Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Blaðsíða 17

Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Blaðsíða 17
STÍNA GíSLADÓTTIR Menntaskólanum í Reykjavík: Ég yrði ekki undrandi, þótt þú hlægir að þessari spumingu, því að auðvitað hefur þú ekki séð Jesúm. Ég gæti ímyndað mér, að þú mundir svara á þá leið, að Jesús búi á himnum og sé þess vegna fjarri okkur, eða að þú mundir segja, að hann væri ósýnilegur. Þetta er í rauninni mjög eðlilegt svar. Því að ef við tökum það bókstaflega, hefur í raun og veru ekkert okkar, sem nú lifum, séð hann. En hvaða fjarstæða er þá að koma með spurningu af þessu tagi? Er það ekki kjánalegt, úr því að ég játa það sjálf, að þú hafir ekki séð Jes- úm? Nei, ég ætla nefnilega að benda þér á annað. Ég hefi séð Jesúm, ekki í mannslíki, heldur sem lifandi, áþreyfandi staðreynd. Jóhannes segir í upphafi 1. bréfs síns: „Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins.“ Og þó höfðu þeir ekki allir séð Jesúm í mannsmynd. En hvað er þá átt við með þessu? Ég get líkt sýninni við myrkan morgun, þegar nap- ur kuldi ríkir og myrkrið umlykur allt, en svo allt í einu sér þri sólina koma upp og allt verður al- bjart. Þannig er Jesús; birtu leggur af honum. Ég sá Jesúm dag nokkurn, þegar mér fannst eng- inn litur á neinu og allt svo hræðilegt. Hann birt- ist mér þannig, að birta kom úr fjarska og gerði hið nakta og fátæklega fallegt. Bjarminn leið yfir engi — og ég sá hann lýsa upp, jafnvel dimmasta kofa, og umlykja hið hræðilegasta hinni miklu dýrð sinni. Hann lýsti upp hjarta mitt, sem var svartara en allt annað. Hamingjusöm stóð ég frammi fyrir þessari miklu dýrð ljóssins. Þennan bjarma skalt þú samt ekki álíta sólargeisla; hann er miklu meira. Það var bjarminn frá Drottni, hann lýsti upp hið syndum hulda hjarta mitt. Ég vildi gjarnan geta sýnt þér þessa dýrð, en ég get það ekki, og henni verður aldrei lýst. En nú veit ég, hvað það er, og það er þess vegna, sem mig langar einnig til, að þú sjáir þetta. Hér færðu skýringuna á því, sem svo margir spyrja um: „Hvers vegna er þetta fólk að segja okkur frá þessari vitleysu? Ef það er sælt í þessari trú sinni, og við erum sæl eins og við erum, þótt við séum ekki að tilbiðja einhvern Guð, sem alls ekki er svo mikið sem hægt að sjá, því þá ekki að láta okkur vera i friði?“ — Við erum að vísu sæl í okkar trú hvert um sig, en það er meira, sem okkur vantar. Ég hef lifað lífi án Guðs, látið mér allt í léttu rúmi liggja, en ég hef einnig séð Jesúm. Þess vegna veit ég, já, af eigin reynslu, hvernig þér líður, og þess vegna þrái ég, að þú komir til hans. Ég hef reynt hvort tveggja, en þú aðeins annað. Á því sérðu, að ég segi þetta ekki út í blá- inn, en þekki þetta. Ég skil þig einnig vel, en láttu samt eftir. 1 1. Mós. 21. er sagt frá konu, Hagar að nafni, sem var með bara sitt úti í eyðimörk. Vatnið var þá þrotið, sem hún hafði meðferðis, og sagði hún því: „Ég get ekki horft á, að barnið deyi“. Kæri vinur, mig langar einnig til að taka þessi orð mér í munn. Þú ert eitt af börnum Guðs. Hann hefur keypt þig með blóði sínu, er hann úthellti á krossinum. Þú kemst ekki undan. Þótt þú reyndir að fela þig, kæmist þú samt ekki hjá því að vera hans barn, „því að hvort sem vér lifum eða deyj- um, þá erum vér Drottins. Hugsaðu þér móður, sem veit af barni sínu langt í burtu og veit af þján- KRISTILEGT SKÓLABLAÐ 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kristilegt skólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.