Tímarit FHH - 01.09.1990, Blaðsíða 45
r
VIRKAR FLJOTT
OG VEL GEGN
HÖFUÐVERK
Hver freyðitafla inniheldur: Acidum
acetylsalicylicum 500 mg. Coffeinum 50
mg. Natrii hydrogencarbonas 1,25 g,
Acidum citricum 500 mg, burdarefni q.s.
Eiglnlelkar: Acetýlsalicýlsýra hefur
verkjastillandi, hitalækkandi og bólgueyd-
andi áhrif. Verkanir lyfsins byggjast ad
talsverdu leyti á minnkadri myndun
vissra prostaglandína. Acetýlsalicýlsýra
blokkar einnig myndun tromboxans í
blódflögum, veldur þannig minnkadri
samlodun þeirra og getur lengt blæding-
artima. Lyf'd frásogast frá maga og
smáþörmum og nær blódþéttni hámarki
eftir 40-60 mínútur.
Acetýlsalicýlsýra klofnar hratt í salicýl-
sýru og er helmingunartími í blódi um 30
mínútur. Vid venjulega skammta er
próteinbinding salicýlsýru 80% og
helmingunartími í blódi 2-4 klst. Ef
dagsskammtar eru stærri en 3 g, lengist
helmingunartíminn verulega. Salicýlsýra
og umbrotsefni hennar skiljast ad mestu
út f nýrum.
Koffein hefur væg örvandi áhrif á heilann
og dregur saman heilaædar. Koffein er
talid auka verkjastillandi verkun acetýl-
salicýlsýru. Koffein frásogast hratt og
nær blódþéttnin hámarki innan 1 klst.
Helmingunartími i blódi er 3-4 klst.
Koffein hvarfast f lifur og skilst sídan út í
nýrum.
Ábendlngar: Höfudverkur, tídaverkur,
tannverkur, gigtarverkur, migreni.
Sótthiti.
Frábendingar: Ofnæmi gegn salicýl-
ötum og virkt magasár. Blædingarsjúk-
dómar. Asthma bronchiale.
Aukaverkanir: Getur valdid ofnæmi,
einnig einkennum frá meltingarvegi,
jafnvel sárum á magaslímhúd. Kafmædi
(asthma). Suda fyrir eyrum er einkenni
yfirskömmtunar
Milliverkanir: Lyfid eykurvirkni díkúm-
aróls og annarra blódþynningarlyfja.
Lyfid dregur úr virkni próbenecids.
Eiturverkanir: Einkenni og medferd
eitrunar eru hin sömu og eftir önnur
salicýlöt.
Skammtastærdir handa fullordnum:
Venjulegur skammtur er 1-2 freyditöflur
þrisvar til fjórum sinnum á sólarhring
Freyditöflurnar skal leysa upp í 'h glasi af
köldu vatni.
Skammtastærdir handa börnum:
Lyfid er ekki ætlad börnum.
Pakkningar: 20 stk.; 60 stk.
TREO freyditöflur fara vel í maga og verka fyrr en venjulegar töflur. :
TREO er virkt gegn höfudverk, tídaverkjum, tannverkjum, gigtarverkjum •
og migrene. Lækkar sótthita. !
ð
i
7. árg. J. tbl. 1990
43