Helgarpósturinn - 11.12.1986, Page 2
URJONSBOK
Jólaglaðningur
eftir Jón Örn Marinósson
Þá eru Ási og Gunnar Joð búnir að færa
okkur sinn jólaglaðning, brauð handa börn-
unum að bíta í og mikið af kjúklingum og
ódýrum kartöflum.
Þó að ég sé eins og þið öll hin og þar með
talin Jóhanna stíftönn afskaplega friðelsk-
andi maður verð ég að játa að ég var farinn
að vona innst inni að upp úr syði í Garða-
strætinu, við fengjum að sjá í beinni útsend-
ingu langþreytta samningamenn að tvístrast
í allar áttir í prófkjarastíl, gefa eitraðar yfir-
lýsingar og vera með alvöruþunga i fasi og
áhyggjusvip. Mér fannst óbærilegt að hugsa
til þess í fábreytni skammdegisverunnar á Is-
landi að tveir helstu erkifjendur þjóðfélags-
ins næðu sáttum án nokkurra átaka. Slíkt var
gagnstætt þeim anda sem ríkt hefur meðal
manna síðan um leiðtogafund og spillt sér-
hverri tilraun til samkomulags, okkur hinum
til skemmtunar, splundrað stjórnmálaflokk-
um og sökkt hvalbátum og hjálparstofn-
unum.
En samningamenn brugðust. Eftir snarpan
upphafssprett, þar sem verkalýðshreyfingin
var á góðri leið með að klofna í jafnmargar
einingar og Framsóknarflokkurinn og fullyrt
á báða bóga að mikið bæri á milli, gerðist
það allt í einu að forkólfar launamanna og
atvinnurekenda drógu upp penna sina og
skrifuðu undir samning. Þjóðin stóð agn-
dofa. Ljósritunarvél vinnuveitenda svelgdist
á samkomulaginu. En allt kom fyrir ekki. Á
meðan ríkisstjórnin kynnti sér hvaða verk-
efnum henni hafði verið úthlutað í Garða-
stræti, tók Ási í höndin á Gunnari Joð og
Gunnar Joð tók í höndina á Ása og þeir
færðu okkur brosandi umsaminn jólaglaðn-
ing.
Eins og ég gaf í skyn áðan urðu það mér
nokkur vonbrigði að ekki skyldi koma til
neinna átaka, verkfalla og vinnudeilna, en
það birti yfir í huga mér jafnskjótt og ég
hafði kynnt mér hinn nýja kjarasamning.
Olli því ekki einungis að í minn hlut koma
umtalsverðar launahækkanir, heldur einnig
hitt og það reyndar miklu fremur að í sam-
komulaginu er fólgið fyrirheit um ennþá
meira ósamkomulag en það sem hratt mönn-
um út í nýafstaðna næturfundi. Þegar grannt
var skoðað reyndist hinn nýi kjarasamningur
vera í meginatriðum kjarasamningur um að
ekki hefði tekist að ná kjarasamningum og
samningsaðilar ásáttir um að upphefja arg-
vítugar illdeilur og Iaunakarp að lokinni frið-
helgi jóla. Ég efast um að gert hafi verið hald-
betra samkomulag í háa herrans tíð og þökk
sé þeim sem duttu niður á þessa leið til sátta
og færðu þjóð sinni jólaglaðning.
En þá er komið að okkur hinum að finna jóla-
glaðning handa vísitölufjölskyldunni, ein-
kanlega að eiginmönnum að leysa þá ótta-
legu ráðgátu hvað eigi að gefa eiginkonunni
í jólagjöf. Hvað sem líður fullyrðingum um
að á kynjunum sé enginn munur, þá er það
plága, sem leggst einungis á karlmenn, að
jjurfa að finna eitthvað handa konunni í
jólagjöf.
Venjulega fara eiginmenn að huga að
næstu jólagjöf handa konunni þegar þeir sjá
hana taka utan af pakkanum á aðfangadags-
kvöld og hún reynir að leyna vonbrigðum
sínum með viðkvæmnislegu uppgerðar-
brosi. Þeir strengja þess heit að fara að leysa
ráðgátuna um jólagjöf handa konunni í sept-
ember næsta haust, finna læsast um mjó-
hrygginn á sér nístandi hroll, þegar þeir upp-
götva í byrjun desember að þeir gleymdu að
JÓN ÓSKAR
leysa ráðgátuna í september, og æða síðan í
skelfingu sinni niður í bæ fyrir hádegi á að-
fangadag og kaupa eitthvað handa konunni
í síðustu búðinni sem þeir álpast í fyrir lokun.
Þeir gleyma svo að kaupa jólapappír og
merkimiða og niðurstaðan verður enn einu
sinni hin sama og áður: konan getur ekki
leynt vonbrigðunum þar sem hún leysir
þvældan umbúðapappír utan af sjöttu hár-
þurrkunni sem hún fær frá eiginmanninum
á tíu árum.
Jólaglaðningur handa eiginkonunni getur
verið með ýmsu móti. Eftir fjörutíu ára
hjónaband lýsir mikilli hugulsemi til dæmis
að gefa henni ullarsjal, góða flókainniskó,
mannbrodda eða gleraugnahylki. Hafi mað-
ur verið giftur sömu konunni í tiltölulega
skamman tíma, eitt til þrjú ár, er sjálfsagt að
gefa henni skartgrip. Hafi vísitölufaðirinn
ekki efni á því, þrátt fyrir nýgerða kjara-
samninga, er hægt að færa henni ljóðabók
og fullyrða um leið að skartgripum sé í reynd
ofaukið á þennan hvíta, fagurmótaða háls
eða þessar nettu, undurmjúku hendur. Hafi
konan hvorki fagurmótaðan háls né undur-
mjúkar hendur, má láta fylgja með ljóða-
bókinni athugasemd þess efnis að konur
þurfi ekki á skartgripum að halda fyrr en feg-
urðin taki að dofna um miðjan aldur. Sé kon-
an á miðjum aldri, þar sem hún situr von-
svikin með ljóðabókina, verður vísitölufað-
irinn að segja eins og er, að það, sem átti að
fara í skartgripi handa henni, hafi farið i
skrautfjaðrir handa Ása og Gunnari Joð og
kjarabætur og kjúklingabringur handa hin-
um lægstlaunuðu.
Ýmiss konar nytjahlutir til persónulegrar
endurnýjunar fyrir eiginkonuna geta og ver-
ið mikill jólaglaðningur sem nýtist vísitölu-
föðurnum óbeint. Verður einungis að gæta
fjölbreytni í vali slíkra nytjahluta milli ára. Ég
þekki til dæmis eiginkonu (aðra en mína eig-
in) sem fékk sjö jól í röð nuddsvæfil, herða-
nuddtæki, fótanuddtæki, mjaðmanuddtæki,
tölvustýrðan magavöðvanuddpúða, brjósta-
nuddtæki og mjóhryggjarnuddstöng, sem
má tengja við gervihnattarloftnet. Maðurinn
hennar gaf henni þessa nytjahluti, einn af
öðrum, í góðri trú og fór þar eftir ráðlegg-
ingum landskunnra nuddara eins og Ása Stef
og Gvendar Joð. Konan fékk að lokum krón-
ískan vöðvatitring eins og geirvörturnar á
Jóni Páli, var send til meðferðar á nuddstofu,
féll fyrir nuddaranum og skildi við eigin-
manninn sem situr nú einn í kjallaraholu í
austurbænum með öll nuddtækin og hið átt-
unda í tilbót.
Vissulega er að ýmsu að huga þegar upp
kemur spurningin um hvað eigi að gefa eig-
inkonunni í jólaglaðning. En vísitölufaðirinn
ætti framar öllu að hafa í huga að spyrja
aldrei vísitölufrúna í hvað hana langi í jóla-
gjöf. Hún er nefnilega vís með að svara slíkri
spurningu eins og Asi svaraði Gunnari Joð:
„Mig vantar sosum ekki neitt, elskan mín.
Vertu ekki að hafa neinar áhyggjur. Kannski
svolítið handa hinum lægstlaunuðu." En slíkt
svar er — líkt og síðustu samningar í Garða-
stræti — vísbending um að maður eigi enga
undankomuleið, hvort sem maður er laun-
þegi, atvinnurekandi, ráðherra í ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar eða ljósritunar-
vél hjá vinnuveitendasambandinu. Það er
ekki ástæða til að taka meira mark á slíku til-
svari en umsömdum kauptöxtum eða úrslit-
um prófkjörs.
HAUKURIHORNI
Jólakötturinn
„Svekkta liöið meö
næstlægstu launin ku
fara þangað þessi jól-
in..."
2 HELGARPÓSTURINN