Skógræktarritið - 15.05.2001, Page 56

Skógræktarritið - 15.05.2001, Page 56
6. mynd. Góðir grannar. Rússalerki og hvítgreni í góðum vexti. Mynd: Þ.E. 2000. greni. í því skyni að auka fjöl- breytni og öryggi í nytjaskógrækt ætti tvímælalaust að auka hlut grenis, sérstaklega hvítgrenis og rauðgrenis við nýskógrækt. Þessar þrjár grenitegundir bjóða upp á val vegna mismun- andi aðlögunar. Sitkagreni hefur mikla vaxtargetu og er vindþolið en er viðkvæmt fyrir haustfrost- um. Þess vegna á að velja því stað í brekkum og stöðum þar sem vindasamt er. Rauðgreni er ekki nærri eins vindþolið en er frostþolið eins og hvítgreni. Væri því rétt að velja þessar tegundir við gróðursetningu á flatlendi, rauðgreni þar sem sæmilegt skjól er en hvítgreni þar sem er næð- ingssamara. Þar sem þessar teg- undir eru allar skuggþolnar á unga aldri má blanda þeim sam- an við lerki, furu, birki eða ösp og ætti það að koma betur út en að blanda ljóselskum tegundum saman, t.d. lerki og furu. Svo eru þessar grenitegundir misvið- kvæmar fyrir hinum ýmsu sjúk- dómum og skordýraplágum og því æskilegt að nota þær allar til að draga úr áhættu þeirri sem fylgir því að notast við fáar teg- undir. Önnur umhverfisáfirif Lfklegt er að munur sé á jarðraka efst og neðst í tilrauninni. Land- ið neðst í tilrauninni og fyrir neð- an hana er flatt og þvf sennilega betri rakaskilyrði en ofar í brekk- unni. Hæstu trén eru neðarlega og er greinilegt að grenið nýtur mjög góðs af auknum raka eða nálægð við lerki sem þar er einnig nema hvort tveggja sé. Undantekning er syðsta sitkagreniröðin, sem vex öll við hlið lerkis, en þar er ekki munur á hæð niður eftir brekkunni. Nyrsta rauðgreniröð- in vex einnig við hlið lerkis en sýnir ekki sama vaxtarauka skv. mælingum. Þeim megin er lerkið bæði gisnara og lágvaxnara en sunnan og neðan við tilraunina. Vöxtur rauðgrenisins í nyrstu röð hefur reyndar verið mjög mikill þau 4 ár sfðan tilraunin var mæld og er hugsanlegt að áhrif lerkis- ins séu að koma fram seinna þar. Lerkið í tilrauninni sýnir ekki vaxtarauka niður eftir brekkunni. Þetta gæti þýtt að jarðraki efst í brekkunni sé ekki takmarkandi fyrir vöxt þess á sama hátt og hann virðist vera fyrir grenið. Þetta gæti einnig verið vísbend- ing um að það sé ekki afgerandi munur á jarðraka efst og neðst í tilrauninni og að aukinn vöxtur grenis syðst og neðst í henni skýrist fyrst og fremst af nálægð við lerki. Lerki hefur ótrúlega hæfileika til að nema næringu úr rýrum jarðvegi og er það hugsanlega vegna samspils sveppróta lerkis- ins og köfnunarefnisbindandi jarðvegsörvera. Aðrar tegundir, s.s. stafafura, virðast einnig hafa þessa hæfileika þótt þær séu ekki eins öflugar. Rótarkerfi lerkisins virkar þá sem áburðarverksmiðja og öruggt má telja að nærliggj- andi tré njóti góðs af þessum hæfileikum lerkisins (6. mynd). Gróðursetning lerkis var þvf fjórða áburðarmeðferðin á grenið í þessari tilraun og sú sem gaf mestan vöxt til langs tíma eftir því sem best verður séð. Áhrif lerkisins koma þó ekki grönnum þess til góða fyrr en rótarkerfi trjánna ná saman. Slíkur sam- vöxtur rótarkerfanna tekur alltaf nokkur ár frá gróðursetningu þannig að blöndun lerkis með greni kemur ekki í staðinn fyrir áburðargjöf við gróðursetningu. Lokaorð Myndirnar sem fylgja þessari grein voru teknar í október 2000. Grenið er í mjög miklum vexti og hafa drottnandi tré hækkað um allt að 2 metra þau 4 ár síðan mælingarnar sem hér eru birtar voru gerðar (7. mynd). Vegna þéttleika hafa lægri tré, þ.á m. blágrenið, dregist enn frekar aft- urúr. Ennfremur hefur lerki gróðursett 1985 fyrir ofan tilraun- ina náð góðri stærð og er greni- lundurinn því umkringdur lerki nú. Áhrif lerkisins ná nú senni- lega að einhverju leyti um reitinn allan. 54 SKÓGRÆKTARRITIÐ .2001
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.