Helgarpósturinn - 27.08.1987, Page 8
EFIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON MYNDIR JIM SMART OG LOFTUR ATLI
Fyrsta skodanakönnun
á fylgi flokkanna eftir kosningar
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
AFTUR KOMINN Í 40% FYLGI
A-flokkarnir tapa báöir. Alþýðubandalagið minnstur þingflokka. Fram-
sókn og Kvennalisti halda sínu. Borgaraflokkurinn tapar lítillega.
Þjóðarflokkurinn með mann inni.
Samkvœmt skoðanakönnunirmi
sem hér er birt hefur Sjálfstœdis-
flokkurinn nú endurheimt fyrra
fylgi sitt eftir hrunið í kosningunum
í apríl. Nú mœlist fylgi flokksins í
fjörutíu prósentum, en í kosningun-
um fékk hann rúmlega 27 prósent
atkuœða. Til samanburðar má geta
þess að í kosningunum 1983 fékk
Sjálfstœðisflokkurinn 38,7 prósent
atkvœða. Fylgi hans nú er því rúm-
um tveimur prósentum meira en þá.
Ef gengið yrði til kosninga í dag
fengi Sjálfstœðisflokkurinn líklega
25 þingmenn, bœtti við sig einum
sjö þingrnönnum frá síðustu kosn-
ingum. Samkvœmt könnuninni hef-
ur flokkurinn nú endurheimt ótví-
rœtt forystuhlutverk sitt í íslenskum
stjórnmálum.
Þessi niðurstaða skoðanakönnun-
arinnar kemur sjálfsagt mörgum
á óvart. Þorsteinn Pálsson, formað-
ur flokksins, hefur að undanförnu
verið harðlega gagnrýndur, bæði af
fylgismönnum Sj álfstæðisflokksins
og annarra flokka. Hann hefur varla
tekið svo ákvörðun eða sagt skoðun
sína, að menn hafi ekki ruðst fram
og skýrt það sem veikleikamerki á
formanninum.
Þorsteinn var talinn hafa selt sig
of dýrt í forsætisráðherrastólinn.
Önnur ráðherraembætti flokksins
þykja heldur veigalítil. Þá þótti
stjórnarsáttmálinn bera lítinn svip
af stefnumálum Sjálfstæðisflokks-
ins. Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnar-
innar undir hans forsæti voru fálm-
kenndar og mæltust illa fyrir. Þá
hefur Þorsteinn verið gagnrýndur
fyrir framgöngu sína í Útvegsbanka-
málinu og þá einkum fyrir skoðana-
könnunina meða! fulltrúaráðs-
manna.
En þetta virðist ekki hafa dregið
fylgi frá flokknum. Þvert á móti
virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn
hafi sópað til sín öllu því fylgi er
hann missti í síðustu kosningum. Ef
til vill kann hluti af skýringunni að
liggja í því, að fyrrum fylgismönn-
um Sjálfstæðisflokksins hafi blöskr-
að útreið hans í kosningunum. Að
fólk vilji hafa Sjálfstæðisflokkinn
stóran.
Alþýðubandalagið heldur áfram á
niðurleið, samkvæmt þessari könn-
un. Það er nú komið niður í rétt
rúmlega átta prósenta fylgi og er
samkvæmt könnuninni nú minnsti
þingflokkurinn. Skýringuna á fylg-
istapi Alþýðubandalagsins er sjálf-
sagt auðvelt að finna. Flokkurinn
er í sárum eftir innanhússátök og
fátt bendir til þess að þeim fari að
ljúka. Það má jafnvel segja, að eng-
inn tali verr um Alþýðubandalagið
en einmitt félagar þess.
Alþýðuflokkurinn tapar fylgi sam-
kvæmt könnuninni. Fer úr rúmum
fimmtán prósentum frá síðustu
kosningum og niður í tæp tólf
prósent. Þar með er flokkurinn
komið með álíka fylgi og hann hafði
í kosningunum 1983. Jón Baldvin
Hannibalsson, sem kallaður var af
flokkssystkinum sínum tuttugupró-
sentamaðurinn þegar best gekk fyr-
ir síðustu kosningar, getur nú horfst
í augu við að hafa aftur komið
flokknum niður í það fylgi er hann
hafði er hann tók við formennsku.
Borgaraflokkurinn hefur einnig
tapað fylgi, þó það skýri á engan
hátt sveifluna yfir til Sjálfstæðis-
flokksins. I ljósi þess hversu Iítið hef-
ur farið fyrir Borgaraflokknum að
undanförnu geta fylgismenn þessa
flokks litið á þessa skoðanakönnun
með nokkurri ánægju. Borgara-
flokkurinn virðist vera kominn til að
vera.
Kvennalisti og Framsókn standa í
stað frá kosningunum, eða halda
sínu, eftir því hvernig litið er á mál-
Ríkisstjórnm eykur fylgi sitt
Ríkisstjórnin virðist hafa aukið
fylgi sitt á síðastliðnum mánuði. í
skoðanakönnun sem birt var hér í
Helgarpóstinum 16. júlí naul hún
fylgis 54,6% þeirra sem tóku af-
stöðu. Samkvœmt þeirri könnun
sem nú birtist hefur hún aukið fylgi
sitt upp í 63,8%.
Þessi niðurstaða kemur sjálfsagt
mörgum á óvart. Frá því síðasta
könnun var gerð hefur ríkisstjórnin
lent í nokkrum vondum málum.
Fyrstu aðgerðir hennar reyndust
ýmist gallaðar eða máttvana.
Hvalamálið komst í hnút. Ríkis-
stjórninni virðist um megn að leysa
Útvegsbankamálið.
En hvað um það, þá eykur hún
fylgi sitt. Fylgi hennar er rétt undir
samanlögðu fylgi þeirra flokka sem
að henni standa, svo ætla má að
fylgismenn þeirra séu nokkuð sáttir.
Reyndar er fylgisaukningin ekki
ýkja mikil, eða 9,2%.
Styður þú núverandi ríkisstjórn eða ekki?
Fjöldi % af úrtaki % af þeim sem tóku afstöðu Júlí 1987
Styð stjórnina 310 38,8% 63,8% 54,6%
Andvígur stjórninni 176 22,0% 36,2% 45,4%
Ekki viss 72 9,0%
Svara ekki 1 0,1 %
Náðist ekki í 240 30,0%
Alls 799 100,0%
ið. Eins og Borgaraflokkurinn hefur
Kvennalistinn lítið haft sig í frammi
á undangengnum mánuðum, en
það virðist ekki koma niður á fylgi
hans. Það virðist vera föst stærð.
Framsókn heldur sömuleiðis sínu,
þrátt fyrir landbúnaðarmál, hvala-
mál og Sambandið.
Útkoma Þjóðarflokksins í þessari
könnun kemur sjálfsagt á óvart.
Samkvæmt henni næði flokkurinn
manni inn einhvers staðar á lands-
byggðinni. Þjóðarflokksmenn hafa
lýst því yfir að þeir stefni á næstu
kosningar og þessi skoðanakönnun
ætti ekki að draga kjarkinn úr þeim.
GREINARGERÐ
SKÁÍS
Þessi skoðanakönnun var
gerð mánudaginn og þriðjudag-
inn 24. og 25. ágúst 1987. Hringt
var í handahófsúrtak 799 ein-
staklinga á öllu landinu sam-
kvæmt tölvuskrá um símanúmer
einstaklinga. Spurningum var
beint til þeirra sem svöruðu og
voru 18 ára eða eldri.
Úrtakið skiptist í þrjú svæði:
Reykjavík (310 númer), Reykja-
nes (179) númer) og landsbyggð-
in (310 númer).
Spurt var í þessari röð:
1. Ert þú fylgjandi því að selja
Útvegsbankann? Ef svo er,
hverjum?
2. Ert þú fylgjandi því að selja
Búnaðarbankann?
3. Styður þú núverandi ríkis-
stjórn eða ekki?
4. Ef kosið væri til alþingis
núna, hvaða flokk myndirðu
kjósa?
Niðurstöður birtast í meðfylgj-
andi töflum og súluritum.
Ef kosið yrði til alþingiskosninga núna, hvaða flokk myndir þú kjósa?
Fjöldi % af úrtaki % af þeim sem tóku afstöðu Þingmenn Kosningar apríl '87
Alþýðuflokkur 46 8,4% 12,2% 7—8 15,2% (10)
Framsóknarflokkur 73 11,5% 16,7% 12—13 18,9% (13)
Bandalag jafnaðarmanna 1 0,2% 0,3% 0 0,2% (—)
Sjálfstæðisflokkur 155 28,2% 41,0% 25—27 27,2% (18)
Alþýðubandalag 32 5,8% 8,5% 5—6 13,3% ( 8)
Kvennalisti 38 6,9% 10,1% 6 10,1% ( 8)
Flokkur mannsins 2 0,4% 0,5% 0 1,6% (—)
Borgaraflokkur 33 6,0% 8,7% 5 10,9% ( 7)
Þjóðarflokkur 8 1,5% 2,1 % 0—1 1,3% (—)
Skila auðu/kjósa ekki 31 5,6%
Ekki viss 85 15,5%
Svara ekki 55 10,0%
Samtals 559 100,0%
Þorsteinn Pálsson: Hefur unnið aftur
fylgistapið frá kosningunum.
Jón Baldvin Hannibalsson: Hefur nú
komið Alþýðuflokknum niður í það
fylgi er hann hafði í kosningunum
1983.
Svavar Gestsson: Alþýðubandalagið
heldur áfram að minnka og er nú orðið
minnsti þingflokkurinn.
8 HELGARPÓSTURINN