Skógræktarritið - 15.10.2000, Blaðsíða 53
Svo hélt ég til Bandaríkjanna
og fór í flugvélavirkjun og flug-
nám og kom svo heim. Var fyrst
ráðinn sem flugvirki og varð síð-
an aðstoðarflugmaður um haust-
ið 1947.
Uppblásturinn sýnilegur úr
lofti. Áhugi vaknar á land-
græðslu
Það má til sanns vegar færa að
öðrum þræði tengist áhugi minn
á ræktun fluginu. Þegar ég byrj-
aði að fljúga hér heima, varð ekki
hjá því komist að sjá og finna fyr-
ir uppblæstrinum. Stundum var
maður með mökkinn í hreyflun-
um sem náði iðulega upp í 5-6
þúsund feta hæð. Þá varð maður
að lyfta sér yfir þetta lag, sem oft
var á okkar flugleið um miðbik
landsins, ekki síst ofan Rangár-
valla. Þetta leiddi hugann að
þeirri reynslu sem ég hafði aflað
mérytra.
í Bandaríkjunum flaug ég á lítilli
flugvél, sem ég hafði gert upp, fór
á henni til vesturstrandarinnar frá
Buffalo. Ég kom við hjá Vestur-ís-
lendingum á stað sem heitir
Garðar í Norður- Dakota, og
reyndust þeir ákaflega vel. Þetta
var fjölskylda sem bar ættarnafnið
Hall og hefur m.a. sér til ágætis
að vera stærstu kartöfluframleið-
Meðal verkfæra í verkfærageymslunni
er forkunnarfalleg þýðversk bjúgskófla
sem Karli var færð að gjöf af Kjartani
Sveinssyni, þeim merka skógræktar-
frömuði. Hún gagnaðist vel á sínum
tíma en er nú orðin nokkurs konar
safngripur.
endur f Bandaríkjunum. Þau not-
uðu tvær flugvélar við að dreifa
áburði og skordýraeitri og vildu
ráða mig í vinnu. Það kom hins-
vegar aldrei til þess. Mikið var
rætt um þurrka og uppblásturs-
vandamál, sem hafði farið mjög
flla með mörg miðríkin, t.d. Suð-
ur-Dakota-svæði sem kölluð voru
„Bad lands". Sum þeirra voru nán-
ast örfoka. Bandaríski flugherinn
var fenginn til þess að takast á við
þetta vandamál og dreifðu þeir
grasfræi og áburði úr lofti. Eftir
því sem ég veit best var unninn
bugur á þessu vandamáli hvort
Öllu er hér haganlega komið fyrir. Fyrir
neðan bústaðinn hefur verið komið
fyrir stórum gámi og hann felldur inn í
landslagið, þarsem verkfæri ogönnur
tæki eru geymd.
-----------m.
sem það var beinlínis hernum að
þakka eða hagstæðu veðri nema
hvorutveggja hafi hjálpað til. Frá
þessari Hall-fjölskyldu fór ég vel-
„próventaður", hafði kynnst
áburðardreifingarvélum sem síðar
átti eftir að koma sér vel.
Mér fannst að það yrði að taka
uppblástursvandamálið föstum
tökum hér heima og sótti því um
að flytja inn áburðardreifingarvél.
Það gekk ekki þrautalaust en er of
löng saga til að rekja hér alla.
Fyrst og fremst var þetta vegna
þeirrar haftastefnu í peningamál-
um sem tíðkaðist og enginn skil-
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2000
49