Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 75

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Page 75
SVAVAR SIGMUNDSSON Örnefni og trjágróður Enginn vafi er á að landið hefur verið gróður- sælla og trjáríkara við upphaf landnáms en á okkar dögum áður en maðurinn og búféð fóru að ganga nærri viðkvæmu landinu. Margt er til vitnis um þetta. Eitt af því sem segir sína sögu um ástand landsins er örnefnin, nöfn staða, bæði í náttúr- unni og á bæjum og öðrum stöðum sem tengjast búsetu í landinu. Hér verður skyggnst yfir landið og sjónum beint að þeim örnefnum fornum og nýjum sem hafa að geyma orðliðina víðir, lauf, hrís og kjarr, og dreifing þeirra um landið sýnd á kortum. Eitt og annað hefur verið ritað um örnefni á ís- landi er tengjast gróðurfari og skógi. Helgi Hallgrímsson á Akureyri skrifaði grein- ina „Bæjarnöfn og útbreiðsla skóga fyrr á öldum“ í Ársrit Skógræktarfélags íslands árið 1970. Steindór Steindórsson frá Hlöðum hefur í bók sinni, „íslensk plöntunöfn" frá 1978 sérstakan kafla um örnefni sem hafa jurtaheiti að nafnlið. Þá skrifaði Pórarinn Þórarinsson á Eiðum um orðið holt, „Oft er í holti heyrandi nær,“ í Ársrit Skógræktarfélagsins 1982. f grein sinni, „Landgæði á íslandi fyrr og nú“ í ritinu Græðum ísland 1988, nefnir Andrés Amalds örnefni er minna á horfna skóga, s.s. „Brúarskóg á Efra-Jökuldal, Dynskóga austan til á Mýrdals- sandi, Timburvelli í Fnjóskadal og Vælugerði og fleiri nöfn er minna á sviðning skógi vaxins lands til akuryrkju." (18). Fleira mætti telja af greinum um þessi efni, en þetta látið nægja að sinni. Ég ætla ekki að dvelja hér sérstaklega við þau örnefni sem hafa skóg sem nafnlið eða nafnið Skóga. Yfirleitt er um að ræða birkiskóg. Fjöl- mörg eru þau örnefni hér á landi nú á tímum sem hafa birki eða björk að nafnlið, Birkihlíð, sem er algengasta nafnið með þessum lið, Birkiból, Birki- flöt og Birkilundur, Bjarkarland og Bjarkarlund- ur. Þó er ekkert slíkt nafn á íslandi nefnt í fornrit- um. Þau eru því síðari tíma smíð. Þeirra var ekki þörf að fornu, þar sem skóga-nöfnin áttu yfirleitt við birkiskógana. Bæjarnafnið Björk er til á fjór- um stöðum á landinu, í Flóa, Grímsnesi og á tveim bæjum í Eyjafirði. Ekki eru þó allir skógar birkiskógar. í nafninu Dynskógar í Vestur-Skaftafellssýslu, sem fyrir kemur í Landnámu, er talið að felist skógur af blæösp, skógur beinvaxinna trjáa, því að ekki geti dunið í birkiskógi. (Ingólfur Davíðsson, Náttúrufræðingurinn 4. hefti, 1979, 289-297. - Sigurður Björnsson á Kvískerjum, Dynskógar4, 1988, 271-272.) í grein sinni tók Helgi Hallgrímsson fyrir bæja- nöfnin Skógur, Skógar, nöfn með skógur sem fyrri eða síðari lið, bæi sem heita Mörk, Lundur eða hafa þann nafnlið, einnig þau sem innihalda tré, timbur, meiður eða næfuro.fl. Þarvoru einnig bæir kenndir við trjáheiti eins og áður sagði, björk og reyni, en hann gekk viljandi fram hjá nafnliðunum fura, greni, ösp, askur, víðir og ein- ir. Hann telur að fura og greni í bæjanöfnum eigi eingöngu við rekavið, enda séu þau aðeins við sjávarsíðuna, og sama eigi líklega við um ösp, sbr. Asparvík á Ströndum. Um ask, víði og eini segir hann að nöfn með þeim vitni aðeins um til- veru viðkomandi runna og geti verið óháð skógi eða birkikjarri. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.