Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 67

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 67
til, t.d. við skipulagningu útivistarsvæða, geta nýtt sér þessar upplýsingar. Nánari áætlanagerð er að mínu mati óþörf nema í sérstökum tilvikum. Sú staða getur komið upp að þeir aðilar, sem styrkja skógræktarfélögin fjárhagslega, biðji um ýtarlegri áætlanir, s.s. tímasettar kostnaðaráætlanir til að vega og meta hvort eða hve mikið eigi að styrkja skógræktar- framkvæmdirnar. SKRÁNING FRAMKVÆMDA Pað er afar mikilvægt að skrá ýtarlega niður framkvæmdir. Að mínu mati er það lykillinn að því að sú reynsla, sem skapast í skógræktarstarf- inu, nýtist að fullnustu. Mannaskipti í áhrifastöðum hjá félagasam- tökum áhugamanna eru oft tíð og hættan á að upplýsingar tapist er þar af leiðandi mikil. Það er því sérlega mikilvægt að skógræktarfélögin komi skikki á skráningu framkvæmda. Hér geta félögin nú þegar tekið til hendinni og leggja ætti ríka áherslu á að hefjast þegar handa. Nánari útfærsla gæti verið eitthvað á þessa leið: Skógræktarfélag íslands tekur að sér að útbúa staðlað spjaldskrárspjald og sendir síðan skóg- ræktarfélögunum spjöld í spjaldskrá og leiðbein- ingar um hvernig færa skuli spjaldskrána. Félagar geta síðan sjáli'ir gert einfalt riss af athafnasvæðum sínum og merkt inn á það stað- setningu þeirra reita sem skráðir eru í spjald- skrána. Pað gefur auga leið að slíkt bráðabirgðafyrir- komulag væri ómetanlegt hjálpartæki fyrir stjórnendur framkvæmda og ekki síst fyrir þann sem síðar gerði úttekt með hefðbundinni skrán- ingu skóglenda. ÚTTEKT Á FRAMKVÆMDUM - EFTIRLIT Skógrækt félaganna er ekki að sama skapi eftirlitsskyld eins og t. d. nytjaskógrækt á bújörð- um. Pað hlýtur samt að vera hverju félagi hollt og þarft að með virku eftirliti sé fylgst með árangri og gangi framkvæmda. I skógrækt er vanalegt að gera slíkar úttektir á 10-20 ára fresti. Að sama skapi og við gerð áætlana getur verið að aðilar, sem styrkja vilja félögin, geri kröfu um slíka úttekt til að átta sig á stöðu framkvæmda. í skráningu skóglenda eins og henni hefur verið lýst hér felst einnig úttekt á framkvæmdum. Meðal annars eru skráðar ýmsar upplýsingar um ástand gróðursetninga. Eins og er nær skráning- arkerfið aðeins til ungskógar - sem er skil- greindur sem allur skógur undir 2 m hæð. Ég hef nú stiklað á stóru varðandi skipulag skógræktar. Víða hefur verið gripið niður en margt enn ósagt. Því miður gafst mér ekki ráðrúm til að kynna mér af neinu viti hvernig skipulagsmálum er háttað hjá skógræktarfé- lögunum. Vel getur verið að hugmyndir mínar um stöðu þessara mála séu rangar og ef svo er vil ég biðja ykkur, góðir áheyrendur, að vera óhræddir við að gagnrýna og leiðrétta orð mín. Ég hef einnig viðrað hugmyndir mínar um hvernig væri hægt að standa að skipulagi skóg- ræktar hjá skógræktarfélögunum. Gaman verður að heyra ykkar álit á þeim og aðrar hugmyndir um áherslur í þessum ntálum. Ég þakka áheyrnina. Erindiflutt á aðalfundi Skógrœktarfélags íslands 1990. (r* Plöntustafir meö þremur breytanlegum hólka- stæröum fyrir 35, 40 og 67 gata bakka EinarJóhannesson Brekkubyggð 23 =3 Blönduósi *= Sími 24425 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.