Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 87

Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 87
5. mynd. í Fagurhlíð (1989): Heyhirðing í lok baggatímabilsins. Rúlluvæðing í nánd. Bóndinn þarf að vera raunsær í ræktun sinni, annars gengur dæmið ekki upp á þolanlegan hátt. I skógrækt er allt of oft horft fram hjá þessari stað- reynd af því að skýr markmið og tíma- viðmiðun vantar. Halldórsson í Sauðlauksdal gaf út Atla, fræðslurit í samtalsformi um landbúnað. Torfi var einn mesti forgöngumaður í landbún- aði á sínum tfma og átti stóran þátt í bættum vinnubrögðum og tækjabúnaði. Má þar fremur öðru nefna skosku ljáina sem hann lét gera og flutti til landsins. Hefur oft verið haft á orði að þessir nýju Ijáir hafi bjargað síðustu skógarleifunum á íslandi, af þvf að menn þurftu ekki lengur að gera til kola til að halda biti í þeim. Með tilkomu búnaðarskól- anna hófst nútímaleg jarðrækt á íslandi; auk matjurtaræktar fyrir fólk fóru menn nú að stunda fóð- urrœkt fyrir gripi. í báðum ræktunargreinum eru sömu meginforsendur: Ákveðnar væntingar um árang- ur - tiltekin alúð til að tryggja árangur - skýr markmið og tímaviðmiðun. Hér er enn sem fyrr þessi ákveðni rammi sem tryggir árangur - vísar handa- hófsmanninum veg yfir á sæmi- lega þróað ræktunarstig, er tryggir árangur innan þeirra marka sem íslenskt veðurfar setur. Árangurinn lét ekki á sér standa: íslenskir bændur sneru sér smám saman frá hjarð- mennskubúskap að ræktunarbú- skap, frá sjálfsþurftarbúskap að markaðsbúskap - og náðu margir góðum árangri. Um 1980 er ís- lenskur landbúnaður kominn í ógöngurvegna offramleiðslu, enda höfðu menn sannað að unnt var að rækta gras og græn- fóður við hinar erfiðustu aðstæð- ur - ef alúð var fyrir hendi. J, 6. mynd. Greniplanta í magurri jörð án allrar aðhlynningar. Hér er tæpast ver- ið að sækjast eftir árangri. Blákorn fyrstu fjögur árin hefði tryggt góðan vöxt þessarar plöntu þótt umhverfið sé rýrt. bróun fyrrnefndra ræktunar- greina - matjurtaræktar fyrir fólk og fóðurræktar fyrir gripi - sýnir ótvírætt að alúð og skýr markmið gera gæfumun, marka áhugamanninum leið af handa- hófsstigi yfir á þolanlegt rækt- unarstig. Skógrækt Hvar er skógræktin stödd í þessu tilliti á aldarafmæli hennar á ís- landi árið 2000? Hefur áhuga- maðurinn skýra viðmiðun sem heldur honum við efnið, lyftir honum af handahófsstigi upp á þolanlegt ræktunarstig og skilar honum eðlilegum árangri? Ég er dreifbýlismaður að upp- runa, alinn upp við matjurtarækt og fóðurrækt frá fyrstu tíð, ásamt því raunsæi sem slíku fylgir. Það var merkileg reynsla að kynnast skógrækt og komast að raun um það að fyrrnefndir raunsæisþætt- ir þóttu óþarfir á þeim bæ. Þannig var þetta fyrir 30 árum þegar ég fór að huga að þessum hlutum og þannig sýnist það vera enn í dag Allt of oft er plöntum stungið niður án glöggra vænt- inga um árangur. Plöntum er stungið niður án alúðar til að tryggja árangur. Plöntum er stungið niður án markmiðs og tímaviðmiðunar. Með öðrum orðum er algengt að gróðursetn- ingu sé ekki fylgt eftir. Plöntum er potað niður út um öll foldarból og sfðan ganga menn heim og ætla að framhaldið leysist farsæl- lega af sjálfsdáðum. Þetta eru vondar forsendur fyrir árangri. Afleiðingin er skógrækt- SKÓGRÆKTARRITIÐ 2000 83
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.