Helgarpósturinn - 11.12.1986, Side 29
KING
færslum oft á tíðum því efni og litir
geta verið hinir fjölbreytilegustu.
Smóking getur þannig verið
þessi hefðbundni svarti eða í líflegri
litum úr sléttu flaueli eða riffluðu og
jafnvel silki. Undir er gjarnan vesti úr
sama efni eða einhverju allt öðru og
oft ansi frumlegt í sniði. Hvít skyrta
fylgir oftast en með margvíslegum
útfærslum til að auka fjölbreytnina. '
Og þverslaufa er auðvitað skilyrði
með slíkum klæðnaði.
Þaö var auðvitað varla við öðru að
búast nú þegar dömurnar eru
klæddar pelli og purpura frá toppi til
táar. Jafnvel gömlu góðu jakkafötin
verða örlítið hjákátleg vð hliðina á
slíkum skrautklæðnaði. En þó form-
festan sé nú endurvakin og glæsi-
leikinn allsráðandi, má hugga sig við
að klæðnaðurinn nú er miklum mun
þægilegri en var hér á árum áður
þegar flibbarnir voru svo stífir að
menn gátu varla snúið höfði. Efnin
eru mýkri og yfirbragðið allt afslapp-
aðra og samt fyrst og fremst
glæsilegt.
Þó merkja megi greinilegt athvarf til formfestu og glæsileika fimmta og sjötta áratugarins í tískunni í dag, er Ijóst að aldrei hefur verið meiri vídd og
meira frelsi í klæðaburði en einmitt núna. Við slíkar aðstæður getur oft verið erfitt að falla ekki í fjöldann. Það þarf töluvert til að vekja athygli, nú
þegar allt er leyfilegt. Yngri kynslóðin í dag er ekkert frábrugðin þeim sem á undan eru gengnar að því leyti að hún vill gjarnan skera sig úr, brjóta
upp það sem hefðbundið er — vekja athygli. Það tekst oft á tíðum. Kúnstin er að skapa sér sína eigin ímynd — útlit sem ber vitni urn hugmyndaflug
og áræði þess sem klæðnaðinn ber. Þetta krefst ekkert minni umhugsunar eða vandvirkni en hitt, þar sem hver smáhlutur er valinn eftir viðurkenndri
uppskrift. Og útkoman er oft vægast sagt óvenjuleg. Það er eftir þeirri línu sem þeir feta sig herrarnir á myndunum sem hér fylgja með. Flíkurnar
eru flestar nokkuð sígildar og viðurkenndar af fjöldanum, en í þeim samsetningum sem hér sjást, fá þær óneitanlega á sig nýja mynd. Ekki satt?
B Ö R N E R U
r
í jólaskapi. Litlar dömur og litlir herrar
— tilbúin á jólaballið. Eins og sjá má eru
áhrifin sótt til eldri kynslóðarinnar og
fjölbreytnin engu minni en hjá þeim eldri.
Tískan nær ekki aðeins til hinna
fullorðnu. Barnatíska er heilmikill
„bísness" úti í heimi og áhrif hennar
berast hingað furðu fljótt. Allir helstu
tískukóngarnir hafa barnafatahönnun
sem eins konar aukabúgrein. Þeir byrja
gjarnan á kvenfatnaðinum, færa sig yf-
ir í herralínu og bæta svo barnafatnað-
inum við þegar frægðin hefur náð há-
marki. Ekki svo að skilja að barnafatn-
aðurinn mæti afgangi. í hann er oft
heilmikið lagt og línan er oftar en ekki
lögð í takt við það sem hæst ber í heimi
þeirra fullorðnu.
Ekki þó alveg. Undanfarin ár hefur
það orðið eins konar lögmál á barna-
fataframleiðslunni að fyrst og fremst
skuli fötin vera þægileg, — víð snið,
mjúk og náttúruleg efni. Litagleði er
einnig meiri í fötum þeirra smávöxnu,
Hlýtt og notalegt. Sjálfsagt þætti okk-
ur þetta helst til fínt svona hvunndags í
skólann, en (útlöndum myndi varla nokk-
ur maður reka upp stór augu. Að öðru
leyti verður ekki betur séð en þetta henti
okkur ágætlega. — Hlýtt, skjólgott og
notalegt.
L í K A F Ó L K
skærir og bjartir litir klæða betur litla
kroppa sem enn eru ekki vaxnir upp úr
því að upplifa lífið og tilveruna í marg-
brotnum litum. Og íveturerengin und-
antekning á.
Sígilda línan er alltaf vinsæl í barna-
fatnaði. Líkt og hjá hinum fullorðnu er
hún nokkuð íhaldssöm í sniðum, efnis-
vali og litum. Þar sjást helst dökkblátt,
kóngablátt, vínrautt, hárautt, gult og
hvítt. Og svart er ekki óalgengt í slíkum
flíkum. Sniðin eru látlaus, sígild buxna-
snið, felld og rykkt pils, einlitar eða hóf-
lega mynstraðar peysur, skyrtur og
blússur einlitar, köflóttar og röndóttar.
Útkoman verður litlar dömur og litlir
herrar — smækkuð mynd úr heimi
hinna fullorðnu.
Þó kroppalínan nái tæpast að skjóta
rótum hjá þeim yngstu, er tískan í vetur
Smáfólk. Bústin og búraleg ( mjúkum
og meðfærilegum fKkum og boðleg hvar
sem er.
þó glettilega í takt við eldri kynslóðina.
Enda er margt bæði nýtilegt og mjög
hentugt fyrir litlar sálir. Þannig er end-
urkoma prjónafatnaðar gleðileg til-
breyting fyrir börnin. Prjónakjólar heilir
og tvískiptir eru áberandi, enda bæði
þægilegar og klæðilegar flíkur. Og úr-
valið af peysum hefur sjaldan eða
aldrei verið meira. Gallalínan er einnig
bráðhentug fyrir litla pottorma og á
meðan heilsuæðinu linnir ekki hjá hin-
um fullorðnu, getum við vonandi treyst
því að áfram verði „jogging'-gallar á
boðstólum.
En þó orð séu til alls fyrst, eru það
myndir og aftur myndir sem gefa besta
hugmynd um hvað er að gerast í barna-
tískunni. Við látum hér fylgja nokkrar
hugmyndir um það sem ítölum hugn-
ast hvað helst í þessum efnum.
Fyrir litla Gunnu og lítinn Jón.
„Skórnir skipta máli" — segja þeir full-
orðnu og hið sama gildir auðvitað um
smáfólkið. Leður, lakk og satín — allt eftir
tilefnum og ástæðum.
E
M
Tímaritid sem allir
tala um
M Y
.»
HELGARPÓSTURINN 29