Helgarpósturinn - 15.10.1987, Blaðsíða 38
DAGSKRÁRMEÐMÆU
Föstudaginn 16. oktöber kl. 20.55
verður á dagskrá bandarískur tón-
listarþáttur. Kántrístjörnur, Brenda
Lee, Dolly Parton, B.B. King o.fl.
koma fram og kyrja söngva sína í
Nashville.
Sjónvarpsinynd kvöldsins er
Skáldagrillur (Sharma and Beyond)
og hefst hún kl. 22.50. Þetta er bresk
sjónvarpsmynd frá árinu 1984 og
fjallar um kennaraástir, ritstörf o.fl.
Laugardaginn 17. október kl. 14.50
verða endursýndir tónleikar með
baráttukonunni Joan Baez sem kom
hingað til lands fyrir ári.
Laugardagsmyndirnar eru tvaer. Sú
fyrri, Hörkugæjar (The Lords of Flat-
bush), hefst kl. 21.25. Sylvester Stall-
one og Perry King leika aðalpersón-
urnar, leöurklædda skólastráka í
Brooklyn-hverfi New York-borgar á
sjötta áratugnum. Hreint ágæt af-
þreying.
Síðari biómynd kvöldsins, Bílakóng-
urinn (The Betsy), kemur á skjáinn
kl. 22.40. Þetta er saga umsvifamik-
ils bílaframleiðanda, sem leikinn er
af Laurence Olivier, og ættar hans. í
þessum heimi svífast menn einskis
til að komast í efni og áhrif. Svei mér
þá ef það er bara ekki hægt aö eyða
kvöldinu fyrir framan kassann þetta
kvöld.
Sunnudaginn 18. október kl. 21.55
hefur nýr breskur myndaflokkur
göngu sína. Verið þér sælir, hr.
Chips fjallar um kennara sem geng-
ur brösuglega í starfi og leik, en á
endanum verður hann ástsæll og...
Roy Marsden er fjölhæfur leikari og
hefur sannað ágæti sitt. Verð athug-
unar.
STOD TVO
Föstudaginn 16. október kl. 22.50 er
Vísbending (Clue) á dagskrá. Þettað
er stórskemmtilegur farsi með aðat-
hetjuna úr Rocky Horror Picture
Bílakóngurinn, í öðluðum höndum Laurence Olivier, á
trompleik gegn sonarsyni sínum í bílabransanum. Seinni
mynd ríkissjónvarpsins á laugardagskvöld.
Þungbúinn piparsveinn, leikinn af Jack Lemmon, lendir
í hnappheldu hjónabandsins í einni af laugardagsmynd-
um Stöðvar 2.
Show, Tim Curry, í broddi fylkingar.
Síðari bíómynd stöðvarinnar, Þeir
kölluðu hann Hest (A Man Called
Horse), hefst síðan kl. 00.45. Aðal-
hlutverkið er í góðum höndum Rich-
ards Harris. Þessi mynd er vel þess
virði að vakað sé yfir henni.
Laugardaginn 17. október kl. 16.15
sýnir Kvikmyndaklúbbur Stöðvar 2
myndina Tvennt eða þrennt sem ég
veit um hana (Deux ou trois choses
que je sais d'elle). Þetta er mynd frá
millibilsástandi Godards þegar póli-
tíkin er að ryðja sér til rúms í verkum
hans. Illur fengur (Lime Street) er
fyrsta mynd kvöldsins og hefst kl.
21.15. Tryggingasvindl í flugvéla-
bransanum. Aðalmynd kvöldsins,
Stríð milli kynjanna (The War
Between Men and Women), hefst kl.
23.45. Jack Lemmon leikur þar harð-
an piparsvein sem giftist fráskilinni
konu með stóra fjölskyldu. Æ, hvað
það er gott að fá Lemmon svona
endrum og eins á skjáinn, Miðnæt-
urmyndin er klassamynd, Kína-
hverfi (Chinatown), með ekki ómerk-
ari leikara en Jack Nicholson, Faye
Dunaway, John Huston ofl. innan-
borðs. Andvökuhelgi framundan.
Göturnar i bænum
Laugardaginn 17. október hefur
göngu sína á rás eitt þáttaröð í
umsjá Guðjóns Friðrikssonar um
Göturnar í bœnum. Þættirnir
verða á dagskrá hálfsmánaðar-
lega og verða teknar fyrir helstu
göturnar í hinum gamla hluta
Reykjavíkur, ein í einu.
I þessum þáttum verður stikl-
að á stóru og sagt frá ýmsu sögu-
legu, eftirtektarverðu og sér-
kennilegu sem gerst hefur við
götuna. Það verður minnst á ein-
staklinga, fyrirtæki eins og verk-
stæði eða búðarholur og svo ein-
stök hús. Reynt verður að draga
upp sem heillegasta mynd af
mannlífi og atvinnulífi hverrar
götu.
I fyrsta þættinum verður fjall-
að um Bergstaðastræti. Rakin
verður saga götunnar í stórum
dráttum, allt frá því að Reykvík-
ingar fóru að hrófla upp kotum,
þar sem nú er Bergstaðastræti,
til dagsins í dag. M.a. verður sagt
frá Láka í Lákabæ og rifjað verð-
ur upp gamalt sakamál sem
gerðist við götuna.
©
Loksins byrja hinir skemmtilegu
framhaldsþættir úr þinginu aftur.
Þingmál verða á dagskrá föstudag-
inn 16. október kl. 19.30 í umsjá Atla
Rúnars Halldórssonar.
Laugardaginn 17. október kl. 16.30
mun Guðjón Friðriksson leiða okkur
um Bergstaðastræti í nýrri þáttaröð
sem hann kallar Göturnar í bænum.
Eftir kvöldfréttir verður broslegur
þáttur, Spáö' í mig, í umsjá Margrét-
ar Ákadóttur og Sólveigar Pálsdótt-
ur.
Sunnudaginn 18. október kl. 13.30
mun GunnarStefánsson kynna dag-
skrá í tilefni af aldarminningu Stef-
áns skálds frá Hvítadal.
Kl. 14.30 heldur Arnaldur Arnarsson
áfram að kynna meistara klassíska
gítarsins, André Segovia. Það mætti
vera meira af gítartónlist í útvarpinu,
en þetta er góð viðleitni.
Pallborðið er á sínum stað kl. 16.20
en þar sitja fjórir landsþekktir menn
fyrir svörum um eitt hundrað áheyr-
enda á Torginu í útvarpshúsinu.
Þetta er bein útsending.
Stf
Lengi má gott batna. Dægurmálaút-
varpiö fellur í góðan jarðveg, enda
um ágætis þætti að ræða. Annars er
það tónlistardagskrá með léttu
spjalli sem þekur mestan hluta dag-
skrárinnar. Léttir kettir Jóns Ólafs-
sonar, laugardaginn 17. októbereft-
ir hádegisfréttir, eru verðir áheyrnar.
Góðvinafundur verður síðan á dag-
skránni kl. 17.00 en þar tekur Ólafur
Þórðarson á móti gestum á hinum
nýja „samkomustað" útvarpsins,
Torginu.
Tónlistarþættir eru aðaldagskrárefni
þessara stöðva. Þeir standa fyrir sínu
sem slíkir en sem betur fer eru þó
fréttir inn á milli.
ÚTVARP
eftir Jónínu Leósdóttur
*
Urvalsliöinu teflt fram
Það er ekki laust við að nýjustu breyting-
ar í útvarpsmálum kalli fram nær gleymdar
æskuminningar í brjóstum okkar, sem ól-.
umst upp við þuli og þýskan Ijóðasöng á
gömlu gufunni. Þulatónlistin er nefnilega
farin að hljóma aftur á rás 1, eftir að nýja
dægurmáladeildin tók að sér morgun- og
eftirmiðdags,,magasínin“ á rás 2. (Hafa ís-
lenskir orðsmiðir ekki fundið upp neina
góða þýðingu á þessari leiðindaslettu?)
Léttu lögin og lýsingar Jóns Múla og Ragn-
heidar Astu á veðri og vindum höfðu vikið
fyrir þróuninni og í þeirra stað höfðum við
vanist svokölluðu morgunútvarpi með
fréttaviðtölum og uppákomum. Svipað
morgunfæði fengum við síðan á Bylgjunni,
bæði hjá Sigurði G. Tómassyni og nú nýver-
ið hjá Stefáni Jökulssyni.
Yfirleitt hefur mér líkað mjög vel við
morgunþættina, bæði á rás 1 og Bylgjunni,
og saknaði alls ekki morgnanna, þegar
maður heyrði Die Forelle og Lorelei í svefn-
rofunum. Afturhvarfi til fortíðarinnar hef-
ur hins vegar eiginlega verið þvingað upp
á mig, þar sem útvarpstækið í bílnum mín-
um hefur ekki FM-bylgju. Núna stendur
valið því einungis um „létt lög af plötum"
eða Kanaútvarpið, sem ég hafði alveg
gleymt að væri til. Þégar staðið er frammi
fyrir þessum tveimur valkostum er valið
ekki erfitt: Þögn. Og, í sannleika sagt, þá
kann ég núverandi ástandi bara ljómandi
vel. Ég mæli með þessu!
Annars er maður nánast hissa á því að ein
allsherjar þögn skuli ekki vera farin að
ríkja á öllum rásum. En það er með algjör-
um ólíkindum hvað hægt er að kreista af
fréttum og viðtalsefnum út úr þessu litla
þjóðfélagi. Alltaf tekst að grafa upp ein-
hvern náunga, sem stendur fyrir huglækn-
inganámskeiði fyrir hundaeigendur, er að
opna veitingastað sem framreiðir ein-
göngu gulrætur, eða eitthvað álíka. í sam-
keppninni verðúr líka allt fréttnæmt. Dæg-
urmáladeild RÚV var þannig t.d. með við-
tal við rakara fyrir norðan, sem stundar
passamyndatökur sem aukabúgrein. Ekki
beint stórfrétt!
Um starfsmenn dægurmáladeildarinnar á
rás 2 er hins vegar allt gott að segja. Þetta
er sannkallað úrvalslið í fjölmiðlaíþrótt-
inni, svo það verður spennandi að fylgjast
með baráttunni um hlustir landsmanna á
næstu mánuðum. En skondið er að sjá
vinstrimenn eins og Stefán Jón Hafstein,
Einar Kárason og Æuar Kjartansson berj-
ast af hörku í liði sjálfstæðismannsins
Markásar Arnar.
PS Ég leyfi mér að lokum að hneykslast
mjög svo á framferði Stöðvar 2 á laugar-
dags- og sunnudagsmorgnum, þó umræðu-
efnið hér eigi strangt til tekið að einskorð-
ast við útvarp. Það er nefnilega farið að
lauma gos- og sælgætisauglýsingum inn á
milli barnaþáttanna á morgnana, þegar
pabbi og mamma sofa. Þetta er víst ekki
brot á nýju útvarpslögunum, eins og marg-
ir halda, en mikið hræðilega finnst mér
það lágkúrulegt að selja gos- og sælgætis-
framleiðendum aðgang að börnum á þenn-
an hátt.
SJÓNVARP
Frétt vikunnar
Sigrún Stefánsdóttir er einkar áheyrileg-
ur fréttamaður og gerir oft góða hluti. Auk
frétta er Sigrún umsjónarmaður þáttarins
Nafns vikunnar, sem sjónvarpið sýnir á
laugardagskvöldum. Sl. laugardag var nafn
vikunnar tíu barna móðir í Reykjavík. Var
bæði forvitnilegt og skemmtilegt að heyra
það sem þessi unga kona hafði fram að
færa og væri mikið unnið ef sjónvarpið
héldi áfram á þeirri braut að flytja upplýs-
ingar af hinu óvenjulega í þjóðfélaginu.
Þátturinn Nafn vikunnar, sem hér er til
umræðu, átti sér hins vegar óskemmtileg-
an eftirmála í fréttum. Oskemmtilegan af
því þá var gerð frétt úr auglýsingu. Nafn
vikunnar, sem upplýsti að hún hefði aldrei
til útlanda komið, fékk heimsókn daginn
eftir. Var þar kominn Helgi Jóhannsson,
forstjóri Samvinnuferða-Útsýnar. Og skipti
engum togum að forstjórinn gaf nafni vik-
unnar ferð til útlanda fyrir alla fjölskyld-
una. Svo einkennilega vildi til að frétta-
maður sjónvarps var mættur á staðinn með
tilheyrandi gauragangi, myndaði forstjór-
ann þar sem hann renndi í hlað á glæsi-
eftir Helga Má Arthúrsson
kerru og afhenti nafni vikunnar blóm og
farmiða til útlanda. Úr öllu saman var gerð
„frétt vikunnar" sem við kjósum að kalla
svo. Sjö mínútna innslag í fréttatíma þar
sem forstjóra ferðaskrifstofu er gefið frítt
spil til að auglýsa þá vöru sem hann hefur
á boðstólum.
Auglýsingamínútan í sjónvarpi kostar
um sjötíu þúsund kr. sem þýðir að sjónvarp-
ið auglýsti þarna gratís fyrir jafnvirði hálfr-
ar milljónar. Nafn vikunnar getur hrósað
happi yfir höfðingsskap Samvinnuferða-
Útsýnar, Helgi Jóhannsson yfir höfðings-
skap fréttastofu sjónvarpsins, en við hin
sem horfðum á „fréttina" veltum því fyrir
okkur hvort ferðaskrifstofan hefði ekki
hreinlega grætt á gjöfinni.
Fréttaflutningur af því tagi sem hér er
gerður að umtalsefni færir til mörkin á
milli auglýsinga og raunverulegra frétta.
Og það vekur óneitanlega furðu að sjón-
varpið skuli á þennan hátt leggjast í nýtt
strandhögg í fréttaöflun. Menn gerðu frek-
ar ráð fyrir að einkastöðin, Stöð 2, héldi
öllu frumkvæði í þessum efnum. Svo er
ekki.
38 HELGARPÓSTURINN