Helgarpósturinn - 19.11.1987, Side 5
FYRIRGREIÐSLA ALBERTS
TIL RANNSÓKNAR
Skuldabréf upp á hundruö milljóna króna samþykkt sem greidslur á skattaskuldum,
söluskatti og viðurlögum við skattsvikum.
I fjármálaráðuneytinu vinna menn nú hörðum hönd-
um við að viða að sér upplýsingum um fyrirgreiðslu til
fyrirtækja og einstaklinga, einkum frá ráðherratíð Al-
berts Guömundssonar. Astæðan er sú, að Kjartan Jó-
hannsson hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi þar sem
hann fer þess á leit að fjármálaráðherra upplýsi hvaða
aðilar hafa fengið að greiða opinber gjöld með útgáfu
skuldabréfa.
EFTIR FRIÐRIK GUÐMUNDSSON, GUNNAR SMÁRA EGILSSON OG HELGA MÁ ARTHURSSON
I svari við fyrirspurn Kjartans á
síðasta þingi kom fram að árlega
hefur tollstjóraembœttiö veitt
greiðslufrest á aðflutningsgjöldum
að upphæð allt að 5 milljörðum
króna. Slíkur frestur styðst við tolla-
lög, þar sem fjármálaráðherra er
veitt heimild til að veita greiðslu-
frest á aðflutningsgjöldum á tiltekn-
um vörutegundum með útgáfu
reglugerðar. Albert Guðmundsson
rýmkaði þessa reglugerð á sínum
tíma, en auk þess veitti ráðuneytið
greiðslufrest utan hennar.
En fyrirspurn Kjartans beinist nú
að öllum opinberum gjöldum, ekki
einungis aðflutningsgjöldum. Til
frestunar á innheimtu þeirra hefur
ráðherra mun þrengri heimildir og í
sumum tilfellum engar. Samkvæmt
heimildum Helgarpóstsins er hér
um háar fjárhæðir að ræða;
200—300 milljónir að lágmarki.
SKATTSVIK BORGUÐ
MEÐ SKULDABREFUM
Þó það hafi lengi verið opinbert
leyndarmál að fyrirgreiðsla fjár-
málaráðuneytisins fór langt fram úr
öllum fordæmum í tíð Alberts Guð-
mundssonar munu þær upplýsingar
sem nú eru að koma fram í dagsljós-
ið jafnvel koma starfsmönnum ráðu-
neytisins á óvart.
Samkvæmt heimildum Helgar-
póstsins er hér um að ræða greiðslu-
frest á söluskatti, sem þó hafði þeg-
ar verið innheimtur af skattgreið-
endum, og jafnvel viðurlög við
skattsvikum og vanskilum.
Helgarpósturinn greindi frá því
fyrir nokkrum mánuðum að Land-
vélar hf. hefðu þannig fengið að
gefa út skuldabréf til greiðslu á
skatti og álögum vegna skattsvika.
Töggur hf. mun sömuleiðis hafa
greitt söluskatt og viðurlög með út-
gáfu skuldabréfs, að upphæð um 7
milljónir króna að núvirði, snemma
á árinu 1985. Þá mun ráðherra hafa
samþykkt kaup á tveggja milljóna
króna skuldabréfi frá Skemmtigard-
inum hf., þeim er rekur Tívolí í
Hveragerði, til lúkningar skuldar
vegna söluskatts er kominn var í
vanskil. Meðal annarra fyrirtækja
má nefna J. Þorláksson og Norð-
mann, sem fékk bréf að andvirði
hátt á aðra milljón samþykkt sem
greiðslu opinberra gjalda.
TRÚNAÐARUPP-
LYSINGAR
Eftir að Þorsteinn Pálsson tók við
af Albert mun hann hafa dregið
verulega úr þessari fyrirgreiðslu og
nánast lagt hana af. Þorsteinn mun
þó hafa afgreitt slík erindi og þá sum
er voru eftirhreytur frá tíð Alberts.
Þannig mun skuldabréf Veitinga-
mannsins, sem gefið var út til
greiðslu á opinberum gjöldum á ár-
inu 1986, vera tilkomið.
Helgarpósturinn ritaði fyrir stuttu
fjármálaráðherra bréf og fór fram á
að ráðuneytið veitti upplýsingar um
þessi mál. Ráðuneytið vísaði á til-
vonandi svar við fyrirspurn Kjart-
ans í svarbréfi sínu.
Þegar leitað var til Karls Th.
Birgissonar, upplýsingafulltrúa fjár-
málaráðuneytisins, bar hann því við
að þessi fyrirgreiðsla flokkaðist til
trúnaðarmála og að hann teldi sig í
þessu máli ekki skuldbundinn til að
veita Helgarpóstinum umbeðnar
upplýsingar, enda væri um trúnað-
arupplýsingar einstaklinga að ræða,
og þar sem fram væri komin fyrir-
spurn um þetta efni á Alþingi þætti
ráðuneytinu eðlilegt að upplýsingar
almenns eðlis kæmu fyrst fram þar.
Sigurdur Þorkelsson ríkisféhirdir
innheimtir skuldabréf í eigu ríkis-
sjóös. Helgarpósturinn sneri sér til
hans og spurðist fyrir um hvort
hann heföi á árunum eftir 1983 tek-
iö á móti slíkum bréfum, sem hluta
afskilum innheimtuaðila ríkissjóös.
,,Eg hef ártölin ekki í kollinum, en
ég hef fengið skil á innheimtu frá
embættum með skuldabréfum. En
hvernig þau eru til komin veit ég
ekki, ég kann ekkert um upprunann
að segja."
En viö erum aö tala um greiöslu á
opinberum gjöldum meö skulda-
bréfum til langs tíma?
„Spurningin er hvað þú kallar til
langs tíma, ég held að þetta sé til
mjög skamms tíma, án þess þó að ég
hafi farið í saumana á því. Þetta eru
örugglega ekki bréf til 10—15 ára,
þau eru að ég hygg til 3—4 ára.“
Hvernig koma slík skuldabréf til?
ALBERT VARAÐUR VIÐ
Eins og áður sagði dró verulega úr
þessari fyrirgreiðslu í tíð Þorsteins
Pálssonar sem fjármálaráðherra og
samkvæmt upplýsingum inn-
heimtumanna ríkissjóðs er nú orðið
langt síðan þeir hafa fengið svipuð
erindi. Fyrir tíð Alberts Guðmunds-
sonar mun sömuleiðis hafa verið lít-
ið um þessi skuldabréfakaup ríkis-
sjóðs.
Nokkrum mánuðum eftir að Al-
bert settist í stól fjármálaráðherra,
sumarið 1983, sáu lögfræðingar
ráðuneytisins ástæðu til að vara ráð-
herra við að fella niður, eða veita
samþykki sitt fyrir því, að einstakl-
ingum og fyrirtækjum væri gefinn
kostur á að greiða beina skatta og
önnur opinber gjöld með útgáfu
skuldabréfa til langs tíma.
Samkvæmt heimildum Helgar-
póstsins ofbauð embættismönnum
ráðuneytisins á þessum tíma sá
mikli þrýstingur, sem var frá ein-
„Ég fer ekki ofan í uppruna
þeirra, heldur kanna aðeins hvort
það er heimild fyrir móttöku á þess-
um bréfum og ef hún er fyrir hendi
þá skipti ég mér ekki frekar af því,
en reyni bara að innheimta þau.“
Hafa þessi bréfborist frá einhverj-
um sérstökum embœttum frekar en
öörum?
„Nei, ég hef ekki fylgst með því,
þótt eitt og eitt bréf komi. Þetta er
sáralítið sem þetta kann að hafa
verið. Það hefur komið fram í blöð-
um að ég man að fyrirtæki einu var
gefinn slíkur kostur á þeim forsend-
um að málum væri betur komið
með þessum hætti. Vegna þess að
fyrirtækið var gjaldþrota var talið
betra aö gera þetta en að fá ekkert.
Ég hygg að þetta sé einmitt það
sjónarmið sem ríkt hefur þegar slík
skuldabréf hafa komið upp.“
Samkvœmt okkar heimildum
staklingum og fyrirtækjum um nið-
urfellingu opinberra gjalda. Var Al-
bert varaður við slíkri afgreiðslu og
afleiðingunum sem hún gæti haft
fyrir ríkissjóð. Töldu þeir að ein-
staklingsbundin afgreiðsla stæðist
ekki fyrir lögum. En þrátt fyrir
ítrekaðar viðvaranir frá embættis-
mönnum sínum lét ráðherra þær
ekki á sig fá og hélt fyrirgreiðslu
áfram.
FYRIRGREIÐSLA UTAN
LAGA OG RÉTTAR
Mun fjármálaráðherra þannig
hafa undirritað tilskipanir til bæjar-
fógeta og annarra innheimtumanna
ríkissjóðs víða um land þess efnis að
felld yrðu niður opinber gjöld,
skattaskuldir og dráttarvextir, án
þess að hafa til þess lagalega heim-
ild.
Skattalög kveða á um, að niður-
felling opinberra gjalda sé í höndum
ríkisskattanefndar. Úrskurði hennar
er ekki hægt að áfrýja til fjármála-
ráðherra, eins og gert var í tíð Al-
berts Guðmundssonar. Varðandi
tekju- og eignarskatt gildir að ríkis-
skattstjóri einn getur tekið ákvörð-
un um breytingar, lækkun eða nið-
urfellingu þessara gjalda. Fjármála-
ráðherra er lögum samkvæmt
óheimilt að hlutast til um þessi mál.
Eina lagaheimildin, sem fjár-
málaráðuneyti getur skotið sér á
bak við í „niðurfellingarmálum", er
þegar fullvíst er talið að opinberar
skattskuldir séu nánast tapaðar. í
slíkum tilvikum er ráðuneytinu
heimilt að semja svo við skuldara að
fella niður hluta skuldar gegn því að
sett sé trygging fyrir því sem eftir
stendur. Þó þetta hafi verið tilfellið í
sumum þessara mála fer því fjarri að
hér sé um algilda reglu að ræða,
eins og sjá má af dæmunum hér að
ofan.
Albert Guömundsson, fyrrverandi fjármálaráöherra.
Fyrirspurn Kjartans Jónssonar um fyrirgreiðslu Alberts hefur lagt mikla vinnu á herðar starfsmanna fjármálaráðuneytisins. Þar eru menn að taka saman
þykka skýrslu.
EKKI VÍSAÐ í LAGAHEIMILDIR
Sigurður Þorkelsson ríkisféhirðir.
„Ég man í þessu sambandi eftir fyrir-
tækinu Tögg, Skemmtigarðinum og
Veitingamanninum, vegna þóss éín-
faldlega aö þau lentu í Váhskilum"
römbuöu þessi fyrirtœki ekki öll á
barmi gjaldþrots, þótt þau kynnu aö
hafa verið í greiðsluerfiðleikum.
Samkvœmt sömu heimildum eru
þetta fyrirtœki eins og J. Þorláksson
og Norömann, Skemmtigarðurinn,
Töggur, Askur, Veitingamaöurinn
og r/iörg fleiri.
„Ég man í þessu sambandi eftir
fyrirtækinu Tögg, Skemmtigarðin-
um og Veitingamanninum, vegna
þess einfaldlega að þau lentu í van-
skilum. Ég man ekki eftir J. Þorláks-
son og Norðmann, en það getur vel
verið að þetta eigi við um það fyrir-
tæki án þess að ég muni það. Hing-
að hafa t.d. borist bréf í tengslum við
skuldbreytingu í sjávarútvegi og
Iánafyrirgreiðslu. í landbúnaði."
HváÖ 'er þá gert vjö þessi bréf þeg-
ar 'þáu berasl þínu embœtti sem
hluti afskilurn innheimtuaöilanna?
„Þá innheimti ég þau.”
mmm
HELGÁRPÓSTURINN 5