Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Síða 13

Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Síða 13
KRISTNIBOÐI kmtmboðið ætlaði þeim að fara út til heiðinna þjóða með fagnaðarerindið. Síðar kom í ljós, að svo var ekki. Var köllun þeirra þá blekking? Engan veginn. Guð vildi einmitt tendra eld kristniboðsins í hjört- um þeirra, til þess að þeir yrðu máttarstólpar þess heima fyrir. Sjálfur var ég mjög ungur, þegar ég sannfærð- ist um, að Jesús Kristur væri frelsari minn og allra manna. Mér varð ljóst, að án hans gæti ég hvorki lifað né dáið, vegna þess að ég þyrði ekki að horfa framan í Guð. Ég var syndugur maður, sem ekkert hafði fram að bera. En í fylgd með syni Guðs gat ég gengið fram fyrir hann, hvenær sem var. Hann var borgunarmaður minn. Nokkru seinna fór ég einnig að fá áhuga á kristniboði. Þetta tvennt hlýtur að fara saman. Það hlýtur að vera eitthvað ábótavant við trú þess manns, sem Velix Ölafsson krisíniboSi viS smiSar á kristniboSsstöSinni í Konsó. Ljós heimsins engu lætur sig skipta sálarheill þeirra milljóna, sem ekki þekkja Jesúm Krist. Við vitum, að tíman- legt böl þeirra er yfirleitt mikið, en verst er þó hið andlega myrkur, sem umlykur þá. Þeir þekkja ekki Guð. Þeir dýrka skepnuna í stað skaparans og elska sjálfa sig meira en Guð og náungann. Enginn treystir öðrum. Hjátrú, ótti og tortryggni stjórna gjörðum manna. Og þó dó Jesús fyrir þá. Hann elskar þá jafn heitt og hann elskar þig. Hann vill, að þeir verði hólpnir, á sama hátt og hann vill, að þú verðir það. En „hvernig eiga þeir á hann að trúa, ef enginn vill segja honum frá?“ Þar var þitt hlutverk. 1 Suður-Eþíópíu er dálítill íslenzkur kristniboðs- akur. Þar bíða mörg óleyst verkefni. Og þau verk- efni verða ekki framkvæmd nema því aðeins, að kristin æska Islands hlýði kalli Guðs. Þú ættir því að biðja hann að leggja þér svo ómótstæðilega á hjarta útbreiðslu Guðs ríkis, að þú getir ekki ann- að en helgað því líf og krafta. Og svo ætla ég að enda á sama hátt og ég byrj- aði. Það kann að vera, að þú hafir skeytt fremur lítið um andleg mál upp á síðkastið. Þannig fer fýrir svo mörgum á unglingsárunum. En þú biður e. t. v. „Faðir vor“ ennþá, svona öðru hverju að minnsta kosti. Þá biður þú einnig „tilkomi þitt ríki“. Það er bæn fyrir kristniboðinu. Minnstu þess næst, þegar þú ferð með þá bæn og alltaf hér eftir, að Guð skapaði þig einmitt, til þess að sú bæn mætti rætast. Líf þitt nær því aðeins tilgangi sín- um, að þú í samfélagi við hann þjónir honum. Og enga lífshamingju, enga gæfu get ég hugsað mér meiri en þá að fá að vera nálægt honum og vera kallaður samverkamaður hans. KRISTILEGT SKÖLABLAÐ 11

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.