Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 12

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Síða 12
SKOÐANAKÖNNUN HELGARPÖSTSINS OG SKÁÍSS Í MIKILLI FRAMSÓKN Tap Borgaraflokksins og Alþýðubandalagsins staðfestist Stjórnarflokkarnir hreyfast lítið Kvennalistinn heldur enn áfram aö bœta við sig fylgi, samkvæmt skoðanakönnun Helgarpóstsins, sem fram- kvœmd var um síðustu helgi. Samkvæmt könnuninni fengju kvennalistakonur tíu þingmenn ef gengið yrði til kosninga í dag. Borgaraflokkurinn tapar hins vegar jafnt og þétt við hverja könnun. Lítil hreyfing er á fylgi annarra flokka. Framsókn og Alþýðuflokkur bœta lítillega við sig. Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðubandalag tapa. Sé miðað við dreifingu atkvœða Þjóðarflokksins í síð- ustu kosningum œtti hann að fá mann inn á Vestfjörðum, samkvœmt könnuninni. EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON Samkvæmt henni fengi Kvenna- iistinn rúm 15 prósent atkvæða og tíu þingmenn kjörna. Við það yrði flokkurinn jafnstór Alþýðuflokki. Aðeins Framsóknarflokkur og Sjáif- stæðisflokkur væru stærri. Kvenna- listinn hefur því samkvæmt þessari könnun skotið Alþýðubandalaginu vel aftur fyrir sig. Samkvæmt könnuninni er Kvennalistinn orðinn næststærsti stjórnmálaflokkurinn í þéttbýlis- kjördæmunum. Aðeins Sjálfstæðis- flokkur er stærri í Reykjavík og á Reykjanesi. BORGARAFLOKKURINN MINNKAR ENN Borgaraflokkurinn heldur áfram að tapa. Hann fær 7 prósent í könn- uninni, en fékk 10,9 prósent í síð- ustu kosningum. Ef gengið yrði til kosninga í dag myndi hann tapa þremur af núverandi þingmönnum sínum. Þá er athyglisvert hversu lít- ið fylgi flokkurinn hefur samkvæmt könnuninni í Reykjavík, eða aðeins 6,5 prósent. I síðustu kosningum fékk hann 15 prósent atkvæða í Reykjavík. Tap Alþýðubandalagsins virðist sömuleiðis vera nokkuð vel stað- fest, þó það komi betur út í þessari könnun en flestum öðrum sem gerðar hafa verið eftir kosningar. En flokkurinn tapar samt tveimur pró- sentum og einum þingmanni frá kosningunum í vor. Landsfundur flokksins virðist ekki hafa aukið honum mikið fylgi, sem kannski er ekki furða. Sjálfstæðisflokkurinn tapar einn stjórnarflokkanna frá síðustu kosn- ingum, samkvæmt þessari könnun. Hann missir um tveggja prósenta fylgi og einn þingmann. Þetta tap flokksins kann að koma mörgum á óvart þar sem hann hefur virst vera í uppsveiflu í fyrri könnunum. ÞJÓÐARFLOKKUR INN OG STEBBI ÚT Bæði Alþýðuflokkur og Fram- sókn bæta lítillega við sig frá því í kosningunum. Samkvæmt útreikn- ingum reiknimeistara Helgarpósts- ins nægir það Framsókn til þess að bola Stefáni Valgeirssyni af þingi og heimta aftur sæti hans. Þingmanna- tala Alþýðuflokksins stendur hins vegar í stað, en kratar mega þó fagna því að þeir hafa nú rétt úr kútnum miðað við eldri kannanir. Þó fylgi Þjóðarflokksins sé lítið er það nokkuð stöðugt og mælist nær undantekningarlaust í könnunum. í síðustu kosningum munaði ekki nema hársbreidd að flokkurinn næði manni inn á Vestfjörðum. Reiknimeistarar Helgarpóstsins telja því að hin smávægilega fylgis- aukning flokksins nú ætti að nægja til þess að koma þessum manni inn. Það er; ef gengið yrði til kosninga í dag. VONARÞINGMENN OG FALLKANDÍDATAR Miðað við niðurstöður skoðanakönnun- ar Helgarpóstsins mé gera ráð fyrir þvi að Kvennalistinn ynni fjóra nýja þingmenn ef gengið yrði til kosninga i dag. Borgara- fiokkurinn tapaði hins vegar þremur. Aðrir flokkar ýmist ynnu eða töpuðu einum þingmanni. Reiknimeistarar Helgarpóstsins hafa kafað ofan í niðurstöður könnunarinnar og lagt þær saman við hin nýju kosningalög. Hér að neðan verður útkoman rakin miöað við að flokkarnir byðu fram óbreytta lista frá síðustu kosningum. Það skal þó tekið fram að vegna þess hversu nýju kosninga- lögin eru viðkvæm fyrir lítilli hreyfingu fárra atkvæða er hér um að ræða reikni- kúnstir sem ekki byggja á ströngustu kröf- um vísindanna. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir (S) félli út af þingi í Reykjavik, en í hennar stað kæmi Guðrún Halldórsdóttir (V), skólastjóri í Námsflokkum Reykjavíkur. Hreggviður Jónsson (S) félli af þingi sem þingmaður Reykjaneskjördæmis, en Anna Ólafsdóttir Björnsson (V) sagnfræð- ingur tæki stól hans. Ingi Björn Albertsson (S) félli sömuleið- is út af þingi á Vesturlandi og við það missti kjördæmið einn þingmann, þar sem „flakkarinn" flytti sig um set. Á Vestfjörðum kæmi inn eini þingmað- ur Þjóðarflokksins og yrði það Jóna Val- gerður Kristjánsdóttir skrifstofumaður, samkvæmt framboðslista flokksins í síð- ustu kosningum. Jóna Valgerður yrðí þess valdandi að Sighvatur Björgvinsson (A) yfirgæfi sinn stól. Engar breytingar yrðu á þingliði Norður- landskjördæmis vestra, en Stefán Val- geirsson (J) félli af þingi og þar með heyrðu Samtök um jafnrétti og félags- hyggju sögunni til. I hans stað kæmi Jó- hannes Geir Sigurgeirsson (B) bóndi. Egill Jónsson (D) félli út af þingi, sam- kvæmt niðurstöðum könnunarinnar og kemur fáum á óvart. Egill situr nú sitt þriðja þing, en hefur aldrei verið spáð þingsæti. I hans stað kæmi Kristin Karls- dóttir (V), fóstra frá Seyðisfirði. Á Suðurlandi bættist einn þingmaður við þar sem kjördæmiðfengi „flakkarann", sem yrði Óli Þ. Guðbjartsson (S). Magnús H. Magnússon (A), fyrrverandi ráðherra, og Kristin Ástgeirsdóttir (V) kennari kæmu inn sem nýir þingmenn kjördæmis- ins. Margrét Frimannsdóttir (G) félli hins vegar af þingi. Það skal enn tekið fram að þessi skoð- anakönnun gefur í raun vart tilefni til eins nákvæmra útreikninga og hér hafa verið tiundaöir, heldur eru þessar breytingar á þingliði sýndar til skemmtunar og frekari glöggvunar. LANDIÐ ALLT Ef kosið væri til Alþingis núna, hvaða flokk myndir þú kjósa? % af þeim % af þeim sem tóku Fjöldi sem náðist i afstöðu Kosn. Alþýðuflokkur 76 10,5% 16,3% (10) 15,2% (10) Framsóknarflokkur 93 12,9% 19,9% (14) 18,9% (13) Sjálfstæðisflokkur 121 16,8% 25,9% (17) 27,2% (18) Alþýðubandalag 54 7,5% 11,6% ( 7) 13,4% ( 8) Kvennalisti 73 10,1% 15,6% (10) 10,1% ( 6) Borgaraflokkur 33 4,6% 7,0% ( 3) 10,9% ( 7) Aðrir flokkar 7 0,9% 1,5% ( 0) 4,0% ( D Kjósa ekki/skila auðu 32 4,4% Óákveðnir 102 14,1% Svara ekki 121 16,8% GREINARGERÐ SKÁÍSS Þessi skoðanakönnun var gerð laugardag og sunnudag 14. og 15. nóvember 1987. Valið var handahófsúrtak 1.008 einstaklinga yfir allt landið skv. tölvuskrá yfir símanúmer. Spurn- ingum var beint til þeirra sem svör- uðu og voru 18 ára eða eldri. Þeim sem svöruðu var greint frá því að þeim væri ekki skylt að svara og að úrtakið tengdist ekki nöfnum heldur tölvuúrtaki yfir símanúmer. Spurt var: 1. Ef kosið væri til alþingis núna, hvaða flokk myndir þú kjósa? 2. Styður þú ríkisstjórnina eða ekki? 3. Getur þú nefnt einn til þrjá stjórn- málamenn, sem þú vilt styðja eða sem þú styður? Eins og um allar kannanir ber að hafa vissa fyrirvara um þá sem ekki næst í (þ.e. þeir gætu á einhvern hátt verið öðruvísi en hinir sem voru heima við). Þó er að óreyndu ekki sérstök ástæða til að ætla að þeir breyti niðurstöðu á einhvern hátt, síst af öllu andstæðum viðhorfum í vil. RÍKISSTJÓRNIN Styður )ú ríkisstjórnina eða ekki? Fjöldi % af þeim sem náðist í % af þeim sem tóku afstöðu ágúst júlí Já Nei Óákveðnir Svara ekki 323 256 95 122 40,6% 32,2% 11,9 12,1% 55,6% 44,2% 63,8% 36,2% 54,6% 45,4% Alls voru 1008 manns í úrtakinu. Þar af náöist í 796, eöa 79,0%. Af þeim tóku 579 afstööu, eöa 72,7%. STJÓRNIN MEÐ RÚMAN MEIRIHLUTA Ríkisstjórnin nýtur fylgis meiri- hluta þjóöarinnar, samkuœmt skoð- anakönnun Helgarpóstsins. Þetta fylgi er þó engan veginn afgerandi; 56 prósent styðja stjórnina en 44 prósent gera það ekki. í skoðanakönnun Helgarpóstsins stuttu eftir stjórnarmyndunina naut stjórnin svipaðs fylgis. í annarri könnun stuttu fyrir þingbyrjun hafði stuðningsmönnum hennar hins vegar fjölgað og sögðust þá um 64 prósent aðspurðra styðja stjórnina. Nú bregður svo við að fylgismönn- unum hefur aftur fækkað. Stjórnin nýtur um 10 prósentum minna fylg- is en þeir flokkar sem að henni standa. REYKJAVÍK REYKJANES ÖNNUR KJÖRDÆMI —Ef kosið væri til Alþingis núna, hvaða flokk myndir þú kjósa? % af þeim % af þeim sem tóku Fjöldi sem náðist í afstöðu Kosn. Alþýðuflokkur 38 10,3% 17,5% 16,0% Framsóknarflokkur 23 6,3% 10,6% 9,6% Sjálfstæðisflokkur 67 18,2% 30,9% 29,0% Alþýðubandalag 30 8,2% 13,8 % 13,8% Kvennalisti 41 11,1% 18,9% 14,0% Borgaraflokkur 14 3,8% 6.5% 15,0% Aðrir flokkar 4 1,1% 1,8% 2,6% Kjósa ekki/skila auðu 21 5,7% Óákveðnir 50 13,6% Svara ekki 80 21,7% Alls voru 535 manns i úrtakinu. Þar af náðist i 368, eða 683%. Af þeim tóku 217 afstöðu, eða 59,0% Ef kosið væri til Alþingis núna, hvaöa flokk myndir þú kjósa? Fjöldi % af þeim sem náðist í % af þeim sem tóku afstöðu Kosn. Alþýðuflokkur 21 12,3% 17,9% 18,2% Framsóknarflokkur 13 7,6% 11,1% 19,8% Sjálfstæöisflokkur 38 22,2% 32,5% 28,9% Alþýðubandalag 11 6,4% 9.4% 11,7% Kvennalisti 24 . 14,0% 20,5% 9,1% Borgaraflokkur 9 5,3% 7,7% 10,9% Aðrir flokkar 1 0,6% 0,9% 1,4% Kjósa ekki/skila auðu 6 3,5% Óákveðnir 25 14,6% Svara ekki 23 13,5% Alls voru 228 manns i urtakinu. Þar af náðist i 171, eöa 750%. Af þeim tóku 117 afstööu, eða 68,4% Ef kosiö væri til Alþingis núna, hvaða flokk myndir þú kjósa? % af þeim % af þeim sem tóku Fjöldi sem náðist í afstöðu Kosn. Alþýðuflokkur 27 8,7% 12,4% 12,6% Framsóknarflokkur 63 20,4% 29,0% 28,1 % Sjálfstæöisflokkur 60 19,4% 27,6% 24,1 % Alþýðubandalag 21 6,8% 9,7% 13,9% Kvennalisti 19 6,1% 8,8% 6,8% Borgaraflokkur 14 4,5% 6,5% 6,5% Aðrir flokkar 4 1,3% 13% 4,4% Kjósa ekki/skila auðu 11 3,6% Óákveðnir 41 13,3% Svara ekki 40 12,9% Alls voru 390 manns i úrtakinu. Þar af náöist í 309, eða 79,2%. Af þeim tóku 217 afstöðu, eða 70,2% 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.