Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 40
44
TlÐINDI
og síðan hefir Guðskristni verið við líði hér í sveit, nú um 1000
ára skeið.
Það er álit manna, að Gullsteinn sé nefndur svo, vegna
þeirra helgi er hann hefir haft í hugum og hjörtum manna
um alda raðir.
Arangurinn af kristniboði þeirra félaga hefir orðið allmikill
þótt andstaða hafi magnast gegn þeim víða um land, eins og
áður er sagt. En fullyrða má, að þeir hafi með starfi sínu rutt
veginn til þeirra atburða, er síðar áttu eftir að verða, svo sem
Kristnitökunnar árið 1000.
Hér handan ár blasir höfuðbólið Þingeyrar við sjónum.
Vitnisburður bóndasonarins frá Stóru-Giljá, átti eftir að bera
ávöxt og margfaldast í hjörtum kynslóðanna og verða það
andlega afl, er gerði Þingeyrar, að því helgisetri fræðiiðkana
og Guðskristni, er staðurinn var um margar aldir. Sú saga skal
eigi frekar rakin hér.
Þessi merka saga og atburðirnir er hér gerðust eru maklegt
hugleiðingarefni hér í dag, þegar vér fáum að lifa stóra hátíð
á fornum söguslóðum og vér minnumst þeirra, er fyrstir hófu
á loft merki Guðs trúar á íslandi. Hún tengir í raun allar
kynslóðir sem hér hafa beðið og lofsungið. Hún sameinar allar
kynslóðir Islands í þúsund ár.
Slíkt tilefni segir oss, að kristin vitund með oss i 1000 ár hafi
borið uppi þann trúararf, er oss er ætlað að fela í hendur
komandi kynslóðum.
Sú vissa skyldi bergmála djúpt og sterkt með oss hér á
þessum stað við steininn stóra og óhagganlega, sem hefir
öllum helgum minjum staðið lengur og vitnað öllum öðrum
dómum lengur um mátt Guðs og dýrð.
Kynslóðir koma og kynslóðir hverfa. En allar þær kynslóð-
ir, er hér hafa lifað og hrærst, hafa horft við steininum stóra,
sem tákni um sigurmátt Krists. Guðskristni hafði borið sigur
af hólmi. Það lýsti af nýjum degi yfir þessum stað, yfir þessari
sveit, yfir íslandi. Mætti það ljós um ókomin ár og aldir lýsa
landinu kalda.