Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Síða 24

Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Síða 24
Hvílík sigurvissa og öryggi. Þá skildi ég það bet- ur en nokkru sinni fyrr, hvað þeir eiga mikið, sem eiga slíka von. Og svo lét hann okkur lesa eitt af uppáhaldsritningarorðum sínum, Heb. 12.22, og útlagði það á sinn hátt. Þannig leið síðasta kvöldið, sem við vorum hjá honum. A sunnudagsmorguninn voru guðsþjónustur í öllum þrem kirkjum sveitarinnar, og fór ég í Bergskirkju. Þar messaði einn kennarinn okkar. Margir komu til guðsþjónustunnar, og þótti mér vera sérstakur helgiblær yfir henni. Þangað kom margt fólk úr sveitinni, það hafði frí frá hvers- dagsvinnunni og kom því í kirkju til að hlusta á Guðs orð. Mér var sérstaklega minnisstætt, þegar við, sem í nemendakórnum voru, stóðum fyrir framan fólkið og áttum að syngja, hvað allir voru fullir eftirvæntingar. Það er eins og ég sjái ennþá öll þessi ljómandi andlit. Þegar aftur var komið til Nevlunghavn og við höfðum borðað miðdegisverð, fóru nokkrir nem- endur í gönguferð út fyrir þorpið. Ég slóst í för með þeim, þar sem ég hafði ekkert annað fyrir stafni. Fórum við eftir fáförnum vegi, sem lítið er ekinn. Á einum stað komum við að helli. Opið á honum var tæplega tveir metrar á hæð og einn metri á breidd og lá utan í klettavegg. Við sáum greinilega göngin, sem lágu inn í hann. Það varð úr, að við fórum allir inn til að rannsaka hann LELA Framh. af hls. 14: nokkur kemur til hennar, heilsar og spyr: „Ert þú Chundra Lela?“ „Já, sonur minn. En ég þekki þig ekki“. „Manst þú eftir því, að þú varst við Mag mela í Allahabad fyrir fjórtán árum?“ „Já, ég var þar“. „Minnist þú þess, er þú áttir miklar kapp- ræður við hóp bramatrúarmanna dag nokkurn, að þeir gátu ekki eytt rökum þeim, sem þú barst fram kristindómnum í vil, og hurfu svo á brott, hver á eftir öðrum? Manst þú eftir því, að undir lokin kom hindúadrengur til þín og sagði þér, hversu órór hann væri inni fyrir, og þú sagðir: „Ungi maður, ef þig langar til að hljóta hamingju í þessu lífi og vera öruggur um það líf, sem er fyrir hönd- um, þá afneitaðu hinum falska átrúnaði þínum, og gerztu einlægur kristinn maður“? Ég er ungi pilturinn. Ég gat aldrei losað mig við síðustu setn- inguna. Ég einsetti mér þann dag að kynnast Kristi. 1 tvö ár barðist ég eins og í myrkri án þess betur. Hafði einn piltanna eldspýtur, sem við gát- um notað. Sáum við þá, að hellirinn var gerður af mannahöndum. Seinna var okkur sagt, að þetta hefði verið skotfærageymsla, sem Þjóðverjar not- uðu í stríðinu. Um kvöldið var haldin samkoma í Nevlung- havn. Kveðjusamkoma fyrir allan nemendahóp- inn. Yar þar þéttskipað, og urðu sumir að láta sér nægja að standa. Báðir prestar sveitarinnar (Kobro og Holdskog) voru mættir, og þökkuðu þeir komu okkar fyrir hönd safnaðanna. Tveir af kennurum töluðu á samkomunni, og þess á milli var mikill söngur og hljóðfærasláttur. 1 lok samkomunnar var okkur öllum boðið upp á kaffi. Og er allir höfðu fengið nægju sína, var haldið áfram að syngja. Siðan voru margir, bæði ungir og gamlir, sem vitnuðu um trú sína á Drottin Jesúm, og seinast var endað með bæn. Og nú leið að því, að heim skyldi haldið. Okkur var sagt að fara beint í bílana. Þegar allir voru í þann veginn að fara út, mætti ég gamla manninum. Hann þakkaði mér fyrir komuna og bað mig vel að lifa, og hann bætti við klökkur, að hann hefði alltof lítið minnzt Islands í bænum sínum. Síðan kvaddi hann mig. En ég hélt af stað til bílanna. . . . Lengi hef ég minnzt þessarar ferðar suður til Brunlaness. En alltaf verður það fyrst og fremst þessi gamli maður, sem mér kemur í huga. að finna hann. Það var svo þungbært að yfirgefa allt hans vegna. Loks tók baráttan enda, og ég var skírður og hef verið kristinn í tólf ár. Nú er ég prófessor við skóla Lundúnatrúboðsins í þessum bæ. Allt fólkið mitt heima í þorpinu eru hindúar. LIús föður míns er meira að segja fullt af skurð- goðum. Villt þú nú ekki koma og skýra þeim frá misskilningi þeirra og frá því, hvernig þú fannst Guð?“ Hún fór með honum heim í þorpið hans. Þangað hafði aldrei komið kristniboði. Hún vitnaði um Jesúm Krist dag og nótt í tvær vikur. Og Orðið bar ávöxt. Þannig hélt konan frá Neapel áfram að segja frá honum, sem hafði bundið endi á þjáningar hennar og veitt henni frið í hjarta og verkefni að lifa fyrir. Hún lýsti í myrkri heiðni og hjátrúar, unz meistari hennar og frelsari kallaði hana heim til síns eilífa fagnaðar. 22 KRISTILEGT SKÓLABLAÐ

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.