Skógræktarritið - 15.10.2014, Qupperneq 39
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2014 37
Guðmundur Pálsson; Kristján Baldursson, Þórunn Kristinsdóttir og Gísli
Tryggvason gróðursetja sitkagrenibelti á Brandsöy.
Víkingasúpa snædd í hlöðunni á Rytnetunet.
um að fara í gegnum almyrkvaða rýmingaræfingu
þar sem skríða þurfti um rangala til að komast út.
Boðið var upp á ljúffengt smurt brauð sem Perdy
Saure, kona Sveins, útbjó ásamt ósviknu ketilkaffi í
gróðrarstöð gestgjafanna að Brandsöy og síðan haldið
út í skóginn umhverfis gróðrarstöðina, þar sem ýmsar
trjátegundir hafa verið gróðursettar í gegnum tíðina,
m.a. skoðuðum við marþöll, eðalþin, risalífvið og
fagursýprus sem þrifust vel. Þennan seinnipart rigndi
nokkuð en undir krónuþaki skógarins urðum við
ekki mikið vör við það enda hlýtt í veðri. Undir lok
skoðunarferðar gróðursettum við röð af sitkagreni
sem skerma á af golfvöll sem verið er að útbúa á
landi Skógræktarfélagsins á Brandsöy. Um kvöldið
var hópnum svo haldin dýrleg veisla í rekstrarbygg-
ingu gróðrarstöðvarinnar. Þau Anne Lise Lauvstad,
Ingvar Åberge, Svein Saure og dóttir hans Reidun
elduðu ljúffenga hjartarkjötssúpu með grænmeti og
kartöflum. Svein er reyndur hjartarveiðimaður og
lagði til kjötið í súpuna og auk þess bauð hann upp
á ljúffengan heimalagaðan mjöð en við lögðum til
„svartadauða“ og birkisnafs. Hans Lauvstad hafði
skorið út snafsabolla úr birki, gráelri og furu handa
öllum til eignar, flotta minjagripi góðra daga.
Nokkrir af þeim sem voru í Íslandsferðinni 2012
voru með í veislunni og flutti Olai Tefre, fyrrverandi
formaður Skógræktarfélagsins, skemmtilega hug-
vekju um upplifun sína af Íslandi. Sagðist hann meðal
annars oft liggja vakandi og hugsa um þessa enda-
lausu víðáttu með grjóti og aftur grjóti, illa förnu
og gróðursnauðu landi. Augljóst væri að ekki væri
þetta hið náttúrulega ástand heldur afleiðing ellefu
hundrað ára rányrkju á landinu. Kvaðst hann finna