Skógræktarritið - 15.05.2002, Blaðsíða 94
Norðurlandi var 4/5 af gisnasta
skóglendinu (<40% þekja)
lágvaxnara en 2 m. Áhrifin af
hárri þekjuskilgreiningu eru því
væntanlega lítil á birkiskóga
landsins. Höfundurtelurað hér
eigi fslendingar að velja 30%
krónuþekju, sem mun vega upp á
móti lágmarksstærð við ákveðnar
aðstæður þar sem skógurinn er
misdreifður, t.d. í þéttbýli og
sumarbústaðalöndum.
Hvaða áhrif hefði 1 hektara
lágmarksstærð á flatarmál
skóga á íslandi?
Hámarks stærðarskilgreining er
1 hektari (100x100 m). Flestyngri
skógræktarsvæði ná þessari
skilgreiningu, en margir af eldri
trjálundunum („frímerkjunum")
eru hinsvegar minni. Oft er kol-
efnisbinding í viðarvexti slíkra
smálunda meiri en á stærri sam-
felldum svæðum vegna góðrar
umhirðu, ríkulegs framboðs ljóss
og lítillar samkeppni um vatn og
næringarefni (Arnór Snorrason
2002, munnl. uppl.). Þetta þarf þó
ekki að vera svo mikilvægt, þar
sem flestir þessir lundir voru
gróðursettir fyrir 1990 og teljast
því ekki til „Kyoto-skóga”1.
Oftar en ekki þraukar birkið á
einangruðum blettum eða
I i
4. mynd. Þungbeittar birkiskógaleifar í landi Næfurholts undir Heklu. Þarna er
hæðin > 2 m og krónuþekja > 30%, en stærð hvers birkiteigs tiltölulega lítil. Mynd:
BDS.
5. mynd. Landgræðslusvæði á
Hofsnesi í Öræfasveit sumarið 2001.
Þarna hefur birki verið sáð í stór svæði
á undanförnum árum og alaskalúpína
er í örri útbreiðslu. Vonandi vex þarna
upp vöxtulegur birkiskógur þegar
lúpínan hefur breiðst yfir birki-
plönturnar sem enn eru of smáar til að
sjást á mynd, þó sumar séu orðnar allt
að 6 ára gamlar. Mynd: BDS.
skógartorfum (3. mynd). Þar sem
svo háttar til getur mikið dregið
úr flatarmáli birkiskógarins ef 1
hektara skilgreiningin er notuð.
Hægt væri að afia upplýsinga um
hversu stór hluti birkiskógarins
vex á slíkum blettum ef birki-
úttektin frá 1988-1991 væri
skoðuð aftur12.
Eins hektara skilgreining mundi
nánast útiloka eina tegund skóg-
ræktar frá því að teljast aðgerðir
til kolefnisbindingar; það er ný-
ræktun skjólbelta. Til að 5 m
breitt skjólbelti nái 1 hektara lág-
marksstærð verður það að vera 2
km að lengd.
Lágmarksstærðin virðist höf-
undi vera helsta álitamálið fyrir
nýja skilgreiningu fyrir Kyoto-
skóga Islands. Lág skilgreining
mun auka kolefnisforða og árlega
kolefnisbindingu íslenskra skóga
umtalsvert, en jafnframt verður
kolefnisbókhaldið viðameira og
dýrara. Því miður hefur ekki enn
farið fram nein bein athugun á
hvaða áhrif ólíkar skilgreiningar
hafa á heildar-flatarmál ræktaðra
og náttúrulegra skóga, áætlaða
kolefnisbindingu, eða kostnað
við kortlagningu og skógarúttekt.
Mjög brýnt er að vinna slíka
athugun, t.d. fyrir eitt sveitar-
félag. Áður en slík vinna hefur
farið fram er erfitt að segja til um
hvaða stærðarskilgreining er fýsi-
92
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002