Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Page 11

Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Page 11
HILMAR E. GUÐJÓNSSON, Verzlunarskóla íslands: a n n uar áœróur „Hann var særður vegna vorra synda, kraminn vegna vorra misgiörða, og hegn- ingin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum, og fyrir hans benjar urðum vér heilhrigðir". (Jes. 53. 5). Hver er þessi „hann“, sem talað er um í þessu versi? Hver er þessi „hann“, sem var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða? Skelfing spyr ég barnalega. Gerist þess nokkur þörf að spyrja að þessu? Veit þetta ekki hver heil- vita maður? Vita ekki allir, að „hann“ er Jesús Kristur? Jú, sennilega rennur það nú upp fyrir flestum, svona þegar minnzt er á hann, að þeir hafi einhvern tíma heyrt hans getið. Og ef til vill eru einhverjir, sem vita, að hann var merkileg persóna í mannkynssögunni, að tímatal okkar er miðað við fæðingu hans, og þar fram eftir götun- um. En því miður eru þeir teljandi fáir, sem þekkja hann í raun og sannleika. t>ekkja hann sem sinn persónulega frelsara. Frelsara, sem hefur leyst okkur mennina úr viðjum syndarinnar með þvi að taka á sig þá réttmætu hegningu, sem við höfðum til unnið. Og sú hegning, sem við höfð- um til unnið, var dauði. Því að laun syndarinnar er dauði. Og hér er ekki nokkur maður undanskil- inn. „Því að allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð“. (Róm. 3,23). Hverjum einasta manni var því fyrirhúinn eilífur dauði. En almáttugur Guð gat ekki horft upp á það, að við mennirnir dæjum í synd. Til þess var hann of kærleiksríkur. Hann ákvað því að fórna sín- um einkasyni fyrir okkur. „J’ví að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft lif“. (Jóh. 3,16). Er ekki dásamlegur boðskapur fólginn í þessum orðum? Jú, vissulega. Okkur syndugum mönnum, sem ekkert er fyrirbúið nema eilífur dauði, eilif útskúfun úr samfélaginu við Guð, eilíf glötun, okkur er nú veitt sakaruppgjöf, aðeins ef við vilj- um trúa á Jesúm Krist, Guðs son, sem lagði líf sitt í sölurnar fyrir mig og fyrir þig. Er þessi boðskapur ekki þess virði, að við gef- um honum gaum? Höfum við efni á að afneita Jesú Kristi? Ég held ekki. Og ég meira en held ekki, ég veit, að við höfum ekki efni á því. Við' vitum ekki hvenær ævi okkar lýkur hér á jörð. Og erum við þá viðbúin að mæta Guði? Nei, ekki á meðan við enn erum að burðast með syndir okkar sjálf. Ekki meðan við enn höfum ekki kannast við synd okkar og sekt frammi fyrir Guði. Við skulum því snúa okkur til hans í auðmjúkri bæn um fyrir- gefningu synda okkar. Og við skulum ekki draga það neitt, við skulum gera það strax. Það getur orðið of seint að gera það á morgun, en í dag er náðardagur. Og gefum honum hjarta okkar allt. Það þýðir ekki að ætla honum rúm úti í einhverju horni hjartans, en ætla sjálfum sér að ráða yfir hinu. Ef við viljum í raun og veru vera honum trú, verðum við að afhenda honum allt, stórt og smátt. Við verðum að leggja alla hluti fram fyrir Guð og skoða þá í ljósi hans orð og athuga, hvort við gerum hans vilja eða ekki. Ef við álítum eitt- hvað hans vilja, ber okkur að framkvæma þ.að með hjálp Guðs. Því að það er útilokað fyrir okkur að ætla að fela eitthvað fyrir Guði, því að hann Framh. á bls. 17 KRISTILEGT SKÓLABLAÐ 9)

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.