Helgarpósturinn - 15.10.1987, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 15.10.1987, Blaðsíða 14
Sjúkdómur, sem herjar á fjölmiðlafólk og aðra sem nota mikið tölvur, hefur að undanförnu verið vinsælt umfjöllunarefni erlendis. Um er að ræða afar kvalafulla verki í höndum og handleggjum. Margt veldur því, að íslendingum gæti verið hættara við kvillum af þessum toga en fólki af öðru þjóðerni. EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR MYND JIM SMART Þeir, sem vinna við tölvuskjá allan daginn, vita að þessu tækniundri fylgja frábærir kostir. Þeir vita hins vegar líka, að þaö er ekki eingöngu tekið út með sældinni að sitja vikum Þeir, sem hreyfa þurfa ákveðinn lík- amshluta ótt og títt við vinnu sína, eiga á hættu að fá bólgur vegna nún- ings sina og sinaslíðra. saman fyrir framan tölvu. Því já- kvæða í lífinu fylgir nefnilega oft eitthvað miður skemmtilegt: Engin rós án þyrna, engin tölva án tára — sársaukatára... Erlend fjölmiðlatimarit hafa að undanförnu birt greinar um hræði- legan sjúkdóm, sem herjar á hendur og handleggi blaðamanna sem vinna við tölvur. Samkvæmt frá- sögnunum hefur sjúkdómurinn höggvið stórt skarð í ritstjórnir og fréttastofur og margir hafa hrein- lega hrakist úr stéttinni af þessum sökum. Fer ekki nánari sögum af hinum horfnu félögum, nema hvað þeir sitja víst einhvers staðar með þéttvafðar hendur og bryðja verkja- töflur. ÓEÐLILEGT AÐ FINNA EKKI TIL Það er nú ljótt að tala í hálfkær- ingi um sárþjáða stéttarbræður sína í útlöndum, en umræðan um hinn „nýja“ blaðamannasjúkdóm er ein- faldlega dæmi um áhuga fjölmiðla- (manna) á sjálfum sér. Sjúkdómurinn er nefnilega hvorki nýr né herjar mest á fjölmiðlafólk. Allir, sem vinna langtímum saman við tölvur, egar menn hreyfa sama líkams- hlutann ótt og títt, en eru ad öðru leyti hreyfingarlausir, myndast óeðlilegt álag á vöðva og sinar. Streita og þreyta gera síðan illt verra. eiga á hættu að fá afar kvalafulla verki í hendur og handleggi — að ekki sé minnst á axlir, háls og herð- ar. Þar að auki er ekki um einhvern einn krankleika að ræða, heldur þrjá: vöðvagigt, sinaskeiðabólgu og svokölluð festumein. Það er þó auðvitað ekkert gaman- mál að veikjast af þessari tölvuveiki, sem upp á enskuna kallast RSl (repetitive strain injury) eða ,,sí- hreyfingarmein". Kvalirnar geta verið gífurlegar, fyrir utan önnur óþægindi sem af veikindunum hljót- 14 HELGARPÓSTURINN ast. Og, eins og fyrr segir, þurfa sum- ir að söðla algjörlega um í lífinu eftir að þetta fer að hrjá þá. Samkvæmt nýlegri könnun Vinnueftirlitsins er það síður en svo óvanalegt að Islendingar líði kvalir. Vel yfir helmingi þjóðarinnar þjáist af bak-, háls- eða herðaverkjum á ári hverju. Dr Helgi Gudbergsson, sér- fræðingur í atvinnusjúkdómum hjá Heilsuuerndarstöd Reykjauíkur, seg- ir þetta vera „nánast eðlilegt ástand" fremur en undantekningu. Það virðist Ijóst, að tölvur — þessi töfratæki — hafa síður en svo minnkað vandann. En hvers vegna aukast atvinnutengdir sjúkdómar við að skipt er úr ritvélum yfir í tölv- ur? Ástæðurnar geta verið margar. Helgi Guðbergsson telur að þær megi m.a. rekja til þess að nú vinna fleiri við lyklaborð en unnu áður við ritvélar. Það eru ekki eingöngu stéttir, sem áður þurftu mikið að vélrita, sem orðnar eru tölvuvædd- ar. Vinnuhraði hefur líka aukist vegna þægilegri ásláttar og þar að auki fylgir því oft meiri streita að nota tölvu en ritvél, a.m.k. á meðan tækið er enn tiltölulega framandi fyrir notendum. Um leið og kyn- slóðir, sem kynnst hafa tölvum snemma í skólakerfinu, koma út á vinnumarkaðinn ættu áhrif síðast- nefnda þáttarins því vonandi að minnka. ÍSLENDINGAR í MIKILLI ÁHÆTTU Þeir tölvuþrælar, sem farnir eru að finna fyrir einhverjum óþægind- um í höndum, handleggjum, hálsi, öxlum eða baki, ættu endilega að kanna hver orsökin að baki verkjun- um er. Það þýðir lítið að fara t.d. í nudd eða gera aðrar ráðstafanir til að iina þjáningarnar án þess að tak- ast á við rót vandans — sé það á ann- að borð mögulegt. Mikil síhreyfing einkennir tölvu- vinnu. Við hana getur orsakast nún- ingur á sinum og sinaslíðrum (sina- skeiðum), sem síðan veldur sárs- aukafullum bólgum. Fólk, sem er í sæmilegri þjálfun, verður þessum bólgum síður að bráð en þeir, sem sjaldan reyna á vöðvana og stunda ekki líkamsrækt. Líkurnar á síhreyfingarmeinum aukast töluvert, ef unninn er langur vinnudagur. Það er því trúlegt, að við fslendingar, þetta vinnusjúka fólk, séum í alveg sérstökum áhættuflokki. Ekki batnar það held- ur þegar við bætast streita, tauga- spenna, þreyta og þunglyndi. Streita er nær óumflýjanlegur fylgifiskur ýmissa starfsstétta, t.d. meðal marg- umræddra fjölmiðlamanna; við höf- um alltaf verið talin fremur þung- lynd þjóð hér í skammdeginu á norðurhjara; og þreyta hlýtur að gera vart við sig meðal fólks, sem vinnur jafnmikið og lenska er hér. Niðurstaðan er sem sagt sú, að fólk, sem vinnur mikið við tölvur en vill komast hjá vöðva- og sinakvill- um, ætti eftir fremsta megni að var- ast of mikla vinnu. Það þarf líka að sinna heilsurækt, slaka á og brosa a.m.k. út í annað munnvikið. EKKI DEYFA KVALIRNAR OG DRAGA AÐ LEITA LÆKNIS Lífsmáti Islendinga virðist ekki beinlínis til þess fallinn að forða okkur frá umræddum tölvusjúk- dómi. Erlendis er vinnuvikan sífellt að styttast, a.m.k. á hinum Norður- löndunum, og segjast íslenskir læknar oft vera í töluverðri sérstöðu á ráðstefnum með erlendum kolleg- um sínum. Lýsingar útlenskra lækna á auknum frístundum, heilsu- samlegra mataræði og almennari líkamsrækt eiga nefnilega algjör- iega við hér á landi. Eða hafa margir orðið varir við auknar frístundir á síðustu árum? En það getur verið fleira, sem kippa verður í lag, en lengd vinnu- tímans. Réttar vinnustellingar eru t.d. afar mikilvægar, en leiðbeining- ar varðandi slíkt er m.a. að finna i bæklingi Vinnueftirlitsins, Vinna uid töluuskjái. Einnig er mikilvægt að slá eins létt á lyklana og mögu- legt er. Þeim mun meira afl, sem notað er, því meiri líkur eru á vöðva- gigt. Tölvunotendur ættu heldur ekki að hvíla hendurnar á brún lyklaborðsins, en eins og gefur að skilja skiptir það höfuðmáli að vinnuborðið sé í réttri hæð. Slæm lýsing getur aukið mikið á þreytu, hvort sem ljós er of mikið eða af of skornum skammti. Það er hinn gullni meðalvegur, sem hér gildir, eins og svo víða annars stað- ar. Hávaði eykur á spennu og þreytu, svo nauðsynlegt er að gera ráðstafanir til að halda honum í lág- marki. Vinnuhlé skipta líka miklu máli, en þau þurfa að vera oft á hverjum vinnudegi. Fyrir utan sjálfsagðar ráðstafanir eins og þær, sem nefndar eru hér að framan, er þar að auki mikilvægt að deyfa ekki hugsanlegar kvalir með verkjastillandi lyfjum. Slíkt leysir engan vanda, heldur getur einmitt gert hann enn verri. Því fyrr, sem leitað er til læknis, því betra. HÆTTUR AÐ GETA BURSTAÐ TENNURNAR Engin úttekt hefur verið gerð á því hve útbreiddur hinn svokallaði tölvusjúkdómur er hér á landi, en mörgum sögum fer af því hve skæður hann er víða orðinn í Bandaríkjunum, Ástralíu og Nýja- Sjálandi. Frá Bandaríkjunum koma eftirfarandi lýsingar: John Furney er 36 ára blaða- maður í San Diego. Hann fór að finna fyrir kvölum í hægri hand- leggnum, þegar hann var að vinna við tölvuna sína fyrir einu ári. John fannst hálfasnalegt að leita til læknis út af þessu, en svo fór að lokum að ekki varð undan því komist. Úrskurðurinn var sá, að John væri haldinn sinaskeiða- bólgu og að sinar, sem festa hand- leggsvöðvana við beinin, hefðu losnað. Blaðamaðurinn varð á tímabili að nota olnbogaháar spelkur úr harðplasti og þegar hann skipti um gír á bílnum sínum eða einhver tók hressilega í hönd- ina á honum fann hann til nístandi sársauka. Núna heldur John Furney kvölunum hins vegar í skefjum með nálastungumeðferð og hitabökstrum. Honum batnar þó ekki við þetta, en verkirnir versna a.m.k. ekki á meðan! Penelope Mcmillan starfar hjá Los Angeles Times og hún var frá vinnu í 5 mánuði á sl. ári vegna sinaskeiðabólgu og festumeina. Hún fékk skyndilega hræðilegar kvalir, þegar hún var að skrifa hjá sér minnispunkta. Læknirinn, sem skoðaði Penelope, kvað ástandið likjast fjórum „tennis-olnbogum", sem ku vera mjög óþægilegur kvilli. Og þrátt fyrir lyfjagjöf hefur líðan Penelope lítið breyst. Síðasta dæmið, sem hér verður rakið, er af samstarfsmanni Penelope, Robert Jones. Hann varð á timabili að snúa sér að öðru starfi, þar sem kvalirnar voru orðnar svo miklar, að hann átti m.a.s. orðið erfitt með að bursta tennurnar. Robert gat heldur ekki synt, hjólað eða ekið bíl. Hann er enn þjáður, samkvæmt áreiðan- legum heimildum, en hefur látið sig hafa það að byrja aftur í blaða- mennskunni. Hvað gera menn líka ekki, þegar þeir eru helteknir af fjölmiðlabakteríunni? ■ erestrojka heitir bók sem kemur út samtímis í flestum löndum Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og Sovétríkjunum 2. nóvember. Þann sama dag kemur bókin líka út á íslandi. Höfundur bókarinnar er ekki af lakara taginu, en það er sjálf- ur Mikhael Gorbatsjov Sovétleið- togi. Að sögn settist Gorbatsjov nið- ur við að skrifa þessa bók þegar heimurinn stóð á öndinni vegna þess að hann hafði ekki sést opin- berlega í tvo mánuði. Þeir sem séð hafa segja að bókin innihaldi ótrú- lega hreinskilna gagnrýni á Sovét- kerfið og finnst undrum sæta að aðalritari kommúnistaflokksins skuli taka svo afdráttarlaust til orða. Fróðir menn telja næsta víst að þetta verði metsölubók víða um álf- ur, en kannski síður hér. Það var bókaforlagið Iðunn sem tryggði sér útgáfuréttinn á alþjóðlegu bókasýn- ingunni í Frankfurt sem haldin var fyrir nokkrum vikum, en nú munu tíu þýðendur sitja á vegum forlags- ins og þýða Perestrojku, enda liggur mikið við ef halda á útgáfudag- inn... A H—nlð undanförnu hafa fræði- menn við félagsvísindadeild háskól- ans deilt um það hvað séu aflaklær og hvort yfirleitt sé til nokkuð sem heitið geti aflaskipstjórar. Kannski fæst einhver úrlausn í bók sem kem- ur út nú fyrir jólin og Hjörtur Gísla- son, blaðamaður á Morgunblaðinu, hefur skráð. Bókin ber nafnið Afla- kóngar og athafnamenn og í henni ræðir Hjörtur við fimm sjó- sóknara: Magna Kristjánsson, skipstjóra á Berki frá Neskaupstað, sem einnig er þekktur fyrir að starfa að þróunaraðstoð á Grænhöfðaeyj- um; Þorstein Vilhelmsson, krafta- verkamanninn á Akureyrinni þar nyrðra; Guðjón A. Kristjánsson, for- seta Farmanna- og fiskimannasam- bandsins og skipstjóra á Páli Páls- syni frá Hnífsdal; Sigurð Georgs- son, aflakóng á Suðurey frá Vest- mannaeyjum, og Ragnar Guðjóns- son, sem gerir út Esjar, 8 tonna trillu, frá Hellissandi og aflar 350 tonna á ári. Og hvað segja svo þessir aflakóngar. Jú, þeir hafa komist þetta langt með mikilli vinnu — og talsverðri heppni. . . BILEIGENDUR BODDÍHLUTIR! ÚDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. A FLEST- AR GERÐIR BlLA, ÁSETNING FÆST A STAÐNUM. BÍLPLAST Vkgnhölfta 19, •imf 6M233. PóstMndum. Ódýrir sturtubotnar. Tökum aö okkur trefjapiMtvinnu. VlaljiA faianakt. KÉRASTASE ‘FRÁ L'ORÉAL PARÍS ÁÍT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ. LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU- MEISTARANUM. SPURÐU HANN UM KERASTASE. FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM, HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.