Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Blaðsíða 32

Kristilegt skólablað - 01.09.1959, Blaðsíða 32
RtJNA GlSLADÓTTIR, Kennaraskóla Islands: Rúna Gísladóttir Við getum lagt mismunandi merkingu í sögn- ina að sofa. Menn geta t. d. verið sofandi á einu sviði, en vel vakandi á öðru. Yfirleitt eru menn vel vakandi og hafa bæði eyru opin, ef rætt er um eitthvert áhugamál þeirra. En aftur á móti verða þeir sljóir og þungir, ef eitthvað, að þeirra dómi lítils virði eða þrautleiðinlegt, ber á góma. Til er bæði líkamlegur og andlegur svefn. Stór- mikill munur er á þessu tvennu, en þó er það hvað öðru skylt. Eitt er að sofa líkamlegum og annað að sofa andlegum svefni. Líkamlegur svefn er manninum nauðsynlegur til hvíldar og endur- heimtingar bæði andlegra og líkamlegra krafta frá degi til dags. Nægur Hkamlegur svefn er því að einhverju leyti undirstaða andlegrar vöku. En nú spyr einhver: „Hvað um andlega svefn- inn, er hann nauðsynlegur?“ Ja — sumir halda, að hann sé hollur, þeim finnst gott að geta „slapp- að af“, og vilja helzt vera lausir við „heimspeki- leg heilabrot“, eins og þeir komast að orði. En er þetta rétt hugsað? Lifum við mennirnir hér á jörðinni aðeins til þess að slappa af og láta okkur líða sem bezt? Nei, áreiðanlega ekki. Einhver til- gangur hlýtur að vera með lífi okkar hér. „En hvernig er hægt að vita, hver sá rétti tilgangur tilveru okkar er?“ spyr þú kannske. „Einn segir eitt og annar segir hitt, og hverjum á ég að trúa?“ — En þú hefðir átt að hugsa þig svolítið um, áður en þú barst þessa spurningu fram. Þegar þú varst 10 ára, byrjaðir þú að læra biblíusögur, eða að minnsta kosti gerir skólaskyldan ráð fyrir því. Og ef þú rifjar upp í huga þér frásögnina af því, þegar Jesús kallaði fyrstu lærisveinana, þá manstu e. t. v., hvað hann sagði. Orðin voru ekki mörg, en þau voru ákveðin og gagnmerk: „Fylg þú mér“. Þessi orð sagði hann ekki aðeins við fyrstu lærisveinana, heldur segir hann þau við sérhvern mann enn í dag. Enn í dag er hann að kalla til sín lærisveina, og hann kallar einnig á þig. Hann kallar til þín hárri raustu: „Vakna þú sem sefur og rís upp —“ °g »fylg þú mér“. Og hvernig er þá ástatt með þig, ætlar þú að hlýða kalli hans? Eða ætlar þú að slá hendinni á móti boði hans, hafna honum? „Sá, sem ekki er með mér, er á móti mér, og sá, sem ekki saman- safnar með mér, hann sundurdreifir“, segir Jesús. Einnig segir hann: „Sá, sem trúir, hefir eilíft líf“ og „þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka“. Hversu dásamlegt er að mega trúa slíkum fyrirheitum og treysta þvi, að þá munum við eiga eilíft líf í vændum. Ennfremur segir Jesús: „Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu alls ekki undir lok líða. En um þann dag og stund veit enginn, ekki einu sinni englar himnanna né sonurinn, heldur aðeins faðirinn einn“. „Fyrir því skulið og þér vera viðbúnir, því að mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér eigið ætlið“. Á þessu sjáum við, að við fáum ekki endalausan frest til þess að veita gleðiboðskapnum viðtöku. Við verðum ávallt að vera viðbúin þvi, að Jesús kalli okkur fram fyrir sig á hvaða augnabliki sem er, og þá verðum við að gera honum reikningsskil. Jesús segir okkur að vaka og biðja, því að við vitum eigi daginn né stundina, þ. e. a. s. við vitum ekki á hvaða degi eða stundu við megum eiga von á því, að Kristur komi aftur. Við eigum að vaka og biðja og með bæninni að reyna að komast í snertingu við Guð. Það er Framh. á bls. 32 30 KRISTILEGT SKÓLABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Kristilegt skólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.