Skógræktarritið - 15.05.2002, Side 28

Skógræktarritið - 15.05.2002, Side 28
Nokkur útlitseinkenni Stofn og króna. Hér má greina mismun á íslenskum reyniviði og þeim, sem fluttur er inn frá Dan- mörku og /eða Noregi snemma á öldinni. íslenski reyniviðurinn hefiryfir- leitt krappt greinahorn, þ.e. greinar vilja vaxa meira og minna samsíða bolnum. Fyrir því verður hann gjarnan margstofna, jafnvel neðan frá rót, eða skiptir sér skammt frá jörðu. Erlendi reyni- viðurinn hefir aftur á móti gleitt greinahorn, er oftast einstofna og myndar breiða krónu, stundum ofarlega á bolnum, ef tréð hefir vaxið upp í þykkni. Hann virðist ekki geta orðið eins hávaxinn og sá íslenski. Barkarlitur. Eva G. Þorvalds- dóttir (1997, 1998) kannaði þetta útlitseinkenni. Villti reynirinn var ætíð ljós- eða dökkgrár, en rækt- uðu trén voru mjög mörg rauð- brún eða grá/rauðbrún, sem gæti bent til, að þau væru erlend. Villti reyniviðurinn á Fljótsdals- héraði er yfirleitt grár í mismun- andi tónum, ljósgrár verður þó að teljast drottnandi. En erlendi reyniviðurinn á Hallormsstað er yfirleitt grá/brúnleitur í mismun- andi tónum. Uturáberfum er breytilegur og eru a.m.k. dæmi um það, að það sé arfgengur eiginleiki. Litaraf- brigðin eru hárautt, rauðbrúnt og rauðgult. í garðinum á Kvískerj- um f Öræfum er eitt tréð alltaf með rauðgulum berjum, og það lifnar sein'na á vorin en önnur (Helgi Björnsson, munnleg heim- ild). En tíðarfar ræður áreiðan- lega einhverju um það, hversu sterkur litur verður á berjunum. Kerfisbundnar athuganir vantar um þetta atriði. Fle'ttur á stofni og greinum eru nokkurra tegunda. Hörður Krist- insson (1998) nefnirþær og birtir af þeim myndir. Birkiskóf (Melan- elia exasperata) virðist vera mjög al- Mynd 23. Reyniþyrping í Kollafirði utan við Eyri. Mynd: S.Bl. 17-07-85. geng á Upphéraði. Hvað sem um það er, setja fléttur mikinn svip á reynivið, geta talist skraut á hon- um. Þær valda trjánum engum skaða, en eru algengastar á full- orðnum og gömlum trjám. Eiginleikar Kröfur til loftslags. Að þessu leyti telst hann harðgert tré. Hann er vindþolinn, stendur stundum einn sér á bersvæði og stendur víðast á Vestfjörðum upp úr lág- vöxnu birkikjarri, þar sem sumar- hiti getur verið lágur (23. mynd). Reyniviðurinn er talinn frostþol- inn, a.m.k. staðbundin kvæmi. Kröfur til farðvegs. í þessu efni hefir hann mikið þolsvið. Getur dregið fram lffið f rýrum jarðvegi, en verður þá aðeins lágvaxið tré eða runni. En best kann hann við sig f djúpum og næringarrík- um jarðvegi og getur þá vaxið til jafns við hávaxnasta birki á fs- landi. Sem garðtré er hann hrað- vaxinn á íslenskan mælikvarða, ef honum er gefinn mikill búfjárá- 26 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.