Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Síða 100

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Síða 100
Vorið 1990, þann 27/3 var enn haldinn almenn- ur bændafundur að Heimalandi til að taka ákvarð- anir um upprekstur og framtíð afréttanna. Samráð voru um að engir utanaðkomandi aðilar yrðu á þessum fundi, t.d. enginn fulltrúi frá Landgræðslunni. Það virtist gefa góða raun og var sveitarstjórn veitt heimild til samninga við Landgræðsluna um upprekstrarrétt bænda. Sveit- arstjórn fjallaði um niðurstöðu bændafundarins 6/4. Guðjón Ólafsson oddviti og Baldur Björnsson á Fitjamýri komu síðan í Gunnarsholt 26/4 þar sem gengið var frá samkomulagi um að bændur í Vestur-Eyjafjallahreppi muni ekki reka búfé á afrétti hreppsins, a.m.k. næstu 10 ár. Þarmeð var loks búið að tryggja í raun friðun Þórsmerkur fyrir beit, 70 árum eftir að bændur í Fljótshlíð afsöluðu sér beitarréttinum þar til að vernda og efla skóginn. í samkomulagi Landgræðslunnar og Vestur- Eyfellinga er sérstaklega tekið fram að land- græðslan muni vinna að gróðurbótum á afréttum hreppsins eftir því sem fjárveitingar leyfa og jafn- framt beina sjálfboðaliðastarfi í landgræðslu inn á hið friðaða svæði að höfðu samráði við heima- menn. Þess er full þörf því mikil gróðureyðing hefur orðið þar í tímans rás. Eins var tekið fram að Landgræðslan myndi reyna eftir föngum að aðstoða bændur í hreppnum við að laga sig að þessum breytingum og hefur verið unnið að því með ýmsum hætti í samræmi við þarfir viðkom- andi bænda. Upprekstrar- og beitarmál eru einhver við- kvæmustu mál sem fjallað er um í mörgum sveit- arfélögum. í ljósi þess má telja að þau fimm ár sem liðu frá því markið var sett í ársbyrjun 1986 og þar til samningar við bændur voru undirritaðir vorið 1990 séu ekki óeðlilega langur tími. Leysa þarf margvísleg vandamál sem koma upp við slíka röskun. Ekki má heldur gleyma því að erfitt er að breyta aldagömlum hefðum. Að þessum áfanga náðum er mér efst í huga þakklæti til Vestur- Eyfellinga fyrir einstaklega ánægjuleg samskipti. Sérstaklega ber að þakka Guðjóni Ólafssyni, odd- vita í Syðstu-Mörk, fyrirgreiðslu hans. Þótt nokkuð bæri á milli, eins og gengur, voru málin ætíð rædd af hreinskilni og í bróðerni. HORFT TIL FRAMTÍÐAR Viðhorf til landnotkunar hafa breyst mikið á allra síðustu árum. í Þórsmörk skipuðust mál þannig að uppbygging gróðurs og notkun lands til útivistar var sett ofar beitarnytjum, en á þessu svæði fór þetta tvennt illa saman. Ýmis félaga- samtök hafa unnið að gróðurbótum í Þórsmörk, svo sem Ferðafélag íslands, Útivist, Farfuglar, ungliðadeild Rauða krossins o.fl. Ætlunin er að auka slíkt starf á öllu Þórsmerkursvæðinu. Ýmis ný sjónarmið blasa við augum þegar búið er að friða allt þetta stóra svæði fyrir beit. Brýnt er að fara að takast þar á við ýmis vandamál sem fallið hafa í skugga gróðurskemmda af völdum beitarinnar. Eitt þeirra er átroðningur ferðafólks sem sums staðar veldur orðið verulegum spjöll- um. Gróður hefur t.d. látið mikið á sjá í Húsadal á síðustu árum. Huga þarf að því að tryggja með einhverjum hætti varðveislu Þórsmerkursvæðisins til frambúð- ar. Því lengur sem því er skotið á frest þeim mun meiri verður vandinn og er þó ærinn fyrir. Að mín- um dómi væri farsælasta leiðin sú að gera allt þetta svæði, ásamt Emstrum, afrétti Hvolhrepp- inga, að þjóðgarði. Jafnframt væri hyggilegt að reisa góða þjónustumiðstöð utan aðalsvæðisins, t.d. á Stakksflötum, líkt oggert var í Skaftafelli. Raddir um stofnun þjóðgarðs hafa heyrst frá ' Fljótshlíðingum, eigendum hálfrar Þórsmerkur, og tillaga um það var samþykkt á Náttúruvernd- arþingi 1988. Samkvæmt núgildandi náttúru- verndarlögum verður þjóðgarðsland að vera ríkiseign. Eignarlönd Vestur-Eyfellinga innan friðunar- girðingarinnar munu ekki færa þeim neinn arð að óbreyttu ástandi á næstu árum. Lönd þeirra búa hins vegar yfir ekki síðri náttúrufegurð en Þórs- mörk og eru kjörin til útivistar. Vel skipulagður þjóðgarður gæti skapað mörgum atvinnu, eink- um á sumrin, ekki síst skólafólki úr héraðinu. Fegurð landsins verður ekki metin til fjár. Jöklarnir og fljótin lúta eigin lögmálum, en það er hins vegar á valdi okkar að hafa áhrif á gróð- urframvinduna. Því er það einlæg ósk mín að komandi kynslóðir beri gæfu til að vernda og efla gróðurfar á Þórsmerkursvæðinu. Þannig verður sá fjársjóður best ávaxtaður. 98 ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.