór nú til Þorvalds ogspurði hann um þetta. Hann kvað sveitunga sinn, Jón Jónsson frá Þjórsár- holti, hafa tekið myndina. Þorvaldi tókst að útvega mér kópíu af myndinni og raunar annarri af viðarflutningi á öðrum tíma í Þjórsárdal, sem mun hafa birst í „Heima er best“. Þessar fjórar myndir, sem ég hefi nú nefnt, eru þær einu, sem ég veit enn um, af viðarflutningi á klakk. Það er nú erindi mitt við ykkur, sem þessar línur lesið, að biðja ykkur um að láta mig vita, ef 56 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.