Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 138

Skógræktarritið - 15.10.2000, Side 138
andi hjá þeim sem bæta vilja að- stöðu til útvistar í skógunum. Tillaga 4: Aðalfundur Skógræktarfélags ís- lands, haldinn f Menntaskólanum á Akureyri 25.-27. ágúst árið 2000, hvetur Skógræktarfélag fslands og aðildarfélög að vinna markvisst að ræktun, sölu og markaðssetningu jólatrjáa og skrautgreina úr ís- lenskum skógum. Greinargerð: Landgræðslusjóð- ur hefur um langt árabil rekið umfangsmikla sölu og dreifingu á jólatrjám. Stjórn sjóðsins hefur tekið þá ákvörðun að þessari starfsemi sjóðsins verði hætt þegar á næsta ári. í ljósi þess þarf að taka ákvörðun um hvort ástæða sé til þess að skógræktar- félögin taki sameiginlega á þessu máli. Hlutdeild íslenskra trjáa á markaðnum hefur minnkað und- anfarin ár. Benda má á tvær hugsanlegar og samverkandi skýringar á þessum samdrætti. Annars vegar takmarkað framboð á góðum trjám og hins vegar ófullnægjandi markaðssetningu. Á kjörlendi fara jólatrjáekrur að skila afurðum eftir 9-15 ár og get- ur ræktun og sala á jólatrjám ver- ið góð fjáröflunarleið fyrir skóg- ræktarfélögin. Því eru miklir hagsmunir í húfi fyrir félögin. Tillaga 5: Aðalfundur Skógræktarfélags fslands, haldinn í Menntaskólan- um á Akureyri 25.-27. ágúst árið 2000, hvetur skógræktarfélög sem eiga eða hafa yfirráð yfir lögbýl- um að sækja um þátttöku í land- hlutabundnum skógræktarverk- efnum. Greinargerð: Að undanförnu hefur landshlutabundnum skóg- ræktarverkefnum vaxið fiskur um hrygg. Ný lög hafa verið sam- þykkt á Alþingi og opinbert fjár- magn hefur fylgt f kjölfarið. Bændur, jafnt sem aðrir einstak- lingar og landeigendur, hafa ver- ið samþykktir til þátttöku í þess- um verkefnum. Enn sem komið er hefur ekkert skógræktarfélag nýtt sér kosti þess að taka þátt f slíkum verkefnum, en að stórum hluta greiðir ríkið fyrir skógrækt- ina, m.a. skipulag, plöntur, frið- un, jarðvinnslu og vinnulaun. Nokkur skógræktarfélög eiga, eða hafa yfirráð jarða og lögbýla og því er mikilvægt að þau félög, sem oft og tíðum hafa barist í bökkum og eiga þess kost að sækja um samkvæmt lögum og skilyrðum, nýti sér kosti þessa fyrirkomulags. Tillaga 6: Aðalfundur Skógræktarfélags íslands, haldinn í Menntaskólan- um á Akureyri 25.-27. ágúst árið 2000, beinir því til stjórnar fé- Iagsins og Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins að hafa samstarf um að fram fari af- kvæmaprófun á sitkagreni, stafafuru og fjallaþini í frægörð- unum í Taraldsey og Gunnars- hólma. Greinargerð: Nú tekur Skóg- ræktarfélag íslands við frægörð- unum í Taraldsey og Gunnars- hólma og þar með þarf að taka ákvarðanir um hvort félagið sé tilbúið til að leggja í kostnað vegna þeirra og þá hversu mik- inn. Efasemdir hafa verið uppi um ágæti fræsins frá Taraldsey en þær eru byggðar á takmarkaðri reynslu. Auk þess er ekki hægt að telja fræið kynbætt fyrr en af- kvæmi hafa verið prófuð og lakari fræmæður teknar úr umferð. Treysta þarf grundvöllinn fyrir ákvarðanatöku og verður það ein- göngu gert með því að prófa efni- viðinn á vfsindalegan hátt. Til- lagan felur í sér að S.f. og S.r. vinni saman að því að afla fjár- magns til rannsóknanna sem nægi til þess að safna fræi, rækta úr því plöntur, gróðursetja þær í tilraunareiti á 3-4 stöðum á land- inu, mæla tilraunirnar tvisvar til þrisvar á nokkrum árum og vinna úr mælingum. Tillaga 7: Aðalfundur Skógræktarfélags íslands, haldinn í Menntaskólan- um á Akureyri 25.-27. ágúst árið 2000, beinir því til Rannsókna- stöðvar Skógræktar ríkisins á Mó- gilsá að gefinn verði út listi yfir helstu trjátegundir sem notaðar eru í skógrækt. Þar skal koma fram nafn tegundar og bestu þekktu kvæmi og klónar. Auk þess skal nefnt í hvaða lands- hluta einstaka trjátegund og kvæmi hennar eða klónn eru vænlegust. Greinargerð: Skógræktarfólki er það ljóst að kvæmarannsóknir eru eilífðarverkefni og lokasann- leikurinn verður seint fundinn. En ætla má að rannsóknir, sem þegar hafa verið gerðar, gefi næg- ar vísbendingar til að birta slíkan lista. Rala hefur um árabil birt til- svarandi lista um nytjajurtir f landbúnaði. Slfkan lista væri kjörið að birta í Ársriti Skógrækt- arfélag íslands, Handbók bænda og jafnvel á sölustöðum trjá- plöntustöðva. Áhugasamar húsfreyjur gætu jafnvel hengt lista þennan á kæli- skápa og lesið sér fróðleiks við uppvask og matseld. Stjórnarkjör Þá var gengið til stjórnar- kjörs. Að þessu sinni var kosið um 2 menn í aðalstjórn. Kosn- ingu hlutu þau Vignir Sveins- son og Þuríður Ingvadóttir. Þá voru kosnir 3 menn í varastjórn. Kosningu hlutu þau Hólm- frfður Finnbogadóttir, Vilhjálmur Lúðvíksson og Trausti Tryggva- son. Fögnuðu fundarmenn vel þessum nýkjörnu stjórnarmönn- um. Almennar umræður og fundar- lok. 134 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.