Skógræktarritið - 15.05.2001, Side 23

Skógræktarritið - 15.05.2001, Side 23
INNGANGUR Kvæmi eða klónar trjátegunda sýna oft mikla víxlverkun (sam- spil) erfða og umhverfis, t.d. þegar slíkir erfðahópar eru gróð- ursettir þar sem veðurfar er mjög frábrugðið þvf sem er að finna á upprunastað. Einnig getur mikið samspil erfða og umhverfis kom- ið fram þegar umhverfismisleitni er mikil á upprunasvæðum, svo sem gerist á fjalllendum svæðum (Morgenstern 1996; Namkoong m.fl. 1988; Zobel and Talbert 1984). Þessi víxlverkun getur t.a.m. lýst sér f þvf að klónn sem reynist vel á einum stað getur reynst ómögulegur við aðrar að- stæður á öðrum stað, og öfugt. Breytileiki í veðurfari er mikill milli og innan héraða á íslandi, sem aftur ræður miklu um það hve skilyrði eru hér breytileg til skógræktar (Haukur Ragnarsson 1977). Slíkur breytileiki er m.a. talinn ákvarða það hvaða efnivið (tegundir, kvæmi og klóna) er heppilegt að velja til ræktunar í mismunandi landshlutum (Sig- urður Blöndal 1977). Nýlegar niðurstöður rannsókna á víði- klónum á Suðurlandi (Aðalsteinn Sigurgeirsson 2000) hafa rennt frekari stoðum undir þá skoðun að þetta eigi við í afar ríkum mæli hérlendis. Alaskaösp (Populus trichocarpa Torr. & Gray) má finna hér á landi að heita má í hvers manns garði, og notkun tegundarinnar fer vaxandi í skjólbeltarækt og skógrækt. Náttúrlegt útbreiðslusvæði henn- ar er í vesturhluta Norður-Amer- íku þar sem hún vex allt frá Alaska í norðri til Kaliforníu í suðri. Líkt og í heimkynnum sín- um er hún f Norðvestur-Evrópu meðal þeirra aspartegunda sem hefur hvað mest verið notuð til skógræktar (Jobling 1990; Lang- hammer 1976; Muhle-Larsen 1976). Tegundin var fyrst flutt inn til íslands frá Alaska árið 1944 (Jóhann Pálsson 2000; Sigurður Blöndal 1977; Vigfús lakobsson 1947) og er því áratuga reynsla af veru hennar hérlendis. Síðan hafa margar söfnunarferðir verið farnar vestur um haf (Ágúst Árnason m.fl. 1986; Vilhjálmur Lúðvíksson 1999) og er fjöldi innfluttra klóna og kvæma töluverður. Langt fram á nfunda áratuginn var val aspa til undaneldis hér á landi meira eða minna tilviljana- kennt og í besta falli valið eftir kvæmum, en ekki klónum (lóhann Pálsson 2000). Tegundin hentar vel til klónunar, enda . ódýrast að fjölga henni með vetrargræðlingum. Reynslan af mismunandi klónum alaskaaspar innan kvæma er misjöfn, en allt fram til þessa dags hefur van- þekking á eiginleikum einstakra klóna verið Þrándur f Götu árang- ursríkrar ræktunar alaskaaspar á íslandi. Klónaval hefur hingað til orðið að byggja að miklu leyti á reynslu og tilfinningu, en hefur ekki stuðst við skipulegar saman- burðartilraunir. Hámarks árangri verður seint náð nema að sá efniviður sem til er í landinu sé vel skilgreindur og eiginleikar mismunandi klóna til ræktunar í mismunandi lands- hlutum séu vel þekktir. Árið 1990 fékkst styrkur til sex ára á fjárlög- um fslenska ríkisins til þess að hefja sérstakt rannsókna- og þró- unarverkefni um ræktun alaska- aspar, s.k. „Iðnviðarverkefni". Verkefninu var ætlað að styrkja forsendur fyrir skilvirkri ræktun asparskóga til timburs og iðnvið- ar hér á landi. í tengslum við verkefnið voru gróðursettar á ár- unum 1992-93 viðamiklar saman- burðartilraunir með klóna alaska- aspar á 31 stað víða um land. Flestar þeirra klónatilrauna sem lagðar voru út á Norðurlandi og í uppsveitum Suðurlands fóru for- görðum í næturfrosti í ágústmán- uði 1993 (sjá Aðalsteinn Sigur- geirsson og Sigvaldi Ásgeirsson 1998). í kjölfar þess var ákveðið að endurnýja tilraunir í þessum landshlutum á árinu 1995, og verður gerð grein fyrir niðurstöð- um síðarnefndu tilraunanna hér. Nánar verður gerð grein fyrir heildarniðurstöðum asparklóna- tilraunanna 1992-93 sfðar og á öðrum vettvangi (Aðalsteinn Sigurgeirsson, Sigvaldi Ásgeirs- son og Þórarinn Benedikz, óbirt gögn). Markmið klónatilraunanna er: • Að auðvelda val asparklóna fyrir hvern landshluta, með því að finna þá klóna sem lifa vel, vaxa hratt og eru lausir að mestu við veðurfarsskemmdir og sjúk- dóma. • Að meta samspil klóna og um- hverfis; m.ö.o. hvort klónaval fyrir eitt hérað skuli vera frábrugðið klónavali í öðrum landshlutum. • Að afmarka fýsileg ræktunar- svæði einstakra asparklóna, og renna með því stoðum undir al- mennt mat á skógræktarskilyrðum, ekki aðeins fyrir alaskaösp, heldur einnig fyrir aðrar trjátegundir. EFNI OG AÐFERÐIR E fniviður í 1. töflu er að finna helstu upp- lýsingar um þá klóna sem bornir eru saman í tilrauninni. Nánari skýringar: Klónar úr söfnunarferðum fyrir 1963: Ellefu klónar, sem allir hafa staðið sig vel um sunnanvert landið, á Akureyri og (eða) á Fljótsdalshér- aði. Þessir klónarkomu til lands- ins á 5. og 6. áratugnum, frá svæði á innanverðum Kenai-skaga í Alaska (s.k. „Kenai-klónar"). Þeir eru: 'Ey' (nr. 7 í 1. töflu), ‘Rein’ (nr. 8), 'Sæland' (nr. 14), ‘Hallorm- ur' (nr. 17), 'Laugarás' (nr. 18), 'Múli' (nr. 19), 'Grund' (nr. 20), 'P-8' (nr. 29), 'P-2' (nr. 31), 'Randi' (nr. 47) og 'Hringur' (nr. 48). SKÓGRÆKTARRITIÐ 2001 1. tbl 21
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.