Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Side 65

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Side 65
Hve nákvæmar áætlanir eiga að vera fer eftir: 1. Óskum þeirra sem biðja um áætlunina. 2. Hverjirsjáumframkvæmdir. 3. Hve miklu má til kosta við gerð áætlunar. 4. Um hverskonar skógræktarframkvæmdir er að ræða. Ef utan að komandi aðili sér um gerð áætlunar verða þeir sem stýra eiga framkvæmdum að ákveða hve ýtarleg hún á að vera. Taka verður til- lit til þekkingar þeirra sem eiga að framkvæma verkið og einnig eðlis verkefnisins. T. d. væri rök- rétt að álykta að áætlun um útivistarskógrækt, sem stjórnað væri af ófaglærðum starfskrafti, þyrfti að vera mun nákvæmari en nytjaskóga- áætlun undir stjórn fagmanna. Fræðilega séð á aldrei að kosta meira til áætl- anagerðar en sem nemur hámarks-hagræðingar- áhrifum hennar. Við „hámarks-hagræðingu“ er mismunur sparnaðar, sem áætlun hefur í för með sér, og kostnaðar við gerð hennar, mestur. Vand- inn er bara sá að erfitt er að mæla hagræðinguna. Að sjálfsögðu verður áætlanagerðin að taka mið af fjárhag þeirra sem borga eiga áætlana- gerðina. Sumir vilja lítið til spara til að hafa áætl- anir sem nákvæmastar meðan aðrir verða að velta fyrir sér hverri krónu. Er ég hræddur um að skógræktarfélögin séu oft í síðastnefnda flokkin- um. Hverskonar skógrækt á að stunda skiptir líka verulegu máli. Þcss flóknari framkvæmdir þess ýtarlegri og dýrari verður áætlunin. T. d. er það Ijóst að skipulag útivistarskógar þarf að vera mun umfangsmeira en skipulag nytjaskógaræktar. Taka þarf tillit til mun fleiri þátta en vaxtar og þrifa trjátegunda. Til þess að gera skóginn sem mest aðlaðandi þarf að huga að fjölbreytni, útliti, aðkomu. Meta þarf ásókn á svæðið, stærð, stað- setningu og gerð áningarstaða, stíga, vega og bílastæða. Það þarf að svara mun fleiri spurn- ingum en af skógfræðilegum toga. Spurningarnar varða landslagsarkitektúr og skipulagsfræði. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það er nánast regla að áætlanir, hversu vel sem þær eru gerðar, standast ekki að fullnustu. í skógræktar- starfinu erum við að eiga við móður náttúru og vegir hennar eru oft og tíðum órannsakanlegir. Forsendur og aðferðir geta brugðist. Eftirleikur- inn, þ.e. endurskoðun áætlunar, er þess vegna engu síður mikilvægur. Við endurskoðun áætlunar er gerður saman- burður á framkvæmdum og gildandi áætlun. Mikilvægt er að slíkur samanburður fari fram. Aðeins með því móti er hægt að læra af þeirri reynslu sem fengist hefur. Til þess að saman- burður geti orðið verður að skrá framkvæmdir skilvíslega. Einnig verður að gera úttekt á stöðu framkvæmda - er árangurinn í samræmi við þær væntingar sem koma fram í áætlun? Þetta er hið svokallaða eftirlit áætlunar. Eftirlitið á að leiða í ljós hvort breytinga sé þörf á forsendum gildandi áætlunar. Þær breyt- ingar eru síðan tilefnið til endurskoðunar. Nú getur það farið svo að forsendur séu svo breyttar að ekki virðist mögulegt að ná settu markmiði. Þá verður að koma til ný markmiðs- setning. Eg vil undirstrika mikilvægi endurskoðunar. Að mínu mati er hún lykillinn að því að við lærum af þeirri reynslu sem er fengin í skógrækt á ís- landi. Eg hef nú fjallað vítt og breitt um ferli skipu- lagsvinnunnar og líklega að margra mati lítið snert jörðina í hjali mínu. Hugsanlega hafa vaknað spurningar hjá ykkur, áheyrendur góðir, og ég ætla nú að reyna að svara einni áleitinni spurningu: HVERNIG ER HÆGT AÐ STANDA AÐ SKIPULAGI SKÓGRÆKTAR HJÁ SKÓGRÆKTARFÉLÖGUNUM? A. m. k. tvö skógræktarfélaga skera sig úr hvað alla starfsemi varðar. Það eru Skógræktarfélag Reykjavíkur og Eyfirðinga. Þessi félög reka fyrirtæki hverra starfsemi spannar allan feril skógræktar. Þau hafa yfir að ráða starfsmönnum sem sjá um skipulagningu framkvæmda. Tengslin við sveitarfélögin eru mjög náin og starfsemi þeirra er að stórum hluta verkkaup sveitarfélaga. Allt skipulag framkvæmda hlýtur þar af leið- andi að mótast mikið af borgar- og bæjarskipu- lagi. Flest önnur skógræktarfélög eru hreinræktaðri áhugamannasamtök og starfsemi þeirra einnig. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 63
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.