Skógræktarritið - 15.10.2014, Síða 20
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201418
Hefur Ísland eitthvað að gera í Evrópusamstarf
um jólatrjáaræktun?
Árið 2009 voru samtök jólatrjáaframleiðenda í Evrópu
stofnuð (The Christmas Tree Grower Council of Europe
- CTGCE). Þetta eru samtök ellefu landa í Evrópu sem
framleiða jólatré fyrir heimamarkað og/eða fyrir
útflutning. Markmið samtakanna er að:
• Vinna að hagsmunum evrópskra jólatrjáafram-
leiðenda
• Hvetja neytendur til að kaupa lifandi jólatré
• Stækka sölumarkaði í Evrópu fyrir jólatré
• Þróa og bæta gæði lifandi jólatrjáa almennt
• Þróa leiðbeiningar um gæðastaðla við mat á
jólatrjám
• Samræma upplýsingar og leiðbeiningar við notkun
plöntuvarnaefna
• Stuðla að rannsóknum tengdum plöntuvarnaefnum
• Skipuleggja viðburði þar sem jólatrjáaframleiðendur
geta hist og skipst á hugmyndum, þekkingu og
reynslu.
Fulltrúar fyrir hvert land hittast á fundum tvisvar ári.
Einn stuttur fundur (hálfur dagur) snemma ársins
(febrúar) þar sem sala og þróun tengd jólatrjáa-
markaði nýliðins árs er rædd. Síðan er sumarfundur
í júní (þrír dagar) þar sem þátttakendur heimsækja
ákveðið land, skoða jólatrjáaframleiðslu á staðnum
og skiptast á þekkingu og reynslu. Sumarfundurinn
hjá jólatrjáasamtökunum var 2014 haldin í Jindrichuv
Hradec í Tékklandi, dagana 12. til 14. júní.
Algengt er að margir jólatrjáaframleiðendur heim-
sæki alþjóðlega jólatrjáasýningu í Danmörku í
Langesö á Fjóni. Hún er alltaf haldin þriðja fimmtu-
dag í ágúst. Á þessari sýningu er hægt að sjá allt sem
tengist jólatrjáaframleiðslu frá fræi (2. mynd) til stórra
sérhæfðra véla (1. mynd). Sýningin nýtur mikilla vin-
sælda og er heimsótt af mörg hundruð jólatrjáafram-
leiðendum og áhugafólki frá Evrópu og Skandinavíu.
Sýningin 2014 var 21. ágúst.
Árið 2014 voru ellefu lönd skráð í samtökin: Austur-
ríki, Belgía, Danmörk, Bretland, Frakkland, Holland,
Króatía, Sviss, Svíþjóð, Tékkland og Þýskaland.
Öll lönd sem eru með jólatrjáaframleiðslu, óháð
framleiðslumagni, eru velkomin í samtökin. Árlegt
þátttökugjöld er 500 €, fyrir hvert land.
Íslandi var boðið að taka þátt sem áheyrnarfulltrúi
á fundi CTGCE í febrúar 2014 sem var haldinn í
Kaupmannahöfn. Markmiðið með þátttökunni var
að fá innsýn í verkefni og hlutverk samtakanna og
Ísland í alþjóðleg samtök
jólatrjáaræktenda