Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 19.11.1987, Qupperneq 38

Helgarpósturinn - 19.11.1987, Qupperneq 38
ER ATVINNUMENNSKA Á LEIÐINNI? Það virðist ekki fara á milli mála að við Islendingar stefnum inn í einhvers konar atvinnumennsku í a.m.k. sumum íþróttagreinum á næstu árum. Vandamálið við þessa stefnu er hins vegar það að það má enginn vita af henni og síst má hún spyrjast til erlendra aðila sem um leið myndu stimpla okkur sem atvinnumenn og þá færi bragurinn af mörgum ágætum afrekum. Reyndar væri það alls ekki óheppilegt ef árangurinn yrði á atvinnu- mannamælikvarða. Á undanförnum árum hefur það orðið æ algengara að góðum leikmönnum (og stundum bara þokkalegum) eru boðnir peningar eða að minnsta kosti hlunnindi fyrir að skipta um félag. EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON Félög bjóða leikmönnum gull og græna skóga Auglýsendur gleypa við íþróttum Samkvæmt mínum bestu heimild- um færist það í vöxt að knattspyrnu- félög bjóði leikmönnum hreinlega peningaupphæðir fyrir að skipta yfir í sínar raðir og hafa heyrst tölur er skipta tugum ef ekki hundruðum þúsunda. Um nokkurra ára skeið hefur þessi „styrkur" venjulega ver- ið í formi launa fyrir þjálfun ein- hverra flokka hjá viðkomandi félög- um og einnig i útvegun húsnæðis og bíis. Nú virðist meira vera lagt undir og leikmönnum boðin „vel launuð vinna“ ásamt lánum eða öðru því er hjálpað gæti mönnum við ýmsar aðstæður auk hreinna peninga eins og áöur er getið. Nú er eðlilegt að menn vilji velta sér upp úr ástæðum þessa. Hvers vegna hafa félögin meiri peninga úr að moða nú eða eru það eingöngu „ríku“ félögin sem geta leyft sér að ráða til sín sterka leikmenn með peningaboðum? Astæðurnar fyrir þessum sífelldu búferlaflutningum leikmanna eru eflaust margar og eiga sér ekki alla peningalegar skýringar. Svo er bara sennilegt að félög sem hafa metnað til að ná árangri verði hreinlega að leggja á sig að „kaupa“ leikmenn til að svo veröi. Um nokkurt skeið var það svo að leikmenn sóttu í þau lið sem þóttu líklegust til að hreppa meistaratitil eða önnur verðlaun. A undanförn- um árum hefur titilmöguleiki ekki verið helsta ástæðan fyrir tilfærslu manna á milli félaga. Félög í 2. deild hafa ekki síður veriö iðin við að lokka til sín leikmenn en lið í 1. deild og venjulega hafa nýliðar í 1. deild hvert ár fengið til sín góða leikmenn Þeir sem hafa átt leið um Laugar- dalinn nýlega hafa tekið yfir þeim framkvæmdum sem eiga sér stað við gervigrasvöllinn. Þar er nú verið að reisa stærðarstúku til að hýsa þá áhorfendur sem koma til að fylgjast með Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu — eða eigum við ekki frekar að segja þeim þremur eða fjórum leikjum sem skipta máli í því móti. Fyrirtæki þetta er eflaust fok- dýrt og þjónar þar að auki sáralitl- um tilgangi. Ég er reyndar einn þeirra sem eru forfallnir knatt- spyrnusjúklingar en samt er ég ekki sáttur við þá forgangsröð sem höfð er á framkvæmdum í Laugardaln- um. Stúka við gervigrasvöllinn er sennilega einhver mesti óþarfi sem um getur í vallarframkvæmdum. Gervigrasið er aðeins notað á vet- urna og vorin undir alvöru kapp- leiki. Stúkan gerir það gagn eitt að hlífa mönnum við rigningu. Hún heldur ekki á mönnum hita nema að ákaflega litlu leyti. Hún er þar að auk það stór að sennilega verður hún aðeins einu sinni full á hverju vori — þegar úrslitaleikurinn í Reykjavíkurmótinu fer fram. Önnur mál eru miklu brýnni í Laugardaln- um en þetta skrautmannvirki. Valbjarnarvöllur, sem er eina að- staða frjálsíþróttafólks í Reykjavík þó ekki hafi verið stefnt að öðru en að halda sér I deildinni. Þá hafa menn meira að segja yfirgefið lið sín, þó líkleg væru til afreka, og jafnvel haldið á loft Islandsmeistaratitli árið áður. Hvort þetta sannar þær sagnir að peningar séu í spilinu og þá hversu miklir læt ég ósagt en vissu- lega styrkir það þær. Nú þegar er farið að tala um að félög hafi á sínum snærum menn sem vinna hörðum höndum við að ná í leikmenn og þá sérstaklega menn í stöður sem vantar í. Þetta hefur aftur á móti orðið til þess að yngri leikmönnum er ýtt til hliðar og þeir leita þá gjarnan annað til að fá að spila knattspyrnuleiki. A þessu hafa síðan önnur lið hagnast og þannig er hugsanlegt að segja að liðin sem t.d. spila í 2. deild hafi jafn- ast og keppnin þar er þvi orðin mun meira spennandi en áður var. Lið í 2. deild leggja nú allt kapp á að tryggja sér góða leikmenn fyrir komandi keppnistímabil og ekki sakar að nú er sennilega ódýrara fyrir flest lið í 2. deild að leika þar en áður. Einn hluti af þessum boðum til leikmanna um að koma og spila hjá öðrum liðum er auglýsingar. íþróttir eiga nú miklum vinsældum að fagna hjá fyrirtækjum, sem sést best á því að færri komast að en vilja til að styrkja okkar vinsælustu iþrótta- greinar, handknattleik og knatt- spyrnu. Þá má ekki gleyma því að fjölmiðlar gera íþróttum nú enn meiri skil en áður, sem einnig heillar auglýsendur. Til skamms tíma þótti samstarf auglýsenda og íþróttafé- laga heldur félögum til minnkunar en hitt og auglýsendum var boðið og þó víðar væri leitað, þarf á mikilli endurnýjun að halda til að teljast þokkalegur. Það sýndi sig á C- keppninni í frjálsum íþróttum fyrir rúmu ári að áhorfendur mæta til að sjá nöfn. Það hefur einnig sýnt sig að áhorfendur hafa mætt til að fylgj- ast með köppum eins og Einari Vil- hjálmssyni og Oddi Sigurðssyni vegna þess að þeir eru í fremstu röð. Aðstaða frjálsíþróttafólks er svo lé- leg í Reykjavík að sennilega sjáum viö ekki fram á að eignast afreks- menn sem æfa hér á landi ein- göngu. Það ætti að vera forgangs- upp á heldur litla „sýningu" á vöru- merkjum sínum. I dag er staðan allt önnur. Stóra ástæðan er Stöð 2. Þeg- ar fyrirtæki hefur möguleika á að fá þætti um sitt mót tvisvar í viku er þetta ekki spurning um peninga. Þannig fengu Samvinnuferðir/ atriði að laga hlaupabrautina á Val- bjarnarvelli og hafa á vellinum góða aðstöðu fyrir frjálsíþróttamenn — það getur einnig komið öðrum íþróttagreinum til góða að hafa góða frjálsíþróttaaðstöðu í Laugar- dalnum. Auk aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir er brýnt að koma upp góðri aðstöðu við Laugardalsvöll fyrir fréttamenn og vallargesti almennt. Gleymum ekki atvikinu í leik Vals og Wismut þegar kastað var dós í leikmann a-þýska liðsins. Landsýn mjög góða auglýsingu í sumar vegna styrks við knattspyrn- una í 1. deild og ef marka má upp- töku Stöðvarinnar á leikjum Vals í nýja íþróttahúsinu þeirra, þar sem myndavélinni var rennt yfir allar auglýsingar í húsinu, þurfa auglýs- ORÐ í EYRA Hingað til hefur undirritaður fengið nokkur og stundum veruleg viðbrögð við skrifum sínum i HP. Viðbrögð eru það sem blaðamaður sækist eftir — oft á tíðum. Því vil ég hvetja lesendur til að senda mér línu ef þeim dettur eitthvað t hug sem viðbót við greinar mínar eða ef þeir vilja skamma mig eða hrósa. Þá eru vel þegnar ábendingar um efni sem menn telja að þurfi á umfjöllun að halda. Skrifið til: HP — íþróttir c/o Þórmundur Stangarholti 5 105 Reykjavík eða hafið beint samband í síma 20256. endur þar ekki að kvarta. Af eðlileg- um ástæðum getur ríkissjónvarpið ekki leyft sér þennan „munað“. Það var Handknattleikssamband íslands sem fyrst varð til þess að gera stóra samninga við fyrirtæki og voru (og eru) þeir fyrst og fremst byggðir á mjög góðum árangri landsliðsins í handknattleik á und- anförnum árum. í dag er handknatb leikurinn hér á landi á mikilli upp- leið sem sést best á því að uppselt er í íþróttahúsin trekk í trekk og fjöl- miðlarnir gera handboltanum ótrú- lega góð skil. Þetta hefur skilað sér til félaganna — eins og það gerir til HSÍ — í auglýsingafé og gjöfum sem koma fram í hinum og þessum myndum. Víkingar fengu bíl fyrir að vinna Kolding frá Danmörku í Evrópukeppninni og nú eru fyrir- tæki meira að segja farin að auglýsa á gólffjölum íþróttahallanna. Með meira samstarfi fyrir- tækja og íþróttafélaga má búast við að félögin verði enn betur í stakk búin til að „kaupa" sér leikmenn og um leið eykst „hættan" á því að við íslendingar siglum inn í eitthvert form af atvinnumennsku í einhverj- um íþróttagreinum. UM FORGANGSRÖÐ — hvers eiga frjálsíþróttamenn að gjalda? 38 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.