Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 8

Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 8
Sigurður Sigurðsson búnaðar- málastjóri, en öflug hvatning kom frá fslendingum íVestur- heimi og íslandsdeild Félags nor- rænna búvísindamanna sem kaus fimm manna nefnd undir forystu Sigurðar til að undirbúa stofnun félagsins. i fyrstu gerðabók félagsins um tildrög að stofnun þess segir m.a.: „Um aldamótin síðustu var starf hafið til að vernda skógar- leifar og gróðursetja nýja skóga og tré. Þetta starf hefur víða bor- ið sæmilegan árangur, betri en menn bjuggust við í fyrstu. Af þeirri reynslu sem þegar er fengin er það auðsætt að möguleikar eru hér allmiklir til trjá- og skóg- ræktar. Áhugi almennings fyrir þvf að gróðursetja tré og runna heima við hús og bæi mun lfka vera að færast talsvert í vöxt á seinni árum, en miklum örðug- leikum hefur það valdið, hve erfitt það er og jafnvel ómögulegt að fá hentugar og ódýrar plöntur sem heppilegar eru til gróður- setningar." Og síðar segir „Ríkið fæst að vísu nokkuð við skóg- ræktarmál og hefur skógræktar- stjóra, sérfróðan mann íþjónustu sinni, en starf hans hefur að mestu verið innifalið í því að sjá um friðun og verndun þeirra litlu skógarleifa sem eftir eru. Ef skóg- ræktarmálum á að miða fljótt og vel áfram er auðsætt að til þess þarf almenn samtök landsmanna og til þess að fá þau er eina leið- in að stofna öflugan félagsskap". Alþingishátíðin 1930 varð þjóð- inni mikil vakning til dáða. Hún efldi samhug um hugsjónir og jók samstöðu um ýmis þjóðþrifa- verk þar á meðal uppgræðslu landsins. Þessi vakning kemur vel fram f Alþingishátíðarljóðum ís- lensku skáldanna, sem flutt voru á hátíðinni. Þannig segir í Alþing- ishátíðarljóði Davíðs Stefánsson- ar frá Fagraskógi: f fiugum okkar er vaxandi vor þó vetri og blási kalt. Við sáðum fræjum ((slenska auðn og uppskárum hundraðfalt. Við erum þjóð sem vöknuð er til starfa og veit að hún sigrar allt. f þessu andrúmslofti bjartsýni og vaxandi trúar á getu þjóðar- innar var vel við hæfi að stofna Skógræktarfélag íslands. Á þess- um tíma var almenn trú á skóg- rækt í landinu lítil og jafnvel litið á skógræktarmenn sem draum- óramenn eða óraunsæja sérvitr- inga. Á stofnfundinum hér í Stekkjargjá voru samþykkt lög fyrir félagið og þvf kosin stjórn. f fyrstu stjórn voru kjörnir Einar Árnason fjármálaráðherra, Sig- urður Sigurðsson búnaðarmála- stjóri, Maggi Júl. Magnús læknir, )ón Ólafsson alþingismaður og Hólmjárn J. Hólmjárn efnafræð- ingur og varamenn þeir Valtýr Stefánsson ritstjóri, Pálmi Ein- arsson ráðunautur og Ásgeir L. Jónsson ráðunautur. Markmið félagsins við stofnun voru háleit en jafnframt raunsæ. f fundargerð fundarins hér í Stekkj- argjá segir að félagið setji sér það markmið að klæða landið á ný skjólgóðum, vorgrænum og glitfögrum skrúða, sem hylji holt og hæðir þessa lands þegar tvö- þúsund ára Alþingishátíð verður haldin á Þingvöllum, En til þess að það náist þarf vilja - þrautseiga stálfasta vilja, sem gróðursetja munu tré við tré þangað til markinu er náð og landið viði vaxið milli fjalls og fjöru. Hin fleygu rituðu orð Ara fróða í íslendingabók eru þarna skemmtilega fléttuð inn f megin- markmið Skógræktarfélag íslands og um leið lögð sú stefna að end- urheimta á næstu þúsund árum það sem tapast hafði á liðnum þúsund árum. Sennilega geta reiknimeistarar þríliðunnar kom- ist að því að sú aukning í skógar- þekju í landinu sem orðið hefur á þeim 70 árum sem liðin eru frá stofnun Skógræktarfélags íslands haldi ekki fyllilega í við þúsund ára markmiðið, en þessi sjötíu ár f skógrækt hafa fært okkur dýr- mæta reynslu, sem mun gera það kleift að ná markmiðinu ef kom- andi kynslóðir vilja það. Þessi reynsla og góður árangur í skóg- rækt hefur einnig aukið trúverð- ugleika lýsingar á gróðurþekju landsins við landnám sem stund- um hefur verið dregin í efa. Starfsemi Skógræktarfélags ís- lands var fyrstu árin hefðbundin starfsemi héraðsskógræktarfélags við plöntun og friðun lands f ná- grenni Reykjavíkur og naut félag- ið strax mikillar velvildar og stuðnings bæjarstjórnar Reykja- víkur. Síðar breyttist félagið í landssamband skógræktarfélaga og tók Skógræktarfélag Reykjavfk- ur yfir hina hefðbundnu skóg- ræktarstarfsemi þess árið 1946. Síðan hefur Skógræktarfélag ís- lands verið málsvari Skógræktar- félaganna í landinu sem nú eru 60 að tölu með sjö til átta þús- und félagsmenn. Skógræktarlönd í umsjá félaganna eru nú rúmlega 200 að tölu og um tuttugu þús- und hektarar að stærð. Þessi lönd eru nú flest opin almenningi og f vaxandi mæli notuð til úti- vistar. Talið er að frá upphafi hafi á milli þrjátíu og fjörutíu milljón- ir plantna verið gróðursettar á vegum skógræktarfélaganna en það mun vera nærri því helming- ur af þeim plöntufjölda sem gróðursettur hefur verið á öld- inni. Til marks um vaxandi skógræktaráhuga skal þess getið að á þessu ári hafa fjögur ný skógræktarfélög fengið aðild að Skógræktarfélagi íslands. Það má því segja að það sé kröft- ugur vöxtur f íslenskum skógum 6 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.