Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1990, Blaðsíða 114
Fimmtíu ára gamall lerkiskógur í Pinéga. Myndlphoto:
A.S.
50 year-old larch forest near Pinega.
Ef lerki er gróðursett, hafa þeir 2.500 plöntur á
ha.
Undirgróðurinn er aðalbláberjalyng með dá-
litlu af sigurskúfi.
Hreinræktaður lerkiskógur er varla til á þess-
um slóðum, vex yfirleitt með björk, furu og greni
eins og í Jorna. Enda segja þeir okkur, að lerkið
vaxi betur í blandskógi.
Þessi skógarganga var um 2-3 km og hitinn var
nær 30°C. Skýhnoðri sást varla á himni.
Spurning um lerkifrœ. Að lokinni göngu um
þennan dýrlega fallega lerkiskóg, sem nú bar
mikið af könglum, nutum við hins hefðbundna
Leiðangursmenn í Pinégaskógum. Standandi frá vinstri:
Sigurður, Seméonov, Botygin, Zavolzhin og tveir heima-
menn. Sitjandi: Léna, túlkurinnokkar. Mynd/photo: A.S.
Members of the Pinega expedition, from the left:
Sigurður Blöndal, officials of the Archangel Forest Ser-
vice Mssrs. Semeonov, Botygin and Zavolzhin, two
local officials. Sitting our interpreter Lena.
skógarmálsverðar hjá bjálkakofanum, sem áður
var nefndur. Þar gerðum við gestgjöfum okkar
aftur rækilega grein fyrir því, hversu brýnt væri
fyrir skógrækt á íslandi að eiga víst drjúgt magn
af lerkifræi árlega. Og hér sýndist okkur vera
óskasvæðið okkar, þarsem við hefðum líka reynslu
á íslandi, að Pinégalerkið tæki öllu fram um
form. Við hugsuðum sérstaklega til Botygins frá
skógariðnaðarráðuneytinu, þar eð við vissum, að
í þeirra valdi stæði, hvort við fengjum óskir okkar
uppfylltar. Ekki fór milli mála, að hann hlýddi af
athygli á mál okkar og einnig innanhéraðsmenn.
Flogið tilbaka. Nú var flogið hreint útsýnisflug
Skógarmáltíð við gamla bjálkahúsið á áningarstaðnum í
Pinéga. Mynd/photo: A.S.
Picnicking by an old log cabin at Pinega.
í minna en 100 m hæð og yfir Kulojánni, sem renn-
ur norður í haf, en tengist Pinégaá skammt frá
okkar slóðum. Við fengum þarna fagra flugsýn
yfir árfarveginn og næsta nágrenni. Fagurt lands-
lag, sem árnar hafa grafið sig djúpt niður í. Okk-
ur varð hugsað til þess, að á Norðurlöndum hefði
slíkt svæði verið krökkt af ferðafólki, en við sáum
hvergi sálu á ferð. Svo ósnert er þetta fagra skóg-
lendi.
Eftir um þriggja stundarfjórðunga flug komum
við yfir nokkuð stórt kolsvart svæði, þar sem rauk
af skógareldi. Flogið var tvo hringi um það, svo
að við gátum virt það rækilega fyrir okkur, en
búið var að slökkva eldinn, og trjástofnarnir
stóðu eins og kolsvartir gaddar upp úr jörðinni.
Allt í einu skellti þyrlan sér niður og settist á
mýri, svo að hún sat næstum á skrokknum. Þarna
112
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1990